Akureyri
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 55 ›
Boeing Max tekst á loft í fyrsta innanlandsfluginu Óvenju stór flugvél sinnti innanlandsfluginu nú síðdegis, 160 sæta þota af gerðinni Boeing 737 MAX. Þotan var fengin til að hlaupa í skarðið fyrir Bombardier Q400 vél, sem er í viðhaldi, en einnig til að létta á álagi vegna hvítasunnuhelgarinnar. Innlent 21.5.2021 22:44
Max-þota í fyrsta sinn í innanlandsflugi í dag Boeing 737 MAX flugvél Icelandair verður nýtt í innanlandsflugi milli Reykjavíkur og Akureyrar seinnipartinn í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem MAX-þota er notuð í farþegaflugi til Akureyrar sem og á innanlandsleiðum, að sögn Ásdísar Ýrar Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa Icelandair. Innlent 21.5.2021 11:09
Lægri laun ekki forsenda rekstrarins Óvissa ríkir um framtíðarkjör starfsmanna Öldrunarheimila Akureyrar eftir að Heilsuvernd Hjúkrunarheimili tók við rekstri þeirra af Akureyrarbæ um síðustu mánaðamót. Viðræður um nýja kjarasamninga starfsmanna milli stéttarfélaga þeirra og Heilsuverndar Hjúkrunarheimilis á Akureyri eru á frumstigi en Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar, segir að fyrirtækið þurfi að semja upp á nýtt. Innlent 20.5.2021 06:16
Eldur kviknaði við höfnina á Akureyri Eldur kviknaði um eittleytið á útisvæði við höfnina á Akureyri. Slökkviliðið var fljótt á vettvang og segir varðstjóri að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn. Innlent 14.5.2021 13:09
Háskóli norðurslóða í tuttugu ár Háskólinn á Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar fögnuðu þeim merku tímamótum í vikunni að tuttugu ár eru liðin síðan Háskóli norðurslóða (UArctic) var formlega stofnaður. Skoðun 14.5.2021 12:00
Braggar frá seinni heimsstyrjöldinni víkja fyrir Krónuverslun Tveir braggar sem reistir voru af breska hernum í seinni heimsstyrjöldinni víkja nú fyrir nýrri verslun Krónunnar á Akureyri. Fyrirhugað er að gefa bröggunum nýtt hlutverk, endureisa þá annars staðar og nýta allt sem nýta má úr þeim og samliggjandi vörugeymslu. Innlent 10.5.2021 23:27
Sjúkrarúm frá Akureyri gengin í endurnýjun lífdaga í Síerra Leone Aurora velgerðasjóður starfrækir þróunarsamvinnuverkefni í Sierra Leone og afhenti 43 sjúkrarúm til sjúkrahúsa í landinu. Heimsmarkmiðin 7.5.2021 11:26
Drónamyndband sýnir lúxussnekkjuna í allri sinni dýrð á Akureyri Ein stærsta snekkja í heimi, sem ber nafnið Sailing Yacht A og er í eigu rússneska auðjöfursins Andrey Melnichenko, hefur nú verið á Akureyri í viku. Drónamyndband, sem tekið var af snekkjunni við bæinn í gær og nálgast má neðst í fréttinni, sýnir skipið í allri sinni dýrð. Lífið 21.4.2021 18:50
Djúp sorg fyrir norðan eftir að sóttvarnayfirvöldum snerist skyndilega hugur Framkvæmdanefnd Andrésar andar leikanna hefur ákveðið að aflýsa skíðamótinu í ár en til stóð að halda leikanna um miðjan maí. Er þetta annað árið í röð sem leikunum er aflýst vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Sport 21.4.2021 13:19
Fyrrverandi bæjarstjóri Akureyrar leiðir lista Viðreisnar Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri og fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri og á Fljótsdalshéraði, leiðir lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Sigríður Ólafsdóttir, mannauðsráðgjafi og markþjálfi, mun skipa annað sæti á listanum. Innlent 19.4.2021 13:45
