Hafnarfjörður

Haukar og starfsfólk BM Vallár harmi slegin
Starfsfólk BM Vallá er harmi slegið vegna banaslyss sem varð við Ásvelli í Hafnarfirði á sjötta tímanum í gær. Knattspyrnufélagið Haukar sendir fjölskyldu átta ára drengs sem lést samúðarkveðjur. Hann var iðkandi hjá félaginu.

Átta ára drengur lést í umferðarslysi við Ásvelli
Átta ára drengur lést í umferðarslysi á Ásvöllum í Hafnarfirði síðdegis í gær. Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Alvarlegt umferðarslys í Hafnarfirði
Alvarlegt umferðarslys varð við Ásvelli í Hafnarfirði síðdegis í dag, eða á sjötta tímanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Umferðarslys við álverið í Straumsvík
Miklar tafir eru á umferð um Reykjanesbraut eftir umferðarslys þar sem tveir bílar lentu saman. Þrír voru fluttir á slysadeild en meiðsl þeirra eru að öllum líkindum ekki alvarleg.

Afkoma Hafnarfjarðarbæjar betri en var vænst
Afkoma Hafnarfjarðarbæjar á fyrri helmingi þessa árs var 208 milljónum króna betri en áætlanir geðru ráð fyrir. Eiginfjárhlutfall bæjarins og fyrirtækja í eigu hans nam 32,2 prósentum í lok júnímánaðar.

Hafnarfjarðarbær þurfti ekki að greiða matarkostnað einkaskólabarns í Covid
Hafnarfjarðarbæ var heimilt að synja foreldrum grunnskólabarns um greiðslu matarkostnaðar barnsins þeirra á meðan samkomubann vegna Covid-19 varði. Foreldrarnir höfðu farið fram á að bærinn greiddi matarkostnað barnsins, sem var nemandi í einkareknum grunnskóla, eins og það gerði fyrir börn sem gengu í skóla rekna af sveitarfélaginu.

Aron og Rita eiga von á barni
Aron Pálmarsson, handboltakappi og fyrirliði íslenska karlalandsliðsins, Rita Stevens, kærasta hans, eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Grímur viðurkennir mistök lögreglu
Yfirlögregluþjónn viðurkennir að mistök hafi orðið þegar lögregla fann ekki blóðugan hníf, sem er líklegt morðvopn í manndrápsmáli sem varð í Drangahrauni þann sautjánda júní. Hnífurinn fannst í gær af dóttur hins látna á heimili þeirra, þar sem morðið var framið.

Dóttir hins látna fann blóðugan hníf í fyrradag
Nítján ára dóttir Jaroslaw Kaminski, sem var myrtur í Drangarhrauni í sumar, fann hníf sem líklega er sá sem notaður var til að bana föður hennar, í íbúðinni í fyrradag. Verjandi Maciej Jakub Talik, sem er ákærður fyrir manndráp, segir málið skandal og vinnubrögð lögreglu, sem ekki hafi fundið hnífinn, ámælisverð.

Umfjöllun og viðtal: FH - RK Partizan 34-34 | FH glutraði unnum leik niður í jafntefli
Það var heldur betur slegið til veislu í Kaplakrika nú í kvöld þegar FH lék sinn 99. Evrópuleik. Andstæðingur FH var serbneska liðið Partizan frá Belgrad. Leikurinn var í annarri umferð Evrópubikar karla en fyrir þennan leik hafði FH slegið út gríska liðið Diomidis Argous. Eftir afar dramatískar lokamínútur varð 34-34 jafntefli niðurstaðan hér í Kaplakrika.

Sátu að sumbli og rifust um peninga
Maciej Jakub Talik, sem sætir ákæru fyrir að hafa orðið herbergisfélaga sínum að bana í Hafnarfirði í sumar, segir að hinn látni hafi reynt að kúga út úr honum pening og hann hafi drepið hann í sjálfsvörn.

Aðalmeðferð vegna manndráps í Drangahrauni hafin
Aðalmeðferð í máli Maciej Jakubs Talik, sem er ákærður fyrir að hafa orðið Jaroslaw Kaminski að bana þann 17. júní síðastliðinn, hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Réttað yfir ungmennum fyrir luktum dyrum
Aðalmeðferð í Fjarðarkaupsmálinu svokallaða stendur yfir í Héraðsdómi Reykjaness. Fjögur ungmenni eru ákærð í málinu en þinghald í málinu er lokað.

Næturstrætó aftur til Hafnarfjarðar
Frá og með næstu helgi mun næturstrætó aka til Hafnarfjarðar um helgar. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja mánaða.

