Ekið á barn í annað sinn á sama tíma og sama stað Lovísa Arnardóttir skrifar 11. nóvember 2025 15:49 Drengurinn fór hér yfir á hlaupahjóli þegar ekið var á hann. Sólin var afar lágt á lofti þegar atvikið átti sér stað. Vísir/Vilhelm Ekið var á níu ára gamalt barn um klukkan 14 í dag á gatnamótum Kirkjuteigs og Reykjavegar. Barnið var á hlaupahjóli. Um mánuður er síðan ekið var á annað barn á sama stað, á sama tíma, um klukkan 14. Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á vettvang samkvæmt upplýsingum frá Árna Friðleifssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni í umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Þarna var eldri ökumaður sem blindast af sól og sér ekki barn sem er á gangbrautinni. Vitni á staðnum sögðu sólina hafa verið mjög lágt á lofti og mjög blindandi í þessari akstursátt. Það var minniháttar slys á barninu,“ segir Árni í samtali við fréttastofu. Laugarnesskóli sést hér í bakgrunni. Vísir/Vilhelm Senda ábendingu á veghaldara Árni segir skýrt verklag hjá lögreglu þegar slys eiga sér stað að senda ábendingar til veghaldara, sérstaklega þegar tvö slys eru á sama stað eða þau varða börn. „Ef það eru slys á börnum þá skoðum við það sérstaklega,“ segir Árni sem á von á því að lögreglan sendi ábendingu og beiðni til borgarinnar um að skoða aðstæður á vettvangi. Árni Friðleifsson segir lögreglu alltaf taka það mjög alvarlega þegar ekið er á börn. Vísir/Ívar Fannar Það verði þó að taka tillit til þess að sól hafi verið lágt á lofti og sem dæmi sé ekki víst að umferðarljós hefðu stöðvað þennan ökumann við þessar tilteknu aðstæður. Hvað varðar hitt slysið, í október, segir hann „glórulaust“ að ökumaður hafi farið af vettvangi. Bæði slys voru tilkynnt til lögreglunnar. Sólin afar lágt á lofti Guðmundur Valdimar Rafnsson, húsvörður í Laugarlækjarskóla, varð vitni að atvikinu í dag. „Ég var rétt búin að labba yfir með konunni minni og syni og var komin fjóra til fimm metra þegar ég heyrði bílinn nauðhemla,“ segir hann og að bíllinn hafi farið á hjól drengs sem var að fara yfir götuna. Hjólið sé skemmt en drengurinn hafi ekki slasast alvarlega. Hann segir annan dreng hafa verið á staðnum en aðeins var tilkynnt um eitt barn til lögreglu. Guðmundur segir sólina hafa verið lágt á lofti og hann hafi sjálfur sérstaklega gætt að því að ökumenn myndu sjá hann. Ökumaðurinn hafi verið miður sín yfir atvikinu. „Þetta tiltekna atvik er kannski ekki fréttin hérna, heldur er fréttin sú að það er mánuður síðan það var keyrt á annað barn þarna,“ segir hann. Fjallað var um atvikið á Vísi en þá lét ökumaðurinn sig hverfa af vettvangi án þess að stöðva. Vitni láðist að skilja eftir númer. Faðir drengsins sagði hann í áfalli. Atvikið átti sér stað rétt eftir klukkan tvö á gatnamótum Kirkjuteigs og Reykjavegar í Laugarneshverfinu í Reykjavík. Drengurinn, sem er í sjötta bekk, var að hjóla yfir gangbraut við Laugarnesskóla þegar keyrt var á hann. Veistu meira um málið? Ekki hika við að senda okkur fréttaskot, nafnlaust eða undir nafni, með því að smella hér. Samgönguslys Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Innlent Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Innlent Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin Erlent Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Erlent Foreldrar í Garðabæ hvumsa yfir æfingagjöldum Innlent Ekið á börn í annað sinn á