Dagar bílastæðaklukkunnar á Akureyri senn taldir: Gjaldskylda hefst í lok sumars Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum í miðbæ Akureyrar. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi í lok sumars. Þannig mun tími bílastæðaklukkunnar á Akureyri, sem ökumenn hafa jafnan haft sýnilega í bílrúðum á Akureyri, renna sitt skeið. Innlent 17.4.2021 14:46
Rafhlaupahjól dró tíu ára barn í veg fyrir bíl Lítið mátti út af bregða þegar tíu ára gamalt barn missti stjórn á rafhlaupahjóli á Akureyri með þeim afleiðingum að það dró barnið út á akbraut. Hársbreidd munaði að bifreið yrði ekið á barnið en 50 kílómetra hámarkshraði var í umræddri götu. Innlent 15.4.2021 21:22
Ein stærsta lúxussnekkja heims á Akureyri Ein stærsta snekkja í heimi, sem ber nafnið Sailing Yacht A og er í eigu rússneska auðjöfursins Andrey Melnichenko, sigldi inn Eyjafjörð í kvöld og er stödd við Akureyri. Að því er greint er frá á akureyri.net í kvöld verður snekkjan í Krossanesvíkinni á næstunni, jafnvel í einhverjar vikur. Innlent 14.4.2021 22:19
Grænt ljós á samruna Kjarnafæðis og Norðlenska Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína á samruna Kjarnafæðis á Svalbarðseyri og Norðlenska á Akureyri. Þetta staðfestir Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska, í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 13.4.2021 11:39
Fimmtíu orðið fyrir ofbeldi af hendi fyrrverandi maka Hundrað og tíu manns leituðu til Bjarmahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri, í fyrra samkvæmt ársskýrslu Bjarmahlíðar. Fimmtíu þolendur tilgreindu ofbeldi af hálfu fyrrverandi maka. Innlent 11.4.2021 12:59
Draumaaðstæður í Hlíðarfjalli í dag Aðstæður í Hlíðarfjalli í dag voru eins og draumi líkast og var fjölmennt í fjallinu þrátt fyrir að skíðasvæðið sé lokað. Fjöldi fólks hafði með sér sleða og skíði til að njóta sólarinnar sem sleikti hlíðarnar í dag. Lífið 10.4.2021 20:17
Telja prófahald stangast á við sóttvarnareglur: „HA hefur verið að draga lappirnar“ Nemendur í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri fengu í dag tölvupóst frá viðskiptadeildinni þar sem þeim var greint frá því að lokapróf deildarinnar muni fara fram í húsnæði skólans. Mikil óánægja ríkir meðal nemenda vegna þessa, enda aðeins tvær vikur í fyrstu lokapróf, og hafa nemendur tekið sig til og safnað undirskriftalista til þess að skora á yfirvöld skólans að halda fjarpróf. Innlent 8.4.2021 23:30
300 milljóna gjaldþrot Orange Project Gjaldþrot skrifstofuhótelsins Orange Project ehf. sem var með starfsemi í Reykjavík, Kópavogi og á Akureyri nam 329 milljónum króna. Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur í þrotabúið. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. Viðskipti innlent 7.4.2021 17:14
Opna Píeta hús á Akureyri í sumar Píeta samtökin munu opna sitt fyrsta útibú á landsbyggðinni í sumar þegar þau opna starfsstöð á Akureyri. Birgir Örn Steinarsson, sálfræðingur hjá Píeta samtökunum og listamaður, mun sinna stöðu forstöðumanns á Akureyri. Innlent 7.4.2021 14:03
Tekur við og heldur Fjällräven í Geysisfjölskyldunni Athafnakonan Rakel Þórhallsdóttir stefnir nú á opnun fataverslunarinnar Mt. Heklu við Skólavörðustíg 16 og Hafnarstræti á Akureyri. Stendur til að hefja reksturinn á næstu vikum en bæði rýmin hýstu áður verslanir Geysis. Viðskipti innlent 7.4.2021 10:07