Einstök verslun í 50 ár
Verslunin Fjarðarkaup hefur verið samofinn sögu Hafnarfjarðar undanfarna hálfa öld en hún heldur upp á 50 ára afmæli sitt dagana 21.-30. september.

Tveir skjálftar 3,1 að stærð á Reykjanesskaga
Tveir skjálftar 3,1 að stærð mældust á Reykjanesskaga í gærkvöldi.

Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 5,3 prósent
Kaupsamningum um íbúðarhúsnæði fækkaði í júlí frá júní, úr 709 í 615. Það sem af er ári hafa 614 samningar verið gerðir í hverjum mánuði, samanborið við 825 samninga á mánuði að meðaltali fyrstu sjö mánuði ársins í fyrra.

Hönnunarparadís í Hafnarfirði
Í miðbæ Hafnarfjarðar er einstakt hönnunarhús til sölu. Húsið var byggt árið 1948 teiknað af Kjartani Sveinssyni og endurhannað af einum þekktasta innanhúshönnuði landsins, Sæbjörgu Guðjónsdóttur eða Sæju, árið 2017. Ásett verð fyrir eignina eru 189 milljónir.

Flokkun úrgangs við heimili gengur vonum framar!
Þann 1. janúar sl. tóku gildi ný lög í úrgangsmálum. Þessar lagabreytingar hafa verið kallaðar hringrásarlögin en markmið laganna snýst aðallega um að draga úr myndun úrgangs og stuðla að myndun hringrásarhagkerfis hér á landi.

Skjálfti við Kleifarvatn fannst á höfuðborgarsvæðinu
Í nótt fannst stór jarðskjálfti um það bil tveimur kílómetrum vestan við Kleifarvatn. Sjálftinn varð 24 mínútur yfir þrjú í nótt, en hann var 3,8 af stærð.

Tug milljóna króna bótakrafa en ákærði neitar sök
39 ára pólskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp í íbúð við Drangahrauni í Hafnarfirði í júní. Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjaness í dag. Ákærði neitar sök.

Manstu eftir Sædýrasafninu í Hafnarfirði?
„Sædýrasafn hefur verið sett á stofn í Hafnarfirði og verður það opnað næstkomandi fimmtudag. Í safninu eru nú búr sem rúma 52 tonn af vatni og eru nú þegar um 30 tegundir sjávardýra í þeim, þar af 17 fiskategundir.“ Þannig hófst frétt sem birtist í Morgunblaðinu þann 7. maí árið 1969.

Þurfi meiri tíma í Borgarlínu
Innviðaráðherra segir of snemmt að slá því föstu að gera þurfi verulegar breytingar á framkvæmdum vegna Borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu, á meðan vinna standi enn yfir við að uppfæra samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins á milli ríkisins og sveitarfélaga. Borgarlína sé hins vegar risastórt verkefni sem þurfi meiri tíma, bæði með tilliti til verkfræðinnar en líka fjármögnunar.

Hafnarfjörður kaupir ráðhús á 350 milljónir
Hafnarfjarðarbær hefur keypt hús Íslandsbanka að Strandgötu í Hafnarfirði. Kaupverðið er 350 milljónir króna.

Endurskoðun samgöngusáttmálans
Við undirritun Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þann 26. september 2019 var brotið blað í framtíðarsýn um bættar samgöngur, aukið samgönguöryggi, minni umferðartafir og stórefldar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki nóg að bæta bara strætó
Framkvæmdastjóri félags sem stofnað var utan um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins segir það fullreynt að efla strætó án þess að byggja borgarlínu líkt og þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt til. Eðlilegt sé að uppfæra sáttmálann nú þegar fjögur ár eru síðan skrifað var undir hann.

Costco gert að greiða 20 milljón króna stjórnvaldssekt vegna olíuleka
Umhverfisstofnun hefur lagt 20 milljón króna stjórnvaldssekt á Costco Wholesale Iceland ehf. vegna brota á ákvæðum um mengunarvarnir.

„Orðinn of stór fíll til að borða í einum bita“
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður umhverfis- og samgöngunefndar, segir að búið sé flækja allt sem við kemur samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og að nauðsynlegt sé að finna lausnir til að hægt sé að koma framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu af stað sem fyrst. „Við höfum gert þetta svo erfitt og of flókið að þetta er orðinn of stór fíll til að borða í einum bita.“

Hellisgerði hundrað ára og Hafnfirðingar halda hátíð
Almenningsgarðurinn Hellisgerði var opnaður fyrir eitt hundrað árum og í tilefni af því blása Hafnfirðingar til heljarinnar veislu um helgina.

Eldurinn kviknaði í iðnaðarbili
Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á vettvangi brunans á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Búið er að staðsetja upptök eldsins en orsök hans liggur ekki enn fyrir.