„Galin vinnubrögð“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 27. október 2026 17:19 Formaður Sameykis lýsir uppsagnarhrinu dagsins hjá Reykjavíkurborg sem áfalli. Hann segir fólk enn bíða skýringa á síðustu uppsögnum og telur vinnubrögð meirihlutans galin.
Fimmtíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp í dag og í hópi þeirra eru tuttugu félagsmenn Sameykis. Þar á meðal er fólk sem starfað hefur hjá borginni í áratugi að sögn Kára Stefánssonar, formanns Sameykis. Í einu tilviki hafi verið hringt í manneskju í veikindaleyfi og henni sagt upp störfum. Fólk sé einfaldlega í áfalli. „Áföllin eru ólík og upplifanir fólks eru ólíkar en við hvetjum fólk til að leita til okkar,“ segir Kári og bætir við að málin verði í kjölfarið skoðuð og að óskað verði eftir rökstuðningi frá borginni. „Vonandi fáum við svörin miklu fyrr en í síðustu tveimur uppsögnum. Það má benda á að einungis hefur fengist svar við helmingi þeirra fyrirspurna sem við höfum sent á borgina úr síðustu tveimur uppsagnarhrinum, sem eru auðvitað galin vinnubrögð,“ segir hann. „Fyrst þetta er allt svona fagmannlega unnið hljóta þau að geta svarað okkur með stuttum fyrirvara, að minnsta kosti innan tveggja vikna. Núna eru rúmir hundrað dagar síðan fyrstu fyrirspurnir um rökstuðning lágu fyrir og við erum enn að bíða svara.“ Stéttarfélögum var tilkynnt um uppsagnirnar í lok síðustu viku en trúnaður gilti um málið. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, sagði í dag að borgin hefði haft samráð við stéttarfélögin en Kári hafnar því. Tilkynning jafngildi ekki samráði. „Nú er verið að tala um að næsta verkefni sé að skoða veikindi starfsfólks. Hvernig ætla þau að fara að því þegar traustið er ekkert gagnvart þessum meirihluta og vanlíðan fólks á þessum vinnustað er gríðarleg?“ spyr Kári. Búið að tæta vinnustaðinn niður Kári segir ekki um sína eigin upplifun að ræða heldur sé hann að endurspegla raddir félagsfólks. „Við erum með rúmlega þrjú hundruð trúnaðarmenn í Sameyki og hittum félagsfólk reglulega. Borgin getur ekki farið í þá vegferð að skoða veikindi starfsfólks nema í samráði við starfsfólk og stéttarfélög og það byggir á trausti. Ég held að þau þurfi að fara að hugsa sinn gang um hvernig þau ætla að tala um vinnustaðinn Reykjavíkurborg og hvernig þau ætla að tala til starfsfólks.“ Hann segist vonsvikinn eftir daginn og sorgmæddur fyrir hönd félagsfólks. „Ég vann sjálfur hjá Reykjavíkurborg í hátt í tvo áratugi áður en ég fór yfir til Sameykis og það er búið að tæta þennan vinnustað niður á aðeins örfáum mánuðum.“
Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið Sjá meira