Bretland
28 29 30 31 32 33 34 35 36 … 128 ›
Spáir snöggri lækkun á fasteignaverði Íslenskur hagfræðingur hjá London School of Economics í Bretlandi segir að fasteignaverð þar og hér á landi geti lækkað mjög snögglega vegna mikilla vaxtahækkana. Nái spár alþjóðlegra fjármálastofnana um samdrátt á næsta ári fram að ganga hefði það mjög fljótlega áhrif á íslenskan efnahag. Erlent 11.10.2022 19:46
JFDR skrifar undir samning við breskt útgáfufyrirtæki Tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir, einnig þekkt sem JFDR var að skrifa undir samning við breska útgáfufyrirtækið Houndstooth. Hún var einnig að gefa út smáskífuna „The Orchid“ en laginu fylgir nýtt myndband. Tónlist 11.10.2022 18:01
Karl III verði krýndur næsta vor Karl III Bretlandskonungur verður krýndur þann 6. maí næstkomandi. Hann hefur sinnt embætti konungs frá andláti móður sinnar Elísabetar II Bretlandsdrottningar í september síðastliðnum. Erlent 11.10.2022 17:57
Breskur hjúkrunarfræðingur grunaður um að hafa myrt sjö ungabörn Réttarhöld eru hafin á Bretlandseyjum yfir hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um að hafa myrt sjö nýfædd börn og reynt að myrða tíu önnur á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Chester. Erlent 11.10.2022 08:16
Átti ekki von á að Snertingu myndi ganga svona vel Eitt stærsta kvikmyndadreifingarfyrirtæki heims hefur keypt réttinn að íslensku kvikmyndinni Snerting. Kaupsamningurinn er sá fyrsti sinnar tegundar hvað íslenska kvikmynd varðar en leikstjórinn segist ekki hafa búist við svo góðum móttökum úr kvikmyndaheiminum. Lífið 9.10.2022 12:30
Eurovision fer fram í Liverpool á næsta ári Breska borgin Liverpool mun hýsa 67. Eurovision-söngvakeppnina fyrir hönd Úkraínu á næsta ári. Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) greindi frá þessu í dag en áður hafði komið fram að valið stæði milli Glasgow og Bítlaborgarinnar. Lífið 7.10.2022 20:08
Þúsundir hafi látist í hitabylgjunum í Bretlandi í sumar Á þriðja þúsund manns, 65 ára og eldri, létust á meðan hitabylgjum í Bretlandi stóð í sumar en alls voru umfram dauðsföll 2.803 talsins í sumar og hefur umfram dánartíðni hjá þessum aldurshóp ekki verið meiri frá árinu 2004. Hátt í fimmtán hundruð umfram dauðsföll voru skráð á einu tímabili í ágúst. Erlent 7.10.2022 10:32
Rússum ekki boðið í nýtt bandalag sem á að stilla saman strengi Evrópuríkja Leiðtogar ríkja Evrópska stjórnmálabandalagsins, sem á ensku nefnist European Political Community, funda í fyrsta skipti í sögu hins nýja bandalags í dag. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í fundinum fyrir hönd Íslands. Innlent 6.10.2022 15:13
Truss lofaði að koma Bretlandi „í gegnum storminn“ Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, reynir nú sitt besta til að fullvissa Breta um að ríkisstjórn hennar standi áfram sterk þrátt fyrir gagnrýni. Í ræðu sinni til Íhaldsmanna í dag sagði Truss að erfiðir dagar væru fram undan en lofaði að „koma Bretlandi í gegnum storminn.“ Erlent 5.10.2022 16:37
Finnst bjór vondur en hefur framleiðslu á „Bale Ale“ Fótboltamaðurinn Gareth Bale hefur sjósett bjórvörumerki í samstarfi við velska bruggverksmiðju. Sölu á bjórnum er ætlað að styrkja grasrótarstarfsemi í velskum fótbolta. Fótbolti 5.10.2022 11:00
