Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Aðeins sautján prósent dönsku þjóðarinnar segjast líta á Bandaríkin sem bandalagsríki á meðan um sextíu prósent álíta Bandaríkin vera andstæðing samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Rétt rúm tuttugu prósent voru óviss eða kusu að svara ekki. Niðurstöðurnar þykja verulega sláandi. Erlent 3.2.2026 08:57
Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Danska ríkisstjórnin kynnti á föstudaginn umfangsmiklar breytingar á löggjöf um brottvísanir frá landinu sem stjórnvöld þar í landi hafa boðað. Meðal annars hyggjast stjórnvöld lækka þröskuldinn fyrir brottvísanir frá Danmörku vegna glæpa, enduropna sendiráð sitt í Sýrlandi til að liðka fyrir endursendingum Sýrlendinga þangað og efla fjárhagslega hvata fyrir erlenda ríkisborgara til að snúa aftur til baka. Áformin hafa sætt gagnrýni af hálfu þeirra sem vilja meina að þau standist ekki alþjóðlega sáttmála á borð við Mannréttindasáttmála Evrópu, en dönsk stjórnvöld segjast tilbúin að „taka sénsinn“ til að flýta fyrir breyttri túlkun á mannréttindasáttmálanum. Erlent 2.2.2026 15:27
Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Íslenskt par í Kaupmannahöfn bjó nýverið til leikjavefinn Morgunstund.net vegna eigin leikjaáhuga. Þar er hægt að spila fréttaleik þar sem maður giskar á ártal dagblaða og leik þar sem maður finnur tengingar milli ólíkra orða. Til stendur að bæta fleiri leikjum við. Lífið 2.2.2026 11:28
Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Of snemmt er að segja til um hvort viðræður Bandaríkjaforseta og framkvæmdastjóra NATO séu jákvætt skref í samskiptum Bandaríkjanna við Danmörku og Grænland á meðan lítið er vitað um innihald rammasamkomulagsins, að sögn utanríkisráðherra. Innlent 22. janúar 2026 18:09
Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Formaður landsstjórnar Grænlands segist lítið vita um innihald rammasamkomulags Bandaríkjaforseta og framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO). Viðræður þeirra hafa leitt til stiglækkunar í samskiptum Bandaríkjanna við Grænland, Danmörku og önnur bandalagsríki í Evrópu. Erlent 22. janúar 2026 17:11
Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Þremur her- og varðskipum hefur verið siglt í höfn í Reykjavík í dag. Tvö skipanna eru frá Danmörku og það þriðja frá Frakklandi. Innlent 22. janúar 2026 14:02
Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Mikil óvissa ríkir varðandi meint samkomulag sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerðu í gær. Óljóst er um hvað þeir sömdu eða hvort þeir sömdu um eitthvað yfir höfuð. Erlent 22. janúar 2026 12:18
Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ítrekar að Danir og Grænlendingar séu þeir einu sem geti tekið ákvarðanir um mál sem varða Danmörku og Grænland. Dönsk stjórnvöld séu í þéttu sambandi við Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, sem sé fullmeðvitaður um afstöðu danska konungsríkisins en það sé gott og fullkomlega eðlilegt að framkvæmdastjóri bandalagsins ræði öryggi á Norðurslóðum við Bandaríkjaforseta. Þá fullyrðir varnarmálaráðherra Danmerkur að Rutte hafi ekki samið við Trump fyrir hönd landsins. Erlent 22. janúar 2026 08:41
Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Drög að samkomulagi Bandaríkjastjórnar við Atlantshafsbandalagið veitir Bandaríkjunum og bandalagsþjóðum í Evrópu aðgang að réttindum til jarðefnavinnslu í Grænlandi. Þá munu ríki vinna saman að þróun svokallaðrar Gullhvelfingar sem er viðurnefni á loftvarnarkerfi sem Trump vill að spanni hnöttinn og notist við gervihnetti. Erlent 22. janúar 2026 00:12
Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Mikil spenna hefur ríkt milli Bandaríkjanna og ríkja Evrópu vegna ásælni Trumps í Grænland og var ræðu hans á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins því beðið með mikilli eftirvæntingu í dag. Þar sagðist hann verða að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ en nokkrum tímum síðar mátti greina meiri sáttatón hjá Bandaríkjaforseta. Erlent 21. janúar 2026 09:39
Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Flugvél forseta Bandaríkjanna, Air Force One, var snúið við skömmu eftir flugtak í nótt eftir „lítilsháttar rafmagnsbilun“. Vélin var á leið til Davos í Sviss með Donald Trump innanborðs en hann skipti um vél skömmu eftir lendingu og engar fregnir hafa borist af því að töfin muni hafa áhrif á dagskrá World Economic Forum í dag. Erlent 21. janúar 2026 06:52
Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Grænlendingar eru að ganga í gegnum erfiða tíma en ólíklegt er að Bandaríkjamenn muni beita hervaldi til að leggja Grænland undir sig. Þjóðin þarf þó að vera undirbúin fyrir hvað sem er, í samvinnu við Dani, Evrópusambandið og aðra bandamenn. Erlent 20. janúar 2026 14:19
Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt áfram ögrunum sínum í nótt og birti nú í morgunsárið mynd af sér, JD Vance varaforseta og Marco Rubio utanríkisráðherra að nema land á Grænlandi. Erlent 20. janúar 2026 06:29
Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, vonast til þess að ásælni Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi leiði af sér samning milli Grænlands og Bandaríkjanna sem eigi eftir að þoka Grænlendingum nær sjálfstæði. Allt sem Trump vilji fá frá Grænlandi hafi staðið Bandaríkjamönnum til boða áratugum saman. Erlent 19. janúar 2026 20:34
Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Donald Trump Bandaríkjaforseti tjáði sig um Grænland á samfélagsmiðli sínum Truth Social í morgun, eftir óvenjulanga þögn. Evrópuleiðtogar réðu ráðum sínum í gær og munu funda áfram í vikunni um viðbrögð við hótunum Trump um viðbótartolla á átta Evrópuríki. Erlent 19. janúar 2026 06:38
Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Lífið í Nuuk höfuðborg Grænlands hefur vægast sagt breyst undanfarna daga. Eftir enn ítrekaðar hótanir Bandaríkjaforseta um að innlima landið með valdi hrundu Danir af stað skyndilegu heræfingunni Arctic Endurance og þessi minnsta höfuðborg heims varð að virki á örskotsstundu. Erlent 18. janúar 2026 16:16
Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni „Ég verð að segja eins og er að þessi nýjustu skilaboð frá Bandaríkjaforseta eru mikil vonbrigði og áhyggjuefni. Ekki síst fyrir líkt þenkjandi þjóðir sem trúa á frelsi, lýðræði og alþjóðalög og virðingu fyrir þeim. Þetta eru mikil vonbrigði.“ Erlent 18. janúar 2026 14:03
Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Löndin sem Trump hefur hótað háum tollum gangi þau ekki að óskum hans um að styðja innlimun hans á Grænlandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu. Þau segjast tilbúin til viðræðna en að þeim verði ekki hnikað hvað fullveldi þeirra varðar. Erlent 18. janúar 2026 13:58
Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Sendiherrar Evrópusambandsins koma saman á neyðarfundi seinna í dag vegna Grænlandstolla Bandaríkjaforseta. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir samband Bandaríkjanna og Evrópu aldrei hafa verið verra. Hún útilokar ekki að Ísland bætist á lista forsetans. Innlent 18. janúar 2026 12:56
Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Emmanuel Macron, forseti Frakklands, kallar eftir því að Evrópusambandið beiti „ofurvopni“ sínu gegn Bandaríkjunum vegna aðgerða Donalds Trump varðandi Grænland. Utanríkisráðherra Danmerkur segir erfitt að átta sig á Bandaríkjamönnum og forsætisráherra Ítalíu segir Bandaríkjamenn ekki skilja Evrópumenn. Erlent 18. janúar 2026 12:10
Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Íbúar Nuuk létu rigningu ekki stöðva sig í gær og mótmæltu í þúsundatali. Mótmæli voru einnig haldin í smærri byggðum landsins stóra, þar sem fólk stóð saman gegn hótunum ráðamanna í Bandaríkjunum. Erlent 18. janúar 2026 09:02
Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Forsætisráðherra Bretlands segist munu ræða við Bandaríkjastjórn um fyrirhugaða Grænlandstolla. Leiðtogar Evrópu stilla nú saman strengi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði tolla gegn átta NATO-ríkjum vegna þess að þau sendu mannskap til Grænlands í hernaðaræfingu. Erlent 17. janúar 2026 20:45
Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Frakklandsforseti segir að Evrópulönd muni svara fyrirhuguðum Grænlandstollum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, taki þeir gildi. Hótanir Bandaríkjamannsins séu óásættanlegar og dragi ekki úr stuðningi Frakklands við Danmörku. Erlent 17. janúar 2026 19:09
Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Ekki er útilokað að Donald Trump Bandaríkjaforseti leggi toll á Ísland, að mati stjórnmálafræðings, rétt eins og forsetinn hyggst gera við fjölda Evrópuríkja vegna stuðnings þeirra við Grænland. Stjórnmálafræðingurinn segir að aðferðir Trumps séu komnar á svo alvarlegt stig að Evrópulönd geti ekki lengur útilokað innrás Bandaríkjamanna í Grænland. Erlent 17. janúar 2026 18:38