Sport

Skaga­menn á ver­gangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á ís­lensku?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Skagamenn verða heimilislausir í upphafi næsta tímabils.
Skagamenn verða heimilislausir í upphafi næsta tímabils. vísir/guðmundur

Það er ekki á hverjum degi sem félög á Íslandi fá alvöru skammarbréf frá KSÍ en ÍA fékk eitt slíkt á dögunum.

Það augljóslegas fauk hraustlega í mótanefnd KSÍ og áhugavert að ekki voru menn þar einróma um að leyfa ÍA að spila gegn Keflavík í Akraneshöllinni köldu.

Besta sætið fór ítarlega yfir málið og veltir því fyrir sér hver verði heimavöllur ÍA í upphafi næsta tímabils.

Meistaradeildin heldur áfram að skemmta heiminum. Virgil van Dijk átti hauskúpuleik fyrir Liverpool en slapp með skrekkinn því Liverpool vann 4-3. PSG vann risaslaginn gegn Barcelona en sá leikur var taumlaus skemmtun.

Þegar þáttur dagsins var tekinn upp ríkti óvissa með leik Como og Man. Utd enda rignir eldi og brennisteini í Como. Sér ekki fyrir endann á því vatnsveðri.

Svo sá Besta sætið ástæðu til þess að skamma íslenska knattspyrnumenn sem leggja skóna á hilluna og gera það eingöngu á ensku. Gerum betur og það á hinu ástkæra, ylhýra segir Besta sætið.

Þátturinn er sem fyrr aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×