Innlent

Burðar­dýr ekki nafn­greint vegna hótana og ógnana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lögreglumenn á Keflavíkurflugvelli með fíkniefnaleitarhund.
Lögreglumenn á Keflavíkurflugvelli með fíkniefnaleitarhund. Vísir/Arnar

Karlmaður sem á dögunum var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innflutning á kókaíni var ekki nafngreindur í dómi Héraðsdóms Reykjaness vegna hótana og ógnanna sem hann hefur sætt í tengslum við málið. Sá sem tók við efnunum og var gripinn glóðvolgur af lögreglu á von á þyngri dómi miðað við dómafordæmi.

Hinn dæmdi, sem Héraðsdómur Reykjaness telur að hafi gegnt hlutverki burðardýrs í málinu, kom til landsins 22. apríl með tæplega þrjú kíló af kókaíni í ferðatösku. Það var af 82-85 prósenta styrkleika. Hann játaði brot sitt greiðlega og fékk tveggja ára dóm fyrir að frádregnu tæplega þriggja mánaða löngu gæsluvarðhaldi.

Athygli vakti að nafn mannsins var ekki birt í dómnum á vef Héraðsdóms Reykjaness eins og hefð er fyrir. Þá kom heldur ekki fram hvaðan maðurinn ferðaðist. Það er helst í kynferðis- og ofbeldisbrotamálum þar sem tenging er milli þolanda og geranda sem dómstólar birta ekki nöfn þeirra sem hljóta dóm og þá með hagsmuni brotaþola í huga. Annars er hinn almenna regla að það sem gerist í dómstólum sé fyrir opnum tjöldum, í heyranda hljóði eins og það er orðað.

Jónas Jóhannsson, dómstjóri við Héraðsdóm Reykjaness, segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að ákvörðun um nafnleynd hafi verið tekin vegna hótana og ógnanna sem sakborningur hefur sætt hér á landi eftir að hann ákvað að ganga til samvinnu við lögreglu og aðstoða við að upplýsa um hlut annarra í keðjunni. 

Annar maður í keðjunni sætir ákæru fyrir að hafa gert tilraun til að taka á móti og varsla umrædd 2,9 kíló af kókaíni. Þá hafði lögreglan lagt hald á kókaínið og skipt því út fyrir gerviefnin. Sá sem kom með efnin til landsins hélt á fund ákærða sem var handtekinn.

Málið á hendur þeim sem tók við gerviefnunum var þingfest þann 15. júlí síðastliðinn og neitaði ákærði sök. Fyrirtaka verður í málinu í ágúst og aðalmeðferð hefur verið ákveðin þann 17. september.

Verði ákærði fundinn sekur um að hafa gert tilraun til að taka við fíkniefnunum má gera ráð fyrir að refsing hans verði umtalsvert þyngri en í tilfelli þess sem flutti efnin inn, burðardýrið neðst í keðjunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×