Innlent

Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara

Árni Sæberg skrifar
Eivydas Laskauskas sagðist fyrir dómi vera raunverulegur stjórnandi Heklara.
Eivydas Laskauskas sagðist fyrir dómi vera raunverulegur stjórnandi Heklara. Vísir/Vilhelm

Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú félagsins Heklarar ehf, sem námu tæplega 27 milljónum króna. Félagið rataði í fréttir í desember í fyrra þegar fjallað var um smygl á 5,6 kílóum á kókaíni. Í janúar var eigandi félagsins dæmdur í 3,5 ára fangelsi fyrir smyglið ásamt kærasta sínum og þriðja manni. Fyrir dómi sagði kærastinn að kærasta sín hefði í raun verið leppur fyrir hann.

Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. septemer. Skiptum hafi verið lokið án þess að nokkuð fengist upp í 27 milljóna króna kröfur.

Samkvæmt Fyrirtækjaskrá var félagið í eigu Kamile Radzeviciute og tilgangur þess bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Kamile var þann 26. janúar síðastliðinn dæmd í þriggja ára og sex mánaða fangelsi ásamt þeim Eivydas Laskauskas og Egidijus Dambraukskas.

Þau voru ákærð fyrir innflutning á 5,7 kílóum af kókaíni sem falin voru í BMW-bíl sem fluttur var frá Íslandi til Litáen og aftur til Íslands með flutningsskipi. Vísir fjallaði um aðalmeðferð málsins, sem fór fram þann 1. desember síðastliðinn.

Eivydas sagðist fyrir dómi kannast við að hafa keypt umræddan BMW-bíl á Bland.is í gegnum fyrirtækið Heklara ehf. Heklarar ehf. væri ákærðu Kamile en hún væri kærasta hans. Hann kvaðst hafa starfað í byggingageiranum undanfarin ár ásamt því að sýsla með bíla. Hann hefði nokkrum sinnum orðið gjaldþrota og Kamile hefði í raun verið leppur fyrir hann og hann stjórnaði Heklurum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×