Hemjum hamfarahamingjuna Í þriðja sinn á rúmum tveimur árum gýs nú á Reykjanesskaganum. Í þriðja sinn erum við tiltölulega heppin því hvorki er um að ræða mikið gosútfall sem ógnar flugi til og frá landinu eða veldur slæmu öskufalli í grennd gossins, né er gosið staðsett þannig eða af þeirri stærðargræðu að það ógni innviðum og íbúðabyggð. Skoðun 13. júlí 2023 15:01
Loka gönguleiðinni að gosstöðvunum Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um loka Meradalaleið upp að gosstöðvunum til laugardags hið minnsta. Um er að ræða einu leiðina sem göngufólki hefur verið leyft að ganga að gosinu við Litla-Hrút. Allar gönguleiðir eru því lokaðar inn á svæðið. Innlent 13. júlí 2023 10:19
Segir Hraunssels-Vatnsfell með aðgengilegasta útsýnið Almannarvarnir hófu strax í gærkvöldi að stika leið til að beina ferðafólki með sem öruggustum hætti að gosstöðvunum. Formaður Landsbjargar segir að illa hafi gengið á fá björgunarsveitafólk til starfa úr sumarfríi. Innlent 12. júlí 2023 23:35
Fólk hætti sér með ung börn í gegnum reykjarmökkinn Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að eldgosinu á Reykjanesi í dag í ágætu veðri en mjög erfiðum aðstæðum vegna mikils reyks frá gróðureldum. Dæmi eru um að foreldrar gangi með ung börn á bakinu í gegnum reykmökkinn til að komast að gosinu. Innlent 12. júlí 2023 20:34
Hættu sér upp á sjóðheitt hraunið: „Leggja líf sitt í hættu til að ná einhverju svona skoti“ Hjartaskurðlæknir fékk hland fyrir hjartað í gær þegar hann sá tvo erlenda ferðamenn ganga upp á nýjan hraunhól við Litla-Hrút þar sem skömmu áður var sprunga og glóandi hraun. Innlent 12. júlí 2023 19:22
Nóróveirur grassera í skemmtiferðaskipunum Skæðir nóróveirufaraldrar hafa ítrekað komið upp á skemmtiferðaskipum í ár. Nú síðast í skipi sem sigldi frá Íslandi til New York. Innlent 12. júlí 2023 16:50
Öryggi og velferð í Uppsveitum Sem íbúi í Uppsveitum Árnessýslu er ég mjög hugsi þessa dagana varðandi öryggi og velferð okkar hér í því samfélagi sem við búum og störfum í. Skoðun 12. júlí 2023 15:31
Landverðir verði að standa vaktina við eldgosið Dómsmálaráðherra mun kalla eftir því að landverðir standi vaktina á gosstöðvunum við Litla-Hrút til að létta undir með björgunarsveitum. Ekki sé annað hægt en að stjórnvöld stígi inn í verkefnið með einhverjum hætti. Innlent 12. júlí 2023 12:19
Met í komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar Algengt er að ferðamenn sem heimsækja Ísafjörð á góðum degi séu nærri tvöfalt fleiri en fólkið sem býr í bænum. Stærstu skemmtiferðaskipin hafa þó afbókað komu sína á þessu sumri vegna tafa á stækkun Sundahafnar. Innlent 11. júlí 2023 20:22
Igor og Wojciech fyrstu ferðamennirnir að gosinu Það má segja að Pólverjarnir Igor og Wojciech séu lukkunnar pamfílar. Þeir eru fyrstu ferðamennirnir sem hleypt var inn á svæðið við gosstöðvarnar á Reykjanesi. Innlent 11. júlí 2023 16:50
„Jörðin hérna gengur bara eins og alda á sjó“ Þegar jarðskjálftar sem eiga upptök sín nálægt Kleifarvatni ganga yfir í Seltúni í Krýsuvík, þá gengur jörðin hreinlega í bylgjum. Afleiðingarnar eru grjóthrun og tómar hillur. En það sem er ívið verra að sögn landvarðar, eru klósettmálin. Innlent 11. júlí 2023 07:00
