Kynferðisofbeldi
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 61 ›
Íslendingur handtekinn í Brasilíu fyrir að áreita ungling kynferðislega Íslenskur karlmaður var á föstudag handtekinn á flugvelli í Sao Paulo í Brasilíu fyrir að áreita unga stelpu kynferðislega. Erlent 25.9.2023 14:32
Kynferðisofbeldi gegn börnum heldur áfram að aukast Stigvaxandi aukning hefur orðið er á tilkynningum um kynferðisofbeldi gegn börnum til Barnaverndar Reykjavíkur á síðustu þremur árum. Tilkynningum þess efnis fjölgaði um fimmtán prósent í fyrra frá árinu á undan, 2021. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu Barnaverndar Reykjavíkur. Innlent 25.9.2023 13:15
Skrímslið í bláa húsinu sem allir vissu af en enginn talaði um Við Túngötu 21 í Vestmanneyjum stendur lítið einbýlishús. Evu Ólafsdóttur stendur stuggur af húsinu og hún er ekki ein um það. Húsið vekur upp vondar minningar. Lífið 23.9.2023 07:00
Tjáir sig í fyrsta sinn eftir ásakanirnar Leikarinn Russell Brand segir síðastliðna viku hafa verið „stórfurðulega og erfiða.“ Fjórar konur stigu nýlega fram og sögðu hann hafa brotið á sér kynferðislega. Ein þeirra hefur kært hann fyrir kynferðisbrot. Erlent 22.9.2023 22:17
Meintur barnaníðingur gómaður eftir sviðsetningu á eigin dauðdaga Bandarískur maður sem er grunaður um að sviðsetja eigin dauðdaga til að forðast saksókn í barnaníðsmálum var handtekinn á síðastliðinn sunnudag eftir að hafa reynt að flýja frá lögreglu í Georgíuríki Bandaríkjanna. Erlent 20.9.2023 22:23
Eigum ekkert frábært handrit til að láta ofbeldismenn axla ábyrgð Talskona Stígamóta, Drífa Snædal, segir samfélagið ekki eiga nægilega gott handrit til að takast á við ofbeldismenn. Þessu vilja samtökin breyta og munu hefja það samtal á sérstakri ráðstefnu um ofbeldismenn sem fer fram í næsta mánuði. Innlent 20.9.2023 21:00
Kæmi ekki á óvart hefðu Íslendingar falsað nektarmyndir með gervigreind Lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra segir að það myndi ekki koma sér á óvart að til séu tilfelli á Íslandi þar sem gervigreind hafi verið notuð til að falsa nektarmyndir. Innlent 19.9.2023 21:05
Taldi særðri dóttur sinni trú um að þau ættu í ástarsambandi Rúmlega fertugur karlmaður og barnaníðingur á suðvesturhorni landsins hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára dóttur sinni ítrekað. Hann endurnýjaði kynni við dóttur sína vitandi að hann glímdi við barnagirnd. Hann þarf að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur. Innlent 19.9.2023 15:01
Ballard fór frá eigin samtökum eftir rannsókn á áreitni Tim Ballard, sem kvikmyndin Sound of Freedom hefur gert frægan, yfirgaf samtök sem hann stofnaði til að berjast gegn kynlífsþrælkun barna í kjölfar rannsóknar varðandi meinta kynferðislega áreitni hans gegn sjö konum. Hann er sagður hafa áreitt starfsmenn samtaka sem hann stofnaði í verkefnum sem ætlað var að bjarga börnum úr ánauð. Erlent 19.9.2023 12:13
Mál Alberts komið til ákærusviðs Rannsókn á máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar er lokið og það er komið á borð ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 19.9.2023 11:55
Braut á bestu vinkonu sinni meðan hún svaf Ungur karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á bestu vinkonu sinni í lok desember árið 2021. Karlmaðurinn „puttaði“ konuna og sleikti á henni kynfærin á meðan hún lá sofandi í sófanum og varð einskis vör vegna ölvunar og svefndrunga. Innlent 19.9.2023 10:58
YouTube lokar á auglýsingar hjá Russell Brand YouTube hefur brugðist við þeim ásökunum um kynferðisofbeldi sem nú beinast að breska grínistanum, leikaranum og heilsugúrúnum Russell Brand með því að loka á auglýsingar á reikningum hans á YouTube. Erlent 19.9.2023 07:36
Barnaníðingurinn Bennell látinn Barnaníðingurinn og fyrrverandi fótboltaþjálfarinn Barry Bennell lést í fangelsi, 69 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein. Enski boltinn 18.9.2023 16:30
Russell Brand kærður til lögreglu Lögreglunni í Lundúnum hefur borist kæra gegn Russel Brand, breskum grínista. Kona kærði hann fyrir kynferðisbrot sem á að hafa átt sér stað í borginni árið 2003. Breskir fjölmiðlar birtu um helgina sögu fjögurra kvenna sem sökuðu hann um nauðgun, kynferðislega áreitni og andlegt ofbeldi yfir sjö ára tímabil, eða frá 2006 til 2013. Erlent 18.9.2023 16:14
Sjónvarpsstöðvar rannsaka hegðun Russell Brand Breska ríkissjónvarpið, Channel 4 og framleiðslufyrirtækið Banijay UK hafa hafið rannsókn á breska grínistanum Russell Brand í kjölfar þess að fjórar konur stigu fram í gær og sökuðu hann um kynferðisofbeldi. Erlent 17.9.2023 19:58
Skora á konur að stíga fram Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa skorað á konur að stíga fram ef þær þurfi vegna mögulegrar óviðeigandi hegðunar breska grínistans Russell Brand á meðan hann tók þátt í góðgerðarviðburðum samtakanna frá 2006 til 2012. BBC barst kvartanir vegna grínistans á þessum árum en brást ekki við. Erlent 17.9.2023 14:16
