Stjórnsýsla „
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 59 ›
„Sjókvíaeldisskrímslin“ hafa yfirtekið Fífudalsá Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur segist orðinn þreyttur á undanbrögðum yfirvalda. Niðurstöður ferðar hans í Arnarfjörð séu sláandi. Innlent 21.9.2023 16:04
Segir Svandísi beita ríkisstofnunum sem pólitískum einkaherdeildum Formaður Miðflokksins sakar matvælaráðherra um að beita ríkisstofnunum sem pólitískum einkaherdeildum sínum. Ráðherra segist einungis hafa viljað flýta fyrir auknu gagnsæi sjávarútvegarins. Viðskipti innlent 21.9.2023 11:50
Samningur við matvælaráðuneytið tilraun SKE til að bregðast við fjárskorti Forstjóri Samkeppniseftirlitsins, SKE, segir það una úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að dagsektir sem eftirlitið lagði á Brim hf. hafi verið ólögmætar. Hann segir forsendur fyrir samningi við matvælaráðuneytið brostnar og málið birtingarmynd fjársveltingar. Viðskipti innlent 21.9.2023 10:17
Hreinn hættur og Björg Ásta ráðin aðstoðarmaður Björg Ásta Þórðardóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra. Hún tekur við af Hreini Loftssyni, sem hefur látið af störfum. Innlent 21.9.2023 10:07
Enginn sportveiðimaður og fullviss um stuðning Íslendinga Kristján Loftsson, forstjóri og stærsti eigandinn í Hval hf., er sannfærður um að íslenskt samfélag standi með honum í baráttunni fyrir áframhaldandi hvalveiðum. Ekki megi taka hvalveiðar út fyrir sviga heldur þurfi að skoða hlutina í samhengi. Jafnvel kíkja í sláturhúsin til samanburðar. Hann kann vel að meta gott hvalkjöt en er enginn sportveiðimaður enda fari hann aldrei til veiða. Innlent 20.9.2023 15:02
Vill hætta samstarfi við matvælaráðuneytið Forstjóri Brims hf. fagnar úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að dagsektir samkeppniseftirlitsins hafi verið ólögmætar. Samkeppniseftirlitið telur forsendur fyrir umdeildum samningi við matvælaráðuneytið brostnar. Viðskipti innlent 20.9.2023 11:50
Erlendir blaðamenn mitt í sjókvíaeldishamförum á Íslandi Í kvöld fer fram bókakynning á Nordica þar sem vakin er athygli á útgáfu bókarinnar The New Fish eftir Norðmennina Simen Saetre og Kjetil Ostli. Hópur erlendra blaðamanna lenti óvænt í miðju sjókvíaeldishamfara – mestu krísu sem fiskeldisfyrirtækin og reyndar íslenski laxinn hafa staðið frammi fyrir. Innlent 19.9.2023 15:21
MAST fer fram á opinbera rannsókn vegna strokulaxa Matvælastofnun hefur óskað eftir því að opinber rannsókn fari fram vegna brota Artic Sea Farm ehf á lögum um fiskeldi. Innlent 19.9.2023 13:55
Undirskriftalistinn endi sennilega í ruslatunnu ráðherra Formaður Skólafélags MA segist óttast að tæplega fimm þúsund undirskriftir, sem safnað var gegn fyrirhugaðri sameiningu skólans við Verkmenntaskólann á Akureyri, endi í ruslinu eftir að hafa verið afhentar ráðherra í dag. Nemendur finna fyrir miklum stuðningi við málstað sinn. Innlent 16.9.2023 13:11
Greinargerðin birt á vef Alþingis og mál forsætisnefndar fellt niður Greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol var birt í gær á vef Alþingis. Forseti Alþingis neitaði mánuðum saman að birta hana. Þingflokksformaður Pírata gerði það í sumar. Forsætisnefnd hefur því mál tengd greinargerðinni ekki lengur til skoðunar. Innlent 16.9.2023 09:04
Ágúst skipaður forstöðumaður Lands og skógar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að skipa Ágúst Sigurðsson sem forstöðumann Lands og skógar, nýrrar stofnunar sem verður til við sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar. Innlent 15.9.2023 14:51
Listasafnið mögulega í gamla Landsbankahúsið Ríkisstjórnin hyggst kanna fýsileika þess að gera breytingar á húsnæði opinberra stofnanna. Það sem er til skoðunar er meðal annars að Listasafn Íslands flytji í gamla Landsbankahúsið, að Hæstiréttur fari í Safnahúsið og að húsnæði Hæstaréttar geti nýst fyrir Landsrétt. Forsætisráðherra kveðst bjartsýn á mögulegar breytingar á stjórnarskrá. Innlent 15.9.2023 12:04
Settur forstjóri segir upp fjórum starfsmönnum Fjórum starfsmönnum Ríkiskaupa var sagt upp störfum á föstudag í síðustu viku. Settur forstjóri stofnunarinnar segir uppsagnirnar komnar til af rekstrarlegum ástæðum. Viðskipti innlent 14.9.2023 13:40
„Það er ekki endalaust til, háttvirtur þingmaður“ Formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina setja velferðina á ís með nýju fjárlagafrumvarpi. Fjármálaráðherra segir hana tala með óábyrgum hætti um opinber fjármál. Innlent 14.9.2023 11:37
Ný stjórn Bankasýslu en ráðherra vill leggja hana niður Nýskipaðir stjórnarmenn Bankasýslunnar hafa aldrei setið í henni áður. Formaður nýrrar stjórnar er Tryggvi Pálsson en ásamt honum sitja Þóra Hallgrímsdóttir og Þórir Haraldsson í stjórninni. Til stendur að leggja Bankasýsluna niður á næsta ári. Innlent 8.9.2023 18:00
