Ísrael
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 43 ›
Sex starfsmenn UNRWA sagðir hafa verið drepnir í árás Ísraelshers Átján eru sagðir hafa látist í árás Ísraelshers á skóla í Gasa, þar af sex starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Erlent 12.9.2024 06:55
Krefjast þess að Ísraelsher bæti ráð sitt eftir dráp á Bandaríkjamanni Utanríkis- og varnarmálaráðherrar Bandaríkjanna kröfðust þess að Ísraelsher breytti starfsháttum sínum á Vesturbakkanum eftir að hermenn skutu bandaríska konu til bana á mótmælum þar í síðustu viku. Ísraelsmenn segja að um óhapp hafi verið að ræða. Erlent 11.9.2024 08:45
Sýrlendingar reiðir yfir árásum Ísraela Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmiklar árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi. Minnst fjórtán eru sagðir liggja í valnum en árásirnar eru sagðar hafa beinst að mörgum hernaðarlegum skotmörkum í landinu. Ráðamenn í Sýrlandi segja þó að óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Erlent 9.9.2024 11:34
Fjórir sagðir látnir eftir árásir Ísraela á Sýrland Minnst fjórir eru sagðir hafa látist í eldflaugaárásum Ísraelshers á bæinn Masyaf í vesturhluta Sýrlands í kvöld. Ekki liggur fyrir hvort hinir látnu séu hermenn Erlent 8.9.2024 23:20
Skaut þrjá til bana á landamærunum Þrír voru skotnir til bana á landamærum Jórdaníu og Vesturbakkans í dag. Ísraelski herinn segir hina látnu hafa verið ísraelska, almenna borgara. Þeir voru allir karlmenn á sextugsaldri. Erlent 8.9.2024 13:51
Krefjast rannsóknar eftir að ung kona var skotin í höfuðið Sameinuðu þjóðirnar krefjast þess að andlát bandarískrar konu sem skotin var til bana á Vesturbakkanum verði rannsakað ofan í kjölinn. Ísraelskir hermenn eru sagðir hafa skotið hana í höfuðið þar sem hún var stödd við friðsöm mótmæli. Erlent 7.9.2024 22:57
Skutu bandarískan aðgerðasinna til bana á Vesturbakkanum Ísraelskir hermenn skutu unga bandaríska konu til bana á mótmælum gegn landtökubyggðum gyðinga á Vesturbakkanum í dag. Herinn yfirgaf borgina Jenín og flóttamannabúðir þar í dag eftir blóðuga hernaðaraðgerð sem hafði staðið í níu daga. Erlent 6.9.2024 19:45
Enn ein „lokatilraun“: Samkomulag sagt stranda á tveimur atriðum Yfirvöld í Egyptalandi og Katar vinna nú að breytingum á tillögum um vopnahlé á Gasa og eiga í samráði við Bandaríkjamenn. Enn er talað um „lokatilraun“ til að brúa bilið milli Ísrael og Hamas. Erlent 5.9.2024 07:56
Kór þjóðþekktra listamanna krefur ráðherra um aðgerðir með söng Klukkan níu í morgun kom hópur þjóðþekktra listamanna og söng fyrir utan utanríkisráðuneytið. Hópurinn kallar sig Samstöðukór fyrir frjálsri Palestínu og hyggst syngja hvern miðvikudagsmorgun fyrir utan ólík ráðuneyti Alþingis til þess að krefja íslenska ríkið um aðgerðir . Innlent 4.9.2024 17:39
Ísland og alþjóðasáttmálar Frá árinu 2006 hefur Ísraelsher margsinnis ráðist á Gazabúa með loftárásum, stróskotaliði og áhlaupi landhers og drepið þúsundir hverju sinni auk þess að leggja fjölda húsa og innviða í rúst. Ísrael hefur unnið þessi hervirki í skjóli stjórnvalda á Vesturlöndum. Þar eru fremst í flokki Bandaríkin, Bretland, Þýskland og Frakkland auk annarra ríkja í NATO og ESB. Ísland er aðili að NATO. Skoðun 3.9.2024 17:59