sama tíma og sama stað Innlent Erfitt að skilja drengina eftir í Suður-Afríku en jákvætt að þeir séu loks edrú Innlent Hafa uppgötvað djöflabýflugu Erlent Uppgötvuðu svikin á fimmtudegi og kærðu aðfaranótt laugardags Innlent Fimm ára fangelsi fyrir að skera mann á háls Innlent Fleiri fréttir Fresta skurðaðgerðum vegna inflúensufaraldurs Íslensk stjórnvöld viðurkenndu brot „Jafnvel Kringvarpið í Færeyjum flytur fréttir á ensku“ Ekið á börn í annað sinn á sama tíma og sama stað Skjálftum fækkar og kvikan hægir á sér Foreldrar í Garðabæ hvumsa yfir æfingagjöldum Uppgötvuðu svikin á fimmtudegi og kærðu aðfaranótt laugardags Verða með leiðtogaprófkjör 31. janúar Mikið undir á næsta sáttafundi flugumferðarstjóra Vill hætta að kaupa auglýsingar á samfélagsmiðlum Fimm ára fangelsi fyrir að skera mann á háls Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Erfitt að skilja drengina eftir í Suður-Afríku en jákvætt að þeir séu loks edrú Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga – seinni dagur Mótefni við RSV muni draga verulega úr álagi og kostnaði Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Ágreiningur, slagsmál og líkamsárás Héldu samverustund þar sem að tvö ár eru liðin Aðdragandinn að endinum hjá ríkislögreglustjóra Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn samskonar flugvél Hvatningarverðlaun gegn einelti afhent á Laugarvatni Tekist á um afgreiðslu velferðarnefndar Þörf á endurskoðun meðferðarheimila fyrir börn Dómsmálaráðherra verði að segja satt og rétt frá Leiðtogaprófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík Mælist nú ekki með eins jákvætt viðhorf til kvenleiðtoga Nýr lögreglustjóri fljótur að ákveða sig og nýir vextir hjá Arion Breytingar á húsaleigulögum samþykktar sem lög Arndís Soffía tekur við af Grími Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Sjá meira
Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á vettvang samkvæmt upplýsingum frá Árna Friðleifssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni í umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Þarna var eldri ökumaður sem blindast af sól og sér ekki barn sem er á gangbrautinni. Vitni á staðnum sögðu sólina hafa verið mjög lágt á lofti og mjög blindandi í þessari akstursátt. Það var minniháttar slys á barninu,“ segir Árni í samtali við fréttastofu. Laugarnesskóli sést hér í bakgrunni. Vísir/Vilhelm Senda ábendingu á veghaldara Árni segir skýrt verklag hjá lögreglu þegar slys eiga sér stað að senda ábendingar til veghaldara, sérstaklega þegar tvö slys eru á sama stað eða þau varða börn. „Ef það eru slys á börnum þá skoðum við það sérstaklega,“ segir Árni sem á von á því að lögreglan sendi ábendingu og beiðni til borgarinnar um að skoða aðstæður á vettvangi. Árni Friðleifsson segir lögreglu alltaf taka það mjög alvarlega þegar ekið er á börn. Vísir/Ívar Fannar Það verði þó að taka tillit til þess að sól hafi verið lágt á lofti og sem dæmi sé ekki víst að umferðarljós hefðu stöðvað þennan ökumann við þessar tilteknu aðstæður. Hvað varðar hitt slysið, í október, segir hann „glórulaust“ að ökumaður hafi farið af vettvangi. Bæði slys voru tilkynnt til lögreglunnar. Sólin afar lágt á lofti Guðmundur Valdimar Rafnsson, húsvörður í Laugarlækjarskóla, varð vitni að atvikinu í dag. „Ég var rétt búin að labba yfir með konunni minni og syni og var komin fjóra til fimm metra þegar ég