Gylfi lætur af störfum sem forstjóri Gylfi Ólafsson hefur látið af störfum sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Hann hefur gegnt stöðunni síðan í júlí árið 2018 og hefur lokið fimm ára skipunartíma. Innlent 8.9.2023 14:24
Umboðsmaður sendir Ásmundi bréf vegna sameiningar Umboðsmaður barna hefur sent Ásmundi Einari Daðasyni, mennta-og barnamálaráðherra bréf vegna sameiningar Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar. Óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um það hvort mat hafi verið lagt á bestu hagsmuni barna og hvort nemendur hafi fengið að koma sjónarmiðum á framfæri. Innlent 8.9.2023 13:01
Ófremdarástand í skilum ársreikninga Ríkisendurskoðun segir að ófremdarástand ríki í skilum ársreikninga sjóða og stofnana fyrir árið 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Einungis 148 aðilar hafa uppfyllt skilaskyldu sína, eða um 22 prósent sjóða og stofnana. Þetta er litið alvarlegum augum. Viðskipti innlent 8.9.2023 10:36
„Stjórnsýsla Íslands er lítil“ Fjallað var um umfang stjórnarráðsins á Íslandi í fjölmiðlum á dögunum og ekki sízt þá staðreynd að samanlagt störfuðu rúmlega 700 manns í ráðuneytum landsins. Skoðun 7.9.2023 12:01
Sjokkeraðir nemendur MA boða til mótmæla á Ráðhústorgi Nemendafélag Menntaskólans á Akureyri hefur boðað til mótmæla á Ráðhústorgi bæjarins í dag vegna mögulegrar sameiningar skólans og Verkmenntaskólans á Akureyri. Forseti nemendafélags MA segir nemendur í sjokki eftir fund með ráðherra í gær og óttast að rótgrónar hefðir innans skólans glatist með sameiningu. Innlent 6.9.2023 11:44
Nefnd sem hefur „eftirlit með eftirlitinu“ ekki starfrækt frá árinu 2020 Ráðgjafarnefnd um eftirlitsreglur hefur ekki verið starfandi frá árinu 2020. „Samkvæmt lögum um opinberar eftirlitsreglur, sem sett voru árið 1999, á þessi nefnd að hafa eftirlit með eftirlitinu,“ segir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Innherji 5.9.2023 13:04
Áfram forstjóri á meðan framtíðarfyrirkomulag innkaupamála er skoðað Setningartími Söru Lindar Guðbergsdóttur sem settur forstjóri Ríkiskaupa hefur verið framlengdur til áramóta. Vinna fer nú fram innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins um framtíðarskipulag umgjarðar innkaupamála hjá ríkinu. Innlent 5.9.2023 10:42
Mútumálið á Selfossi komið á borð héraðssaksóknara Héraðssaksóknari hefur boðað Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúa í Árborg í skýrslutöku vegna frétta af mögulegu mútubroti Leós Árnasonar fjárfestis. Tómas Ellert greindi frá því að Leó hafi boðið honum fjáhagslega aðstoð í næstu kosningum gegn því að hann stuðlaði að því að sveitarfélagið félli frá kaupum á húsi Landsbankans á Selfossi. Innlent 4.9.2023 18:22
Sakar eiganda fasteignafélags um að reyna að kaupa greiða Fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg sakar forsvarsmann fasteignafélagsins Sigtúns um að hafa boðist til þess að greiða fyrir kosningabaráttu flokksins gegn því að hann legðist gegn því að sveitarfélagið keypti hús Landsbankans á Selfossi. Innlent 1.9.2023 09:12
Svara ekki hvort starfsfólki ráðuneyta fækki Óvíst er hvort að starfsfólki ráðuneyta fækki í niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Rúmlega 700 manns starfa nú í ráðuneytunum, sem hafa aldrei verið fleiri og allir ráðherrar komnir með tvo aðstoðarmenn. Innlent 30.8.2023 14:32
Má ekki heita Annamaría Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um leyfi til að heita Annamaría að eiginnafni. Nefndin hefur hins vegar samþykkt eiginnöfnin Konstantín, Özur, Aðaley og fleiri. Innlent 30.8.2023 13:15
Skertur opnunartími sundlauga í Árborg tekur gildi Opnunartími Sundhallar Selfoss styttist á föstudaginn þegar aðhaldsaðgerðir sveitarstjórnar Árborgar taka gildi. Sundlaugin á Stokkseyri verður lokuð frá nóvember til mars. Formaður bæjarráðs segist skilja vel að íbúar Árborgar hafi misjafnar skoðanir á aðgerðunum. Innlent 30.8.2023 11:08
Leggja til auðlindaákvæði í stjórnarskrá og fínpússun á veiðigjaldi Kvótakerfinu verður viðhaldið og veiðigjald verður að miklu leyti óbreytt fari stjórnvöld að tillögum starfshóps sem matvælaráðherra fól að gaumgæfa stöðu sjávarútvegarins. Hópurinn leggur til að sameign þjóðarinnar á fiskveiðiauðlindinni verði lögfest í stjórnarskrá. Innlent 29.8.2023 13:16
DiCaprio hvetur Ísland til að banna hvalveiðar alfarið Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag. Erlent 29.8.2023 09:02
Tvær sóttu um forstjórastöðuna hjá Geislavörnum Tvær sóttu um embætti forstjóra Geislavarna ríkisins sem auglýst var laust til umsóknar í byrjun ágúst síðastliðinn. Innlent 25.8.2023 14:19