Hreiðar hyggst setja hótelbyggingu á fullt Hreiðar Hermannsson, eigandi Orustustaða í Skaftárhreppi, segir að framkvæmdir við tíu milljarða króna hótel á jörðinni fari núna fullt en hann hafði betur í dómsmáli um vegtengingu fyrir helgi. Hann vonast til að hótelið verði opnað eftir átján til tuttugu mánuði. Innlent 10. júlí 2023 23:16
Sefur í bílnum þar til hann fær að sjá gosið Eldgos er enn hafið á Reykjanesskaga, þriðja árið í röð. Áhugi fólks á því að berja náttúruöflin augum virðist þó lítið hafa dvínað. Fréttastofa ræddi við fólk sem var mætt að Keilisafleggjaranum út af Reykjanesbraut í kvöld, en lögregla lokaði veginum fljótlega eftir að gos hófst. Einhverjir héldu þó í vonina um að svæðið yrði opnað síðar í kvöld. Innlent 10. júlí 2023 20:33
Metár í fjölda ferðamanna handan við hornið Ferðamálastjóri segir að metár í fjölda ferðamanna hérlendis verði líklega slegið á næsta ári. Fjöldi brottfara erlendra ferðamanna frá Íslandi í júní síðastliðnum voru um 233 þúsund sem er álíka mikið og metárið 2018. Innlent 10. júlí 2023 13:09
Afmyndun þjóðarsálar Áhugi minn á tilvonandi eldgosi hefur verið yfirstiginn af áhuga mínum á umræðunni í kringum það. Um leið og við byrjum að finna fyrir skjálftahrinum og förum að vænta eftir gosi er það fyrsta sem við viljum vita ekki hvort það muni koma til með að hafa áhrif á loftgæði, búskap eða almenn lífsskilyrði - heldur hvort það verði til þess fallið að auka streymi ferðamanna hingað til lands. Hvenær var þetta falska samasemmerki dregið milli ferðaþjónustunnar og almannahagsmuna? Skoðun 10. júlí 2023 11:31
Ferðmannastraumurinn í júní sambærilegur við metárið 2018 Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurvöll voru um 233 þúsund í júní síðastliðnum en um er að ræða álíka margar brottfarir og í júní 2018, sem var metár. Innlent 10. júlí 2023 09:23
Hópur manna reyndi að synda í Reynisfjöru Hópur manna sást í gær stinga sér til sunds í Reynisfjöru þar sem sterkir hafstraumar hafa áður stefnt lífi margra erlendra ferðamanna í hættu. Mönnunum virtist ekki hafa orðið meint af en fimm banaslys hafa orðið í fjörunni á síðustu sex árum. Innlent 10. júlí 2023 07:00
Rúta festist í miðri á Rúta með um það bil tuttugu ferðamönnum festist í vaði ár á hálendinu í kvöld. Svo virðist vera sem rútan hafi bilað í miðri ánni. Hvorki tókst koma rútunni í gang né að losa hana úr ánni. Innlent 8. júlí 2023 21:10
Vestmanneyingar velkomnir í Grímsey að redda sér lunda Grímseyingar segja skýr merki þess að lunda hafi fjölgað í eynni. Svo mikið er þar af lunda að von er á hópum Vestmanneyinga norður til að redda eigin lundaballi. Innlent 8. júlí 2023 20:26
Kærastinn sleit sambandinu í komusalnum á Keflavíkurflugvelli og Íslandsferðin tók óvænta stefnu „Þegar fimmtugsafmælið mitt nálgaðist árið 2020 hélt ég af stað í rómantíska ferð til Íslands ásamt kærastanum mínum. Við lentum, og síðan sagði mér hann mér upp í komusalnum á flugvellinum.“ Lífið 8. júlí 2023 10:32
Hreiðar hafði betur í deilu um veg að Orustustöðum Hreiðar Hermannsson, eigandi jarðarinnar Orustustaða í Skaftárhreppi, hafði betur í dómsmáli sem tveir eigendur nágrannajarðarinnar Hraunbóls/Sléttabóls 2 höfðuðu til að meina honum að nota og endurbæta vegslóða sem liggur að Orustustöðum um land Hraunbóls. Lögregla hefur ítrekað verið kölluð til vegna þessara nágrannadeilna og hafa þær sett áform Hreiðars um tíu milljarða króna hótelbyggingu í uppnám. Innlent 7. júlí 2023 23:20