heyrði bílinn nauðhemla,“ segir hann og að bíllinn hafi farið á hjól drengs sem var að fara yfir götuna. Hjólið sé skemmt en drengurinn hafi ekki slasast alvarlega. Hann segir annan dreng hafa verið á staðnum en aðeins var tilkynnt um eitt barn til lögreglu. Guðmundur segir sólina hafa verið lágt á lofti og hann hafi sjálfur sérstaklega gætt að því að ökumenn myndu sjá hann. Ökumaðurinn hafi verið miður sín yfir atvikinu. „Þetta tiltekna atvik er kannski ekki fréttin hérna, heldur er fréttin sú að það er mánuður síðan það var keyrt á annað barn þarna,“ segir hann. Fjallað var um atvikið á Vísi en þá lét ökumaðurinn sig hverfa af vettvangi án þess að stöðva. Vitni láðist að skilja eftir númer. Faðir drengsins sagði hann í áfalli. Atvikið átti sér stað rétt eftir klukkan tvö á gatnamótum Kirkjuteigs og Reykjavegar í Laugarneshverfinu í Reykjavík. Drengurinn, sem er í sjötta bekk, var að hjóla yfir gangbraut við Laugarnesskóla þegar keyrt var á hann. Veistu meira um málið? Ekki hika við að senda okkur fréttaskot, nafnlaust eða undir nafni, með því að smella hér.
Veistu meira um málið? Ekki hika við að senda okkur fréttaskot, nafnlaust eða undir nafni, með því að smella hér.
Samgönguslys Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Innlent Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Innlent Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin Erlent Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Erlent Foreldrar í Garðabæ hvumsa yfir æfingagjöldum Innlent Ekið á börn í annað sinn á sama tíma og sama stað Innlent Erfitt að skilja drengina eftir í Suður-Afríku en jákvætt að þeir séu loks edrú Innlent Hafa uppgötvað djöflabýflugu Erlent Uppgötvuðu svikin á fimmtudegi og kærðu aðfaranótt laugardags Innlent Fimm ára fangelsi fyrir að skera mann á háls Innlent Fleiri fréttir Fresta skurðaðgerðum vegna inflúensufaraldurs Íslensk stjórnvöld viðurkenndu brot „Jafnvel Kringvarpið í Færeyjum flytur fréttir á ensku“ Ekið á börn í annað sinn á sama tíma og sama stað Skjálftum fækkar og kvikan hægir á sér Foreldrar í Garðabæ hvumsa yfir æfingagjöldum Uppgötvuðu svikin á fimmtudegi og kærðu aðfaranótt laugardags Verða með leiðtogaprófkjör 31. janúar Mikið undir á næsta sáttafundi flugumferðarstjóra Vill hætta að kaupa auglýsingar á samfélagsmiðlum Fimm ára fangelsi fyrir að skera mann á háls Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Erfitt að skilja drengina eftir í Suður-Afríku en jákvætt að þeir séu loks edrú Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga – seinni dagur Mótefni við RSV muni draga verulega úr álagi og kostnaði Áætlanir Bláa lónsins varði alla heimsbyggðina Ágreiningur, slagsmál og líkamsárás Héldu samverustund þar sem að tvö ár eru liðin Aðdragandinn að endinum hjá ríkislögreglustjóra Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn samskonar flugvél Hvatningarverðlaun gegn einelti afhent á Laugarvatni Tekist á um afgreiðslu velferðarnefndar Þörf á endurskoðun meðferðarheimila fyrir börn Dómsmálaráðherra verði að segja satt og rétt frá Leiðtogaprófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík Mælist nú ekki með eins jákvætt viðhorf til kvenleiðtoga Nýr lögreglustjóri fljótur að ákveða sig og nýir vextir hjá Arion Breytingar á húsaleigulögum samþykktar sem lög Arndís Soffía tekur við af Grími Strætisvagni ekið á leikskólastarfsmann og barn Sjá meira