Bretar afturkalla sum leyfi fyrir vopnaútflutningi til Ísrael Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa ákveðið að afturkalla heimildir til vopnaútflutnings til Ísrael, vegna hættunnar á því að vopnin verði notuð við brot á alþjóðalögum. Erlent 3.9.2024 06:26
Bað ísraelsku þjóðina afsökunar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels baðst afsökunar á að hafa ekki beitt sér nægilega fyrir lausn gísla í haldi Hamas á blaðamannafundi fyrr í kvöld. Erlent 3.9.2024 00:19
Verkföllin úrskurðuð ólögleg Dómstóll í Ísrael hefur komist að þeirri niðurstöðu að verkföll þar í landi, sem farið hefur verið í samhliða mótmælum þar sem fjöldi fólks hefur kallað eftir því að gert verði vopnahlé við leiðtoga Hamas í skiptum fyrir þá gísla sem vígamenn samtakanna halda enn, séu ólögleg. Erlent 2.9.2024 13:00
Ben Gurion lokað og ýmis starfsemi lömuð Boðað hefur verið til umfangsmikilla verkfallsaðgerða í Ísrael í dag til að knýja fram vopnahlé við Hamas. Aðgerðir Histadrut, stærsta verkalýðsfélags Ísrael, hófust snemma í morgun og munu hafa víðtæk áhrif. Erlent 2.9.2024 06:31
Fjöldamótmæli gegn Netanjahú vegna gíslanna Mótmælaalda hefur gengið yfir Ísrael eftir að sex gíslar í haldi Hamas fundust látnir. Reiðin beinist einkum að forsætisráðherra Ísraels og boðað hefur verið til allsherjarverkfalls á morgun. Erlent 1.9.2024 20:33
„Gríðarlega krefjandi“ verkefni við hræðilegar aðstæður Kapphlaup við tímann er nú hafið á Gasa, þar sem byrjað er að bólusetja við lömunarveiki. Barnalæknir segir verkefnið gríðarerfitt og að bólusetningarnar einar og sér dugi ekki. Sex gíslar Hamas-samtakanna fundust látnir í hernaðaraðgerð Ísraelsmanna í dag og eru sagðir hafa verið drepnir skömmu áður en herinn náði til þeirra. Erlent 1.9.2024 16:19
Sex gíslar fundust látnir Sex einstaklingar sem voru teknir í gíslingu Hamas 7. október fundust látnir á Gasaströndinni í gær. Ísraelski herinn sagðist hafa fundið líkin í hernaðaraðgerð í neðanjarðargöngum í Rafah. Erlent 1.9.2024 08:39
Láta af átökum í þrjá daga til að greiða fyrir bólusetningum Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir Ísrael og Hamas hafa samþykkt að láta af átökum á Gasa til að greiða fyrir bólusetningu barna gegn mænusótt. Bólusetningar eiga að hefjast á sunnudag. Erlent 30.8.2024 06:41
Aukin spenna vegna aðgerða Ísraelshers á Vesturbakkanum Ísraelsher segist hafa drepið fimm „hryðjuverkamenn“ sem voru „í felum“ á Vesturbakkanum. Aðgerðir Ísraelsmanna hafa meðal annars beinst gegn Tulkarm, þar sem herinn segir mennina hafa falið sig í mosku. Erlent 29.8.2024 10:47
Tíu drepnir í árásum Ísraelshers á Vesturbakkanum Minnst tíu Palestínumenn voru drepnir í áhlaupum og loftárásum ísraelska hersins á Vesturbakkann í nótt. Þetta fullyrðir talsmaður Rauða hálfmánans í Palestínu. Erlent 28.8.2024 06:40
Segjast hafa bjargað gísl úr jarðgöngum á Gasa Ísraelsher segist hafa frelsað karlmann á sextugsaldri sem vígamenn Hamas-samtakanna tóku í gíslingu í október. Manninum var haldið í neðanjarðargöngum á sunnanverðri Gasaströndinni. Erlent 27.8.2024 14:53
Vopnahlésviðræðum lokið án niðurstöðu Viðræðum sem stóðu yfir í síðustu viku um vopnahlé á Gasa er lokið án niðurstöðu. Bandaríkjamenn segjast þó ekki hafa gefist upp og munu halda áfram að eiga samtöl við aðila. Erlent 26.8.2024 08:25
Röð loftárása á Ísrael og Hezbollah-skotmörk í Líbanon Ísrael gerði röð loftárása á suðurhluta Líbanon snemma í morgun. Að sögn yfirvalda var um að ræða fyrirbyggjandi árás á Hezbollah en samtökin gáfu út að þau hefðu sent á loft hundruð eldflauga og dróna til að hefna fyrir morðið á einum æðsta leiðtoga þeirra í síðasta mánuði. Erlent 25.8.2024 12:06
Ítrekaði mikilvægi samkomulags um vopnahlé við Netanjahú Forseti Bandaríkjanna Joe Biden ítrekaði mikilvægi þess að komast að samkomulagi um vopnahlé á Gasa í símtali við forsætisráðherra Ísrael, Benjamín Netanjahú, í dag. Hann sagði viðræðurnar sem eiga að fara fram í Kaíró í Egyptalandi á næstu dögum ákaflega mikilvægar fyrir möguleika á vopnahlé. Sáttasemjarar sem hafa reynt eftir fremsta megni síðustu mánuði að fá Hamas og Ísrael til að komast að samkomulagi munu hittast þar. Erlent 21.8.2024 23:45
Viðræður sagðar stranda á kröfum Hamas um algjört brotthvarf Ísrael frá Gasa Friðarviðræður milli Ísrael og Hamas eru sagðar stranda á kröfum Hamas um að Ísraelar yfirgefi Gasa alfarið, þar sem stjórnvöld í Ísrael eru sögð hafa hafnað kröfunni. Erlent 21.8.2024 06:44
Herinn endurheimti lík sex gísla á Gasa í nótt Ísraelsher endurheimti lík sex gísla í aðgerðum á Gasa í nótt. Fimm gíslanna voru yfir 50 ára gamlir og þrír áttu ættingja sem var sleppt á meðan vopnahléi stóð í nóvember síðastliðnum. Erlent 20.8.2024 08:47
Blinken segir komið að ögurstundu í samningaviðræðunum Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir komið að ögurstundu í friðarviðræðum Ísrael og Hamas og nú sé mögulega lokatækifærið til að semja um lausn gíslanna sem Hamas tóku fanga í árásum sínum 7. október síðastliðinn. Erlent 19.8.2024 07:20
Blinken reynir hvað hann getur Anthony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna er mættur til Ísraels í þeim tilgangi að hefja viðræður um vopnahlé á Gasasvæðinu milli Ísraela og Hamas-samtakanna. Háttsettir félagsmenn Hamas segja hugmyndir um mögulegt vopnahlé á Gasasvæðinu einungis blekkingu. Það er þrátt fréttaflutning af aukinni bjartsýni um að samkomulag náist. Erlent 18.8.2024 10:47
Hamas segir sáttasemjara „selja blekkingar“ Alls létust 18 í loftárás Ísraela á Gasa í dag. Aðeins nokkrum klukkutímum eftir að sáttasemjarar frá Bandaríkjunum, Egyptalandi og Katar luku tveggja daga viðræðum um vopnahlé á Gasa. Unnið hefur verið að samkomulaginu í nokkra mánuði. Erlent 17.8.2024 18:19
Landtökumenn á Vesturbakkanum kveiktu í húsum og bifreiðum Tugir ísraelskra landtökumanna á Vesturbakkanum kveiktu í nótt í húsum og bílum Palestínumanna. Palestínumenn fullyrða að einn hið minnsta hafi verið drepinn í árásinni en árásarmennirnir voru grímuklæddir og hentu bensínsprengjum í þorpinu Jit. Erlent 16.8.2024 07:01