Rekstur hins opinbera
1 2 3 4 5 6 … 23 ›
Álag réttlæti ekki mistökin sem voru gerð Ríkislögreglustjóri segist hafa gert mistök að bjóða ekki út verkefni sem Intra sinnti. Embættið taki mjög alvarlega þá annmarka sem hafa komið fram um kaup stofnunarinnar á ráðgjöf og þjónustu utanaðkomandi sérfræðinga eða ráðgjafa og greiðslur til verktaka. Unnið sé að ítarlegum verklagsreglum um innkaup og samningagerð til að tryggja gagnsæi og samræmi við opinber innkaup. Innlent 6.11.2025 12:05
Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segja fullt tilefni til að hafa áhyggjur af stöðu efnahagsmála. Þau segja þörf á fleiri aðgerðum til að tryggja betra húsnæðisverð og að það þurfi að lækka vexti til að „hleypa að súrefni bæði til heimila og fyrirtækja“. Halla og Vilhjálmur voru til viðtals í Bítinu. Viðskipti innlent 5.11.2025 09:19
Fimm skipstjórar en engin við stýrið Stóru tíðindin í fjárhagsáætlun Reykjavíkur 2026–2030 er ekki fögur framtíðarsýn. Meirihluti vinstri flokkanna í borgarstjórn hefur ákveðið að sleppa stýrinu og láta borgarskútuna reka næsta árið. Það er í besta falli kæruleysi. Í versta falli ábyrgðarleysi. Skoðun 4.11.2025 15:30
„Upp er runninn Kristrúnar Frostaveturinn mikli“ Oddviti Framsóknar í Reykjavík segir meirihlutann í borgarstjórn sýna algjört ábyrgðarleysi í fjárhagsáætlun sinni fyrir næsta ár og til 2030. Hann á ekki von á því að áætlanir um milljarðaafgang standist, sér í lagi vegna stöðunnar sem uppi er í efnahagsmálum. Innlent 4.11.2025 15:02
Gleðiefni að útkomuspá ársins sé á núlli Borgarstjóri segir það gleðiefni að útkomuspá ársins 2025 sé komin á núllið án þess að skerða þjónustu borgarbúa. Hún segir engan kosningabrag vera á fjármálaáætlun borgarinnar sem kynnt var í dag. Innlent 4.11.2025 14:50
Reikna með tæplega nítján milljarða afgangi á næsta ári Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir að stöðugum og sterkum rekstri í A- og B-hluta. Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 18,7 milljarða króna og EBITDA verði 69,6 milljarðar króna. Á árunum 2027 til 2030 er gert ráð fyrir batnandi afkomu og vaxandi EBITDA. Útkomuspá fyrir árið 2025 gerir ráð fyrir að afkoma ársins verði jákvæð um 14,6 milljarða króna. Þar af verður afkoma A-hluta jákvæð um 381 milljón, samanborið við 4,7 milljarða afgang í fyrra. Innlent 4.11.2025 11:46
Bein útsending: Kynnir sína fyrstu fjárhagsáætlun Boðað hefur verið til blaðamannafundar þar sem Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri kynnir fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 2026 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2030. Fjárhagsáætlun verður lögð fram og rædd í borgarstjórn í dag. Innlent 4.11.2025 11:20
Stíga ekki inn í Intra-málið í bili Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis telur ekki tímabært að fjalla um mál embættis Ríkislögreglustjóra. Greiðslur til ráðgjafafyrirtækis um margra ára skeið sem nema um 160 milljónum hafa mikið verið í umræðunni síðustu daga. Innlent 3.11.2025 13:59
„Aldrei fyrirgefanlegt þegar það er farið svona með opinbert fé“ Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir ljóst að fjárútlát Ríkislögreglustjóra til ráðgjafafyrirtækisins Intru verði að hafa afleiðingar. Álíka meðhöndlun á opinberu fé sé aldrei fyrirgefanleg. Málið verður tekið fyrir á fundi nefndarinnar á morgun. Innlent 2.11.2025 22:02
Kostnaður við stjórnsýslu borgarinnar mun hærri en landsmeðaltalið Kostnaður við stjórnsýslu Reykjavíkurborgar er mun hærri en gengur og gerist í öðrum sveitarfélögum. Hann er 10 þúsund krónum hærri á hvern íbúa en landsmeðaltalið og 26 þúsund krónum hærri en á Akureyri. Stjórnsýslufræðingur segir áhugavert að stærsta stjórnsýslueining landsins skuli ekki ná að nýta stærðarhagkvæmni sína til að auka skilvirkni og hagræði. Innlent 1.11.2025 14:06
Hefði aldrei giskað á uppsagnir á hennar deild Einn þriggja starfsmanna landamæradeildar ríkislögreglustjóra sem var sagt upp segir uppsagnirnar hafa komið henni í opna skjöldu. Hún segir engan starfsmann geta tekið yfir sérhæfð verkefni þeirra án þess að sækja sér sérstaka menntun. Skýringin fyrir uppsögninni hafi verið aðhaldskrafa og um væri að ræða uppsagnir þvert á deildir. Innlent 31.10.2025 14:28
Svarar ekki beinum orðum hvort Sigríður Björk njóti trausts Dómsmálaráðherra segist leggja upp með að vinna mál ríkislögreglustjóra faglega og fara að lögum og reglum. Hún er undrandi á háum verktakagreiðslum yfir langan tíma til ráðgjafa ríkislögreglustjóra. Hún svarar að því stöddu ekki beinum orðum hvort ríkislögreglustjóri njóti trausts eða ekki. Innlent 31.10.2025 13:40
Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Ríkislögreglustjóri þarf að endurskoða bókhaldið hjá sér vegna mikils halla í rekstri. Sú stefna að lækka kostnað þegar tækifæri gefst, forðast uppsