Fíkniefnabrot
1 2 3 4 5 6 … 19 ›
Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi, að sögn lögreglu. Lagt var hald á rúmlega 14 lítra af amfetamínbasa og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal tveir starfsmenn Eimskips sem hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. Innlent 16.4.2026 18:32
Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Kveikur tók fyrir fíkniefnavandann á Íslandi 14. apríl eins og hann birtist á götunni. Ég hef á síðustu árum tekið þátt í norrænu rannsóknarsamstarfi um mál tengd fíkniefnum og var einn viðmælenda Kveiks. Í greininni er komið inn á örfáa punkta sem vonandi varpa ljósi á málefnið. Skoðun 15.4.2026 10:00
Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. Innlent 14.4.2026 19:17
Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Karlmaður á fertugsaldri sem lögreglu grunar um umfangsmikið smygl fíkniefna með Dettifossi var síðast handtekinn af lögreglu í janúar grunaður um alvarlega líkamsárás á þorrablóti í Kópavogi. Lögregla réðst í húsleit á heimili hans á höfuðborgarsvæðinu í gær og lagði hald á fjölmarga muni í eigu hans. Alls voru sex handteknir og sæta þrír gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á innflutningi á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Innlent 14.4.2026 15:52
Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Fjórir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa selt ótilgreint magn af amfetamíni, hassi, maríhúana, kókaíni, MDMA, metamfetamíni, LSD, Diazepam, sveppum, nammi sem innihélt kannabis og óþekktum töflum. Í fórum þeirra fundust límmiðar merktir „Kannabis Inc“ og þeir áttu í samskiptum í gegnum spjall með sama heiti á Telegram. Einn karlmaður til viðbótar er ákærður fyrir að hafa smyglað allt að tuttugu kílóum af maríhúana til landsins. Innlent 14.4.2026 06:46
Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrjá erlenda karlmenn í fimm á fangelsi hvern fyrir að flytja inn mikið magn af kókaínklóríðs til landsins. Efnin voru falin í bifreið sem kom til landsins með ferjunni Norrænu í nóvember. Innlent 9.4.2026 10:13
Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Farþegi sem kom til landsins með ferjunni Norrænu á föstudag var handtekinn eftir að umtalsvert magn fíkniefna fannst í bíl hans. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald og dvelur í fangelsinu á Hólmsheiði. Innlent 31.3.2026 10:47
Burðardýr í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjaness dæmdi erlenda konu á þrítugsaldri í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir að flytja mikið magn af kókaíni og hassi til landsins. Efnin voru falin í farangri konunnar þegar hún flaug til landsins. Innlent 25.3.2026 08:38
Kio Briggs hágrét á tökustað Engla alheimsins Kio Briggs, einn þekktasti sakborningur Íslandssögunnar, komst í uppnám þegar hann gekk fram á tökustað Engla alheimsins, ómeðvitaður um að verið væri að gera kvikmynd. Lífið 22.3.2026 14:46
Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Lögreglan handtók mann í miðbæ Reykjavíkur í nótt þar sem hann hafði ráðist á dyravörð. Við leit á honum fundust fíkniefni en maðurinn hefur verið vistaður í fangaklefa þar til hann er talinn hæfur til skýrslutöku. Fleiri en tíu ökumenn voru stöðvaðir í akstri vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Innlent 14.3.2026 07:57
Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til innflutnings 2,5 kílóa af maríhúana. Þegar birta átti honum fyrirkall var hann hvergi finnanlegur og svo fór að útivistardómtur gekk í málinu. Innlent 13.3.2026 16:52
Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fertugur Spánverji, Kendry Ariel Agramonte Moreta, hefur í Landsrétti verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir tilraun til innflutnings á tæpum þremur kílóum af kókaíni. Innlent 12.3.2026 15:10
Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni 35 ára pólskur karlmaður, Wojciech Pawelczyk, hefur í Landsréttir verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir innflutning á 5,2 lítrum af amfetamínbasa frá Póllandi til Íslands. Efnið var falið í barnakoju, þó að maðurinn væri barnlaus. Innlent 12.3.2026 15:08
Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Hæstiréttur hefur þyngt refsingar í máli Samúels Jóa Björgvinssonar og tvíburanna Elíasar og Jónasar Shamsudin. Tvíburarnir hlutu tveggja og hálfs árs dóma í Landsrétti fyrir fíkniefnalagabrot og Samúel Jói þriggja ára. Hæstiréttur dæmdi bræðurna í þriggja ára og Samúel Jóa í 3,5 ára fangelsi. Innlent 11.3.2026 14:05
Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Ökumaður keyrði utan í bíl og flúði svo heim til sín og beint inn í fataskáp. Annar maður tók til þess ráðs að kasta slökkvitæki, sem hann hafði þegar tæmt yfir lögreglumenn, niður stiga í átt að lögreglunni. Innlent 8.3.2026 19:15
Flutti kíló af kókaíni inn í borði og flúði lögreglu á hjóli Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur Litháum, sem eru sakaðir um tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Þremenningarnir eru sagðir hafa staðið að innflutningi kílós af kókaíni, 85 til 86 prósent að styrkleika, sem samsvarar 95 til 96 prósent af kókaínklóríði. Innlent 27.2.2026 09:03