Þrjú ungbörn fundust látin í kjallara í Póllandi Tvö voru handtekin á föstudag og kærð fyrir manndráp og sifjaspell. 54 ára karlmaður og tvítug dóttir hans. Þrjú ungbörn fundust látin á vettvangi. Málið er enn til rannsóknar. Erlent 17.9.2023 08:51
„Ef ekki væri fyrir ofbeldið væri þetta dásamlegasti maður sem ég þekki“ „„Ég ætti nú líklega ekki að vera hér, ég er örugglega að taka frá tíma sem myndi nýtast betur annarri konu,“ eru oft fyrstu setningarnar sem við heyrum konur segja þegar þær koma í viðtölin til okkar,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Áskorun 17.9.2023 08:00
Fjórar konur saka Russell Brand um kynferðisofbeldi Breski grínistinn Russell Brand segir ásakanir á hendur sér ekki eiga við rök að styðjast. Umfjöllun um meint brot leikarans birtist í dag en leikarinn brást við á Instagram í gær. Lífið 16.9.2023 15:40
Káfaði á fréttakonu í beinni Maður káfaði á spænskri fréttakonu í beinni útsendingu í miðbæ Madrídar í dag. Isa Balado var að fjalla um rán í verslun þegar maður gekk aftan að henni, truflaði hana og snerti svo á henni rassinn. Erlent 12.9.2023 21:23
Man United biðst afsökunar að hafa boðið dæmdum barnaníðing á leik Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur einokað fyrirsagnir í flestum fjölmiðlum síðustu daga og ekki vegna afreka liðsins inn á knattspyrnuvellinum. Ekki varð umtalið minna þegar í ljós kom að félagið hefði boðið dæmdum barnaníðing á leik hjá kvennaliði félagsins á síðustu leiktíð. Man United hefur beðist afsökunar á athæfinu. Enski boltinn 7.9.2023 23:30
Masterson dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun Danny Masterson, leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í That ´70 Show, hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Masterson var sakfelldur í vor fyrir að nauðga tveimur konum á árum áður. Erlent 7.9.2023 19:10
Eitt af hverjum tíu börnum misnotað kynferðislega Eitt af hverjum tíu börnum hefur verið misnotað kynferðislega og um helmingur hefur orðið fyrir stafrænu kynferðisofbeldi. Næstum þriðjungur tíundubekkinga glímir reglulega við sjálfsvígshugsanir samkvæmt nýrri rannsókn. Innlent 4.9.2023 19:33
Kenndu öðrum að tæla konur í „Stríðsherbergi“ Samskipti milli Andrew Tate og samstarfsmanna hans benda til þess að þeir og menn þeim tengdir hafi tælt tugi kvenna til þess að taka upp klámefni sem þeir birtu á netinu. Afrit af samskiptum þeirra var lekið til BBC en miðillinn segist hafa fundið minnst 45 möguleg fórnarlömb Tate og félaga hans. Erlent 31.8.2023 16:19
Tilkynntum nauðgunum fækkar um 36 prósent Lögreglan skráði tilkynningar um 79 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins 2023, sem samsvarar 36 prósent fækkun frá síðasta ári. Ef borið er saman við sama tímabil síðustu þrjú ár þar á undan þá fækkaði skráðum nauðgunum um tuttugu prósent. Að meðaltali eru núna skráðar tilkynningar um þrettán nauðganir á mánuði hjá lögreglunni. Innlent 30.8.2023 15:06
Taktu skrefið Áður fyrr var kynferðislegt efni af börnum kallað barnaklám. Það gaf til kynna að þannig efni væri bara ein tegund af kynferðislegu efni sem væri fólki þó misaðgengilegt. Með auknum skilningi kynferðisbrotum hefur þessi misskilningur verið leiðréttur og hugtakanotkunin uppfærð til að endurspegla betur þann veruleika sem kynferðislegt efni af börnum afhjúpar. Skoðun 30.8.2023 12:30
Sagðir hafa frelsissvipt mann og þrýst klaufhamri í endaþarm hans Tveir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir grófa frelsissviptingu og rán í mars í fyrra. Annar þeirra er einnig ákærður fyrir nauðgun með því að hafa þrýst klaufhamri í endaþarmsop fórnarlambsins. Innlent 29.8.2023 23:41
Rannsókn hætt á meintum brotum Rammstein söngvarans Rannsókn á meintum kynferðisbrotum Till Lindemann, söngvara þýsku hljómsveitarinnar Rammstein, hefur verið hætt af saksóknara í Þýskalandi. Ástæðan er að ekki fundust nægilega mikil sönnunargögn fyrir hinum meintu brotum og þá vildi enginn stíga fram sem vitni. Erlent 29.8.2023 15:07
Nauðgunarmál Finns ekki fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Finns Þ. Gunnþórssonar, sem Landsréttur dæmdi í júní í þriggja ára fangelsi vegna nauðgunar. Áður hafði Héraðsdómur Reykjaness gefið honum tveggja og hálfs árs dóm, en hann var þyngdur í Landsrétti. Innlent 28.8.2023 15:23
Reyndi að brjótast út eins og fórnarlamb hans Karlmaður, sem sakaður er um að hafa rænt konu og haldið henni fanginni í klefa á heimili hans í Oregon í Bandaríkjunum, reyndi að brjótast út úr fangelsi á fimmtudagskvöld. Lögregla gómaði manninn eftir að konunni tókst að brjóta niður hurð klefans með berum höndum. Erlent 26.8.2023 13:33