Vardy þarf að greiða Rooney tæpar 250 milljónir í málskostnað Rebekah Vardy, eiginkona knattspyrnumannsins Jamie Vardy, mun þurfa að borga Coleen Rooney, eiginkonu fyrrverandi knattspyrnumannsins Wayne Rooney, um 1,5 milljón punda eftir að hafa tapað meiðyrðamáli gegn hinni síðarnefndu á dögunum. Fótbolti 4.10.2022 21:30
Talinn hafa svívirt lík rúmlega hundrað kvenna og stúlkna David Fuller, breskur rafvirki sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi í fyrra fyrir að myrða tvær konur árið 1987 og hefur játað að hafa svívirt 78 lík, hefur verið ákærður fyrir sextán brot til viðbótar. Erlent 4.10.2022 14:50
Skammast sín ekki fyrir að skipta um skoðun Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, segist ekki skammast sín fyrir að hafa dregið umdeilda tekjuskattslækkun til baka en hún hafi tekið ákvörðunina mjög fljótlega þar sem skattalækkunin hafi verið að draga athygli frá öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hún sætir nú gagnrýni úr öllum áttum, þar á meðal innan raða eigin flokks. Erlent 4.10.2022 13:55
Skráðu sig í maraþon í tilvistarkreppu Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir og unnusti hennar Hannes Halldórsson fengu tilvistarkreppu í kjölfar þrjátíu ára aldursársins og skráðu sig í maraþon í London. Þetta var þeirra fyrsta maraþon og voru þau haltrandi um London að jafna sig eftir átökin þegar Vísir náði tali af þeim. Lífið 4.10.2022 09:31
Draga umdeilda tekjuskattslækkun til baka Kwasi Kwarteng, fjármálaráðherra Bretlands, staðfesti við BBC í morgun að ríkisstjórnin hygðist falla frá áætlunum um að afnema 45 prósenta tekjuskattsþrepið. Erlent 3.10.2022 07:21
Konungurinn heldur sig heima eftir ráðleggingar forsætisráðherrans Karl Bretlandskonungur mun ekki sækja loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP27, sem fram fer í Egyptalandi í næsta mánuði. Ástæðan er sú að forsætisráðherra Bretlands ráðlagði honum að fara ekki. Erlent 2.10.2022 16:28
Nýtt útlit mynta með andliti Karls III lítur dagsins ljós Útlit nýrra mynta sem munu bera andlit Karls III Bretlandskonungs hefur verið afhjúpað af konunglegu myntsláttunni. Karl er sagður vera hæstánægður með útkomuna á útliti eigin vangasvips. Myntin er hönnuð út frá ljósmynd af konungi. Viðskipti erlent 30.9.2022 22:52
Liz Truss gefur ekkert eftir varðandi skattalækkanir Liz Truss forsætisráðherra Bretlands varði í dag nýlegar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem meðal annars fela í sér miklar skattalækkanir á hina efnameiri. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við stefnunni og áhrifum hennar á alþjóðlega markaði og hvatti bresku stjórnina í vikunni til að draga þær til baka. Erlent 29.9.2022 19:41
Drottningin lést úr elli Elísabet II. Bretlandsdrottning lést úr elli, 96 ára að aldri. Dánarvottorð hennar var gefið út í dag. Erlent 29.9.2022 13:35
Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri við vél frá Koreanair á flugvellinum Heathrow í London í í kringum klukkan átta í kvöld. Enginn slasaðist og engar tafir eru á flugum til og frá flugvellinum. Innlent 28.9.2022 21:11
Staðan í Evrópu helsta ógnin við íslenskan efnahag Íslensku efnahagslífi stafar helst ógn af mikilli óvissu í alþjóðamálum. Seðlabankastjóri telur að vaxtahækkanir og aðrar aðgerðir Seðlabankans séu farnar að skila árangri. Horft verði til þess við ákvörðun vaxta í næstu viku. Innlent 28.9.2022 19:22