Svifið ofan úr Kömbunum á ógnarhraða Kílómetralöng sviflína í Hveragerði verður formlega opnuð gestum á morgun. Fréttastofan tók forskot á sæluna í dag og kynnti sér þessa nýjung í afþreyingu á Suðurlandi. Lífið 6. júlí 2023 19:24
Eldgos muni ekki fjölga ferðamönnum í sumar Forstöðumaður markaðssamskiptasviðs Íslandsstofu segir að eldgos eigi ekki eftir að hafa mikil áhrif á komu ferðamanna til skemmri tíma. Ekki sé mikið um laus hótelherbergi og erfitt væri að finna flugsæti. Til lengri tíma litið hafi eldgos þó góð áhrif á ímynd Íslands. Innlent 6. júlí 2023 10:35
Sætanýtingin 86 prósent en stundvísin undir markmiðum Heildarfjöldi farþega Icelandair var 519 þúsund í nýliðnum júnímánuði, 20 prósent fleiri en í júní í fyrra þegar farþegar voru 431 þúsund. Samtals hafa 1,8 milljónir farþega ferðast með félaginu á fyrri helmingi ársins, 31 prósent fleiri en á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 6. júlí 2023 09:00
Íslendingar kvarti en ferðamönnum sé nokkuð sama Hótelrekendur eru alsælir með sumarið fram að þessu og ánægðir með að hafa náð vopnum sínum á ný eftir erfiðan heimsfaraldur. Fjöldi gistinátta í maí sló öll fyrri met samkvæmt tölum Hagstofunnar og Hagfræðideild Landsbankans spáir því að fjöldi erlendra ferðamanna geti náð yfir 2,1 milljón í ár. Gangi sú spá eftir mun 2023 taka við af árinu 2019 sem næst stærsta ferðamannaár Íslandssögunnar. Viðskipti innlent 6. júlí 2023 06:01
Mátulegt „túristagos“ gott fyrir krónuna og verðbólguna „Ferðaþjónustan er orðin mjög mikilvæg atvinnugrein og hjálpar okkur sannarlega í baráttunni við verðbólguna,“ segir Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi um möguleg áhrif elgoss á stöðu efnahagsmála. Innlent 5. júlí 2023 12:02
Ferðamenn á svæðinu mesta áhyggjuefnið „Við ýtum bara á takka sem heitir copy/paste,“ segir Bogi Adolfsson formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í samtali við Vísi um viðbrögð sveitarinnar við jarðhræringum á Reykjanesskaga. Fjöldi ferðamanna hefur verið á svæðinu frá síðasta eldgosi, sem Bogi segir mesta áhyggjuefnið. Innlent 5. júlí 2023 10:36
Hollenskir túristar gapandi hissa á snjókomu í júlí Túristar á Norðurlandi voru heldur betur hissa þegar það byrjaði að snjóa á þau í dag. Leiðsögumaður sem er í hringferð með túristana segir að þeir hafi verið kátir þrátt fyrir að þeir hafi þurft að klæða sig í öll fötin sín. Veður 4. júlí 2023 16:55
Náði að bjarga öllu nema eigin tannbursta Vegfarandi á Þingvöllum sem varð vitni að því þegar eldur kviknaði í farþegarútu segir að ótrúlega mildi að enginn hafi slasast í eldinum. Bílstjórinn hafi verið snar í snúningum og tekist að bjarga öllu sem hægt var að bjarga nema eigin tannbursta. Innlent 4. júlí 2023 14:26
Rúta brann við Þingvallavatn Eldur kom upp í rútu Viking bus á Gjábakkavegi austan við Þingvallavatn á ellefta tímanum í morgun. Að sögn Péturs Péturssonar, slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu, gengu slökkvistörf vel. Innlent 4. júlí 2023 12:49