„Svolítið sérstakt“ að horfa upp á auðar brekkur meðan fólk fjölmennir að gosinu Forstöðumaður Hlíðarfjalls segir sárt að horfa upp á auðar skíðabrekkur á meðan fólk fjölmennir að gosstöðvunum í Geldingadölum. Sóttvarnalæknir kallar eftir því að fólk bíði með að leggja leið sína að eldgosinu. Innlent 29.3.2021 19:18
Víða pottur brotinn í lögreglunáminu fyrir norðan Gæðaráð íslenskra háskóla segir lítið traust hægt að bera til Háskólans á Akureyri um að tryggja gæði lögreglunáms á háskólastigi og góða upplifun nemenda af náminu. Innlent 27.3.2021 13:28
Sýknudómur í máli Sjanghæ gegn Sunnu staðfestur Landsréttur hefur staðfest sýknudóm úr héraði í máli veitingastaðarins Sjanghæ á Akureyri á hendur Sunnu Valgerðardóttur fréttamanni, Magnúsi Geir Þórðarsyni fyrrverandi útvarpsstjóra og Ríkisútvarpinu. Dómur var kveðinn upp klukkan 14. Eigandi Sjanghæ krafðist miskabóta upp á þrjár milljónir. Fréttir 26.3.2021 16:06
Norðurslóðamiðstöð verður á Akureyri Það dylst engum að málefni Norðurslóða vega stöðugt þyngra í þjóðmálaumræðunni og líklega verða þau þungamiðja stjórnmálanna á þessari öld. Fyrir viku voru utanríkisráðherra færðar tillögur að nýrri stefnu Íslands í málefnum norðurslóða en í framhaldinu leggur ráðherra fram þingsályktunartillögu sem byggir á stefnunni. Skoðun 25.3.2021 15:31
Svæðisborgin Akureyri og menningarhlutverk hennar Um 80% landsmanna búa á áhrifasvæði höfuðborgarinnar á milli Hvítánna tveggja. Á Norðurlandi eystra búa um 9% landsmanna eða 43% þeirra sem ekki búa á áhrifasvæði höfuðborgarinnar. Segja má að Akureyri sé svæðisborg landshlutans. Þangað sækja íbúar ýmsa þjónustu, hvort sem er háskólanám eða læknisþjónustu, verslun eða menningu. Skoðun 24.3.2021 15:00
Sex piltar handteknir vegna alvarlegrar árásar á 16 ára dreng Sex piltar sem fæddir eru á árunum 2003 til 2005 voru handteknir á sunnudagskvöld vegna gruns um aðild að meiriháttar líkamsárás, ráni og eignaspjöllum á bílastæði við verslunarmiðstöðina Glerártorg á Akureyri. Innlent 23.3.2021 12:22
Koma upp tveimur vindmyllum og sólarorkuveri í Grímsey Fyrirhugað er að setja upp tvær vindmyllur og sólarorkuver í Grímsey á næstu mánuðum. Er það liður í aðgerðum Akureyrarbæjar þegar kemur að orkuskiptum í eynni, en reiknað er með að framkvæmdir hefjist í byrjun sumars. Innlent 18.3.2021 11:32
Vonast til að leysa deilur um uppbyggingu fjölbýlishúsa með íbúakosningu Íbúakosning mun fara fram í lok maí um tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Oddeyri á Akureyri. Var þetta samþykkt á fundi bæjarstjórnar í dag. Aðalskipulag svæðisins hefur reynst umdeilt í nokkurn tíma en sumir íbúar hafa gagnrýnt hugmyndir um byggingu hárra fjölbýlishúsa innan um lágreista byggð niðri við bryggjuna á Akureyri. Innlent 17.3.2021 00:24
Hafa áhuga á því að varðveita verk eftir Margeir fyrir norðan Í vikunni vakti athygli þegar að strætóskýli sem verið hefur við Njarðargötu í Reykjavík fékk nýtt heimili í Bankastræti. Lífið 12.3.2021 14:30
„Margt verið fullyrt í þessari umræðu sem er meira og minna rangfærslur“ Heilbrigðisráðherra segir margt hafa verið fullyrt um yfirtöku ríkisins á hjúkrunarheimilum sem standist ekki skoðun. Hún segir að ríkið verði að tryggja þjónustu nú þegar sveitarfélög hafi hafnað því að reka hjúkrunarheimili. Innlent 12.3.2021 12:18