Lögðu hald á tugi kílóa lítt þekkts fíkniefnis Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur nýlega lagt hald á tæplega sextíu kíló af fíkniefninu Kratom í tveimur aðskildum málum. Um er að ræða efni sem er lítt þekkt hérlendis. Innlent 26.2.2026 14:55
Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Albani á fertugsaldri kveðst vera fórnarlamb í máli sem snýr að smygli á sögulegu magni ketamíns og mikils magns MDMA. Hann hafi talið sig eiga að gera manni sem væri ekki með dvalarleyfi greiða en í staðinn hafi verkstæði sem hann hafði aðgang að verið notað til að fjarlægja fíkniefnin úr bifreið. Innlent 26.2.2026 06:46
Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Þýsk kona á sextugsaldri segist hafa leiðst út í að flytja tuttugu kíló af sterkum fíkniefnum til landsins með Norrænu vegna fjárhagsvandræða í tengslum við handtöku sonar hennar í Frakklandi. Hún hafi átt að fá tvö til þrjú þúsund evrur fyrir ómakið, sem jafngildir um 290 til 340 þúsund krónum. Hún á nú yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi. Innlent 25.2.2026 13:02
Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Ionut Mihai Dinescu, Rúmeni á fertugsaldri, hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot, með því að hafa staðið að innflutningi á rúmum tíu kílóum af ketamíni. Innlent 24.2.2026 14:43
Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Tveir ungir menn hafa verið dæmdir fyrir rán, með því að hafa farið inn í bifreið manns og neytt hann til að afhenda þeim áfengi sem var í skotti bifreiðarinnar. Nokkuð ljóst er að um svokallaðan bjórsala var að ræða þar sem ungu mennirnir höfðu af honum sjö bjórkassa og 69 áfengisflöskur. Annar maðurinn hlaut þungan dóm en hann framdi einnig tvær meiri háttar líkamsárásir, aðra í félagi við bróður sinn, Gabríel Douane Boama. Innlent 17.2.2026 13:37
Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Fjórir menn hafa verið ákærðir fyrir að hafa staðið í innflutningi á fíkniefnum sem falin voru í sófa og umbúðum af morgunkorni sem komu með póstsendingu frá Bandaríkjunum. Innlent 16.2.2026 23:20
Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í stærsta kristal-metamfetamínsmáli Íslandssögunnar. Sigurður Ragnar Kristinsson hlaut þyngstan dóm sex sakborninga, átta ára fangelsi. Innlent 12.2.2026 15:08
Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Algengt er að glæpasamtökum sé stýrt úr öðru ríki en þar sem starfsemin sjálf fer fram að sögn saksóknara hjá Eurojust. Að geta deilt rannsóknargögnum milli landa hafi skipt sköpum við að uppræta glæpahring sem smyglaði eiturlyfjum til Íslands. Innlent 11.2.2026 12:07
Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Lögreglan telur sig hafa upprætt alþjóðleg glæpasamtök sem bera ábyrgð á stórum hluta þess kókaíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi á síðustu árum. Meðlimir samtakanna eru taldir hafa skipulagt innflutning á meðan þeir sátu inni á Litla-Hrauni. Tveimur hefur verið sleppt úr haldi. Innlent 10.2.2026 18:56
Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum „Formleg rannsókn hófst fyrir um ári síðan. Við vorum í aðdraganda þess farin að bera kennsl á mynstur og tengingar. Og þá hófum við þessa formlegu rannsókn, það er að segja líka að tengja nokkur mál saman sem eru svona hefðbundin burðardýrsmál,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum, um umfangsmiklar aðgerðir sem áttu sér stað í síðustu viku. Ellefu voru handteknir í tengslum við skipulagða brotastarfsemi, íslenskir og erlendir ríkisborgarar. Innlent 10.2.2026 12:11
Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Alþjóðleg glæpasamtök sem stóðu að flutningi kókaíns frá Suður-Ameríku til Íslands hafa verið leyst upp. Samtökin notuðu burðardýr til að flytja efnin. Lögregla í Litháen, Spáni og Íslandi unnu með Evrópulögreglunni við rannsókn málsins óslitið í eitt ár og réðst í handtökur og húsleitir þann 4. febrúar síðastliðinn í samræmdum aðgerðum. Alls voru 24 handteknir, þar af 11 á Íslandi og eru íslenskir ríkisborgarar þar á meðal. Talið er að brotahópurinn hafi hagnast um fjórar milljónir evra með stórfelldu smygli eða um sex hundruð milljónir króna. Innlent 10.2.2026 11:29
Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Þrítugur serbneskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots með því að sækja tvo pakka á pósthús, sem hann hélt að innhéldu samtals 2,5 kíló af maríhúana. Innlent 4.2.2026 16:03
Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Valentin Jemeljanov, Litái á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að flytja inn þrjá lítra af kókaíni á vökvaformi. Úr vökvanum mætti framleiða 3,5 kíló af kókaíni með styrkleika upp á 53 prósent. Innlent 30.1.2026 10:51
Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Tveir voru handteknir af lögreglu í Þorlákshöfn í gær grunaðir um kannabisræktun. Innlent 27.1.2026 14:21