Mette boðar óvænt til kosninga Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur hefur óvænt boðað til þingkosninga í Danmörku þriðjudaginn 24. mars næstkomandi. Erlent 26.2.2026 11:54
Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Rithöfundarnir Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson eru í hópi þeirra þrettán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Eva Rún er tilnefnd fyrir Eldri konur og Jón Kalman fyrir Himintungl yfir heimsins ystu brún en báðar eru þær gefnar út af Benedikti bókaútgáfu. Menning 26.2.2026 11:28
Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Yfirvöld á Norðurlöndunum eru sögð kanna alvarlega hótun sem beinist að orkukerfi allra landanna. Ekki liggur fyrir í hverju hótunin felst en hún er talin stafa frá erlendu ríki. Erlent 26.2.2026 11:16
Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlands hefst í dag, þegar konungurinn lendir í Nuuk klukkan 11.30. Hann mun meðal annars snæða hádegisverð og kvöldverð í húsi Hans Egede, sem er elsta hús landsins, og ræða við íbúa í menningarhúsinu Katuaq. Erlent 18. febrúar 2026 06:48
Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsay Graham er sagður hafa hellt sér yfir Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, formann landsstjórnar Grænlands, á öryggisráðstefnu í Þýskalandi á laugardag. Erlent 17. febrúar 2026 22:16
Stofnaði kökufyrirtæki 21 árs í Köben og fyrstu árin voru erfið „Fyrstu árin voru rosalega erfið,“ segir Ynja Mist Aradóttir, 28 ára stofnandi og framkvæmdastjóri kökufyrirtækisins Bake My Day í Kaupmannahöfn. Hún var rétt liðlega tvítug, nýflutt til Kaupmannahafnar og ótalandi á dönsku þegar hún ákvað að stofna kökufyrirtæki. Upprunalega hugðist hún fara í nám í Kaupmannahöfn en þegar hún komst ekki inn í skólann datt henni í hug að stofna þetta fyrirtæki - sem henni tókst þegar mamma hennar ákvað að taka lán á Íslandi til að hjálpa henni með stofnkostnaðinn. Lífið 16. febrúar 2026 18:01
Telur Trump enn girnast Grænland Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump. Erlent 15. febrúar 2026 07:46
Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Danskir flugmenn flugu í gær fjórum F-35 herþotum hingað til lands og var þotunum lent í Keflavík. Flugmennirnir munu standa í æfingum með sænsku flugsveitinni sem sinnir loftrýmisgæslu hér á landi, auk þess sem þýskar herþotur verða hér einnig. Innlent 14. febrúar 2026 07:56
Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Forsætisráðherra Danmerkur segir Evrópa verði að hervæðast í ljósi þess að Bandaríkjamenn vilji segja skilið við álfuna. Hann ætlar að funda með utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Grænland á stórri öryggisráðstefnu í München. Erlent 13. febrúar 2026 09:10
Fjölga verslunum í Danaveldinu 66°Norður opnaði nýja verslun í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Um er að ræða svokallað archive-verslun þar sem hægt er að festa kaup flíkum frá fyrri vörulínum. Neytendur 12. febrúar 2026 11:27
Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Lögreglan telur sig hafa upprætt alþjóðleg glæpasamtök sem bera ábyrgð á stórum hluta þess kókaíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi á síðustu árum. Meðlimir samtakanna eru taldir hafa skipulagt innflutning á meðan þeir sátu inni á Litla-Hrauni. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi. Innlent 10. febrúar 2026 18:56
Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Tæplega 52 þúsund íslenskir ríkisborgarar, tæp fjórtán prósent þjóðarinnar, voru með skráð lögheimili erlendis í fyrra. Langsamlega flestir þeirra eru búsettir á Norðurlöndunum, 61,7 prósent. Innlent 10. febrúar 2026 10:25
Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Fyrir tveimur árum sléttum tók Vísir viðtal við rithöfundinn Mikael Torfason sem var þá fluttur til Bandaríkjanna eftir að hafa verið búsettur bæði í Vín og Berlín. Hann fór yfir Atlantsála til fyrirheitna landsins. Hann sagðist aldrei ætla að koma aftur til Íslands. Lífið 8. febrúar 2026 07:02
Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Óvenjumikill snjór, á danskan mælikvarða, hefur fallið síðasta sólarhringinn í Danmörku og hefur ríkislögreglustjóri varað íbúa í nokkrum lögregluumdæmum landsins við því að fara út í umferðina nema nauðsyn krefji. Samgöngur hafa verið í uppnámi og nokkuð mikið um umferðaróhöpp vegna snjókomunnar, sem er sú mesta í Kaupmannahöfn í fimmtán ár. Erlent 6. febrúar 2026 10:40
Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Flugvél SAS, sem átti að leggja af stað frá Brussel í Belgíu til Kaupmannahafnar í Danmerkur í gærkvöldi, fór aldrei í loftið eftir að vélin hafnaði í grasi utan brautar eftir tilraun til flugtaks af akbraut en ekki flugbraut. Farþegar voru um borð í vélinni sem var rýmd laust fyrir miðnætti í gærkvöldi og var farþegum útvegað pláss með öðru áætlunarflugi félagsins síðar. Erlent 6. febrúar 2026 08:56
Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Jóakim Danaprins og konan hans María prinsessa ætla að flytja heim til Danmerkur á næsta ári. Parið er búsett í Washington DC í Bandaríkjunum en stefna á flutninga heim þegar samningur Jóakims rennur út í ágúst á næsta ári, en hann starfar við danska sendiráðið í Bandaríkjunum. Lífið 5. febrúar 2026 10:28
Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Aðeins sautján prósent dönsku þjóðarinnar segjast líta á Bandaríkin sem bandalagsríki á meðan um sextíu prósent álíta Bandaríkin vera andstæðing samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Rétt rúm tuttugu prósent voru óviss eða kusu að svara ekki. Niðurstöðurnar þykja verulega sláandi. Erlent 3. febrúar 2026 08:57
Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Danska ríkisstjórnin kynnti á föstudaginn umfangsmiklar breytingar á löggjöf um brottvísanir frá landinu sem stjórnvöld þar í landi hafa boðað. Meðal annars hyggjast stjórnvöld lækka þröskuldinn fyrir brottvísanir frá Danmörku vegna glæpa, enduropna sendiráð sitt í Sýrlandi til að liðka fyrir endursendingum Sýrlendinga þangað og efla fjárhagslega hvata fyrir erlenda ríkisborgara til að snúa aftur til baka. Áformin hafa sætt gagnrýni af hálfu þeirra sem vilja meina að þau standist ekki alþjóðlega sáttmála á borð við Mannréttindasáttmála Evrópu, en dönsk stjórnvöld segjast tilbúin að „taka sénsinn“ til að flýta fyrir breyttri túlkun á mannréttindasáttmálanum. Erlent 2. febrúar 2026 15:27
Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Íslenskt par í Kaupmannahöfn bjó nýverið til leikjavefinn Morgunstund.net vegna eigin leikjaáhuga. Þar er hægt að spila fréttaleik þar sem maður giskar á ártal dagblaða og leik þar sem maður finnur tengingar milli ólíkra orða. Til stendur að bæta fleiri leikjum við. Lífið 2. febrúar 2026 11:28
Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Norska krónprinsessan Mette-Marit viðurkennir að hafa dvalið á heimili Jeffreys Epstein í Palm Beach árið 2016. Hún biðst afsökunar á tengslum sínum við kynferðisafbrotamanninn alræmda en hún er nefnd á nafn nokkur hundruð sinnum í Epstein-skjölunum svokölluðu. Konungur Dana er einnig nefndur í skjölunum og prinsessa Svíþjóðar. Erlent 31. janúar 2026 13:46
Segir Trump ekki reiðan Íslandi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sé ekki reiður Íslandi. Trump talaði nokkrum sinnum í síðustu viku, á tveimur mismunandi dögum, um Ísland. Í einu tilfelli talaði hann um að vegna Íslands væri öðrum leiðtogum í Atlantshafsbandalaginu illa við sig og að Ísland hefði leitt til lækkana á mörkuðum vestanhafs. Erlent 28. janúar 2026 17:40
Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum Danska leik- og söngkonan Annika Wedderkopp er fyrsta konan síðan árið 1999 til að eiga vinsælustu plötu ársins á danska topplistanum. Hún átti jafnframt tólf af hundrað vinsælustu lögum ársins, en eftir að hafa fyrst slegið í gegn á hvíta tjaldinu sem barn er Annika nú á góðri leið með að verða ein stærsta poppstjarna Danmerkur. Lífið 28. janúar 2026 12:56
Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Dönsk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um beinan peningastyrk til barnafjölskyldna, lífeyrisþega, bótaþega og námsmanna sem ætlað er að mæta hækkandi matvöruverði í landinu. Um er að ræða skattfrjálsa einskiptisgreiðslu, svokallaðan „matartékka“, sem nemur tæpum 50 þúsund íslenskum krónum til einstaklinga sem uppfylla skilyrði til greiðslunnar, en tæpar 20 þúsund krónur til námsmanna. Þá standa yfir viðræður milli stjórnmálaflokka um lækkun virðisaukaskatts á matvöru. Erlent 27. janúar 2026 11:40
Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Fjölda flug- og lestarferða hefur verið aflýst í Danmörku í dag og á sumum stöðum um landið er fólk sem það getur hvatt til að vinna heima þar sem það á við vegna snjóstorms sem gengur yfir landið í dag. Snjórinn byrjaði að falla í suðurhluta landsins í morgun en búist er við að veðrið gangi yfir stóran hluta landsins þegar líður á daginn. Erlent 26. janúar 2026 07:46