Fótbolti

Messi klæddist Como-treyju

Andri Broddason skrifar
Lionel Messi og Cesc Fabregas hafa verið miklir vinir síðan þeir spiluðu saman hjá Barcelona.
Lionel Messi og Cesc Fabregas hafa verið miklir vinir síðan þeir spiluðu saman hjá Barcelona. Samsett/Getty

Flest af því sem Lionel Messi gerir vekur mikla athygli og þarf oft ekki mikið svo orðrómar fljúgi af stað. Sonur hans Messi, Ciro Messi, virðist vera mikill stuðningsmaður Como eftir að eiginkona Messi, Antonela Roccuzzo, birti mynd af Ciro í Como-treyju

Lionel Messi og Cesc Fabregas, þjálfari Como, eru miklir vinir og spiluðu saman á árunum 2011-2014. Þeir hafa haldið sambandi síðan og virðist Messi vera að styðja við félaga sinn á meðan hann er að þjálfa ítalska liðið.

Samkvæmt ítalska miðlinum La Gazetta dello Sport hafa Fabregas og Messi haldið góðu sambandi þar sem konur þeirra og börn eru einnig vinir. Þegar hann var spurður út í treyjuna sem Ciro Messi var í sagðist Fabregas hafa gefið honum treyjuna og því hefði það ekki komið honum á óvart að sjá hann í Como-treyju.

Fabregas hefur náð góðum árangri með félaginu og er liðið að spila í fyrsta skipti í sögu félagsins í Meistaradeild Evrópu. Liðið mætir í kvöld Manchester United á heimavelli Como og verður það einn stærsti leikur í sögu félagsins.

Þrátt fyrir að vera greinilega stuðningsmaður félagsins verður að teljast ólíklegt að Messi-fjölskyldan geri sér ferð á leikinn en það getur breyst í janúar. Þá fara síðustu leikir í deildakeppni Meistaradeildar Evrópu fram og eru þeir gegn PSG og Barcelona. Það eru síðustu félög sem Messi spilaði fyrir í Evrópu áður en hann hélt til Bandaríkjanna og spilaði fyrir Inter Miami.

Myndina af Messi í treyjunni má sjá á sjöundu mynd í Instagram-færslu Roccuzzo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×