Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2026 22:33 Nýjasta myndin frá bandarísku alríkislögreglunni af Ryan Wedding. FBI Los Angeles Bandarísk yfirvöld hafa handtekið Ryan Wedding, fyrrverandi ólympíusnjóbrettamann frá Kanada, sem var á lista bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, yfir tíu hættulegastu glæpamenn heims.
Þar með lýkur margra ára leit að hinum 44 ára gamla manni sem er sakaður um að stýra alþjóðlegum fíkniefnasamtökum. FBI DIRECTOR PATEL announces capture of former Canadian Olympic snowboarder and FBI Ten Most Wanted fugitive Ryan Wedding in Mexico City: "Just to tell you how bad of a guy Ryan Wedding is, he went from an Olympic snowboarder to the largest narcotrafficker in modern times."… pic.twitter.com/IsMkbMQMHn— Fox News (@FoxNews) January 23, 2026 Wedding er ákærður fyrir að hafa yfirumsjón með starfsemi glæpasamtaka og fyrir að hafa fyrirskipað fjölda morða, þar á meðal skotárás sem leiddi til dauða alríkisvitnis í janúar síðastliðnum. Wedding, sem keppti á Vetrarólympíuleikunum 2002, var tekinn höndum á fimmtudagskvöld í Mexíkóborg og var fluttur til Bandaríkjanna, að sögn Kash Patel, forstjóra FBI, bandarísku alríkislögreglunnar, á föstudag. 🚨 BREAKING: A federal source tells Fox News that Ryan Wedding, the former Olympian and wanted FBI fugitive, is in custody. 2002 Olympian turned drug lord ran a $1B cocaine empire, moving 60 tons yearly from Mexico to North AmericaKash Patel is expected to announce it at a… pic.twitter.com/4JRmJaT8lE— Digital Daisy (@DigitalDaisyX) January 23, 2026 Patel ræddi á blaðamannafundi í Ontario í Kaliforníu og lagði áherslu á samstarf stofnana í mörgum löndum við að handsama Wedding, sem hann kallaði „einn hættulegasta glæpamann heims“. FBI hafði gefið leitinni að Wedding og samverkamönnum hans nafnið „Aðgerð stórsvig“. Meira en 2.300 kíló af kókaíni Wedding var sakaður um að stýra fíkniefnasölu þar sem Los Angeles var aðaldreifingarstaður, að sögn Jim McDonnell, lögreglustjóra í Los Angeles. Hann sagði að yfirvöld í málinu hefðu lagt hald á meira en 2.300 kíló af kókaíni, 44 kíló af metamfetamíni, 44 kíló af fentanýli, átta skotvopn og yfir 55 milljónir dala í „ólöglegum eignum“. „Saman höfum við rofið stóra fíkniefnaleið sem hafði áhrif á Los Angeles, Bandaríkin og Kanada,“ sagði McDonnell á blaðamannafundinum, þar sem fulltrúar frá lögregluyfirvöldum í Bandaríkjunum og Kanada voru viðstaddir. Yfirvöld lögðu einnig áherslu á samstarf við aðila í Mexíkó, Kólumbíu og Dóminíska lýðveldinu. Auglýsing bandarísku alríkislögreglunnar með hinum eftirlýsta Ryan Wedding.AFP/FBI Wedding var fyrst ákærður í júní 2024 fyrir ýmis brot tengd kókaínsmygli og morðum. Hann var settur á lista FBI yfir 10 eftirlýstustu flóttamenn í mars. Í nóvember leiddi opinberuð ákæra kviðdóms í ljós að Wedding stæði frammi fyrir ákærum tengdum skotárás sem leiddi til dauða alríkisvitnis í Kólumbíu í janúar síðastliðnum. Líkt við „El Chapo“ og Pablo Escobar Á blaðamannafundi í nóvember báru bandarískir og kanadískir embættismenn Wedding saman við alræmda eiturlyfjabaróna eins og Joaquin „El Chapo“ Guzman og Pablo Escobar. Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði þá að starfsemi Weddings hefði skilað meira en einum milljarði dala á ári í ólöglegum fíkniefnatekjum. Hann var einnig sagður hafa unnið með hinu valdamikla Sinaloa-glæpagengi í Mexíkó, að sögn Bondi og Patel. Þar sem Wedding gekk enn laus hækkaði FBI verðlaunafé fyrir upplýsingar um hvar hann væri niðurkominn úr tíu milljónum dala í fimmtán milljónir dala í nóvember en það gera rúma 1,8 milljarða íslenskra króna. „Þetta er stór dagur fyrir öruggari Norður-Ameríku og heiminn, og skilaboð um að þeir sem brjóta lög okkar og skaða borgara okkar verði dregnir til ábyrgðar,“ skrifaði Patel á X á föstudag. Bondi tilkynnti einnig um handtökuna á X. Keppti á Ólympíuleikunum 2002 Ryan Wedding er fyrrverandi ólympíufari á snjóbretti. Hann keppti fyrir hönd Kanada á Vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City 2002 samhliða stórsvigi karla. Wedding féll þá úr keppni í undankeppninni í samhliða stórsvigi. Eftir Ólympíuleikana er hann sagður hafa orðið alþjóðlegur eiturlyfjasali og skipulagt morð á ýmsum vitnum. Þann 6. mars 2025 var honum bætt á lista bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, yfir tíu hættulegustu glæpamennina sem ganga lausir. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=Z0n5BKNZMFI">watch on YouTube</a>
Ólympíuleikar Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Sjá meira