Rússneskur keppinautur Facebook fjarlægður úr AppStore Apple hefur fjarlægt rússneska samfélagsmiðilinn VK úr AppStore í kjölfar nýjustu uppfærslu breskra refsiaðgerða gagnvart Rússum. Viðskipti erlent 28.9.2022 12:26
Hvetja bresk stjórnvöld til að endurskoða skattalækkunaráform Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur bresku ríkisstjórnina til að endurskoða áform sín um stórfelldar skattalækkanir. Hagfræðingar sjóðsins vara við því að aðgerðin verði eldsneyti á frekara verðbólgubál og magni upp ójöfnuð. Erlent 28.9.2022 08:54
Glasgow og Liverpool keppast um að halda Eurovision Borgirnar Glasgow og Liverpool í Bretlandi standa nú tvær eftir í keppninni um að halda Eurovision. Samkvæmt The BBC voru þær borgir með bestu tilboðin fyrir viðburðarhaldið. Bretland var valið til þess að halda keppnina í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu, sem sigraði Eurovision. Lífið 27.9.2022 16:01
Ný gögn sýni að bresk stjórnvöld hafi greitt leið Sáda í enska boltann Ný gögn sýna fram á að ráðherra í ríkisstjórn Boris Johnson, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, hafi beitt sér fyrir því að hópur frá Sádí-Arabíu hafi getað fest kaup á enska knattspyrnufélaginu Newcastle United. Kaupin hafa sætt gagnrýni þar sem þau eru sögð hluti af stefnu sadískra yfirvalda til að hreinsa sig af mannréttindabrotum. Enski boltinn 27.9.2022 13:00
Nýtt konungsmerki Karls III afhjúpað Nú eftir andlát Elísabetar II Bretlandsdrottningar breytist ýmislegt til þess að marka komu nýs konungs. Til dæmis verða breytingar gerðar á útliti pundsins og nýtt konunglegt merki sem prýðir til dæmis póstkassa og byggingar verður tekið í notkun. Merki Karls III Bretlandskonungs var kynnt í gær. Erlent 27.9.2022 11:58
Skrúfað fyrir húsnæðislán og búist við miklum vaxtahækkunum Húsnæðislánafyrirtæki í Bretlandi hafa brugðist við efnahagsaðgerðum bresku ríkisstjórnarinnar með því að hætta tímabundið útlánum eða með því að fækka lánamöguleikum. Reiknað er með að Englandsbanki hækki meginvexti sína og að þeir verði jafnvel komnir í sex prósentustig á næsta ári. Erlent 27.9.2022 11:45
Bæði Karl og Elísabet munu prýða breska mynt Mynt með andlitsmynd Karls Bretakonungs mun fara í umferð en mynt með andlitsmynd Elísabetar heitinnar Bretadrottningu verður einnig lögmætur gjaldmiðill. Þetta er í fyrsta sinn í rúm fimmtíu ár sem mynt með andliti bæði drottningar og konungs verða í umferð á sama tíma. Erlent 27.9.2022 08:26
Pundið ekki verið veikara gegn dal í fimmtíu ár Sterlingspundið hefur hríðfallið gagnvart Bandaríkjadalnum og hefur ekki verið lægra í fimmtíu ár. Fjármálaráðherra Bretlands hefur boðað skattaívilnanir og 45 milljarða punda aðgerðarpakka. Stjórnarandstaðan kallar eftir svörum frá ríkisstjórninni um hvernig bregðast eigi við en hagfræðingar segja ríkisstjórnina við það að missa allan trúverðugleika. Viðskipti erlent 26.9.2022 09:18
Forsætisráðherra Bretlands eyddi hundruðum þúsunda af opinberu fé í Norwich City Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, mætir nú harðri gagnrýni heima fyrir eftir að upp komst að hún eyddi opinberu fé breska ríkisins til að versla varning í netverslun Norwich City, knattspyrnufélagsins sem Truss styður á Englandi. Fótbolti 24.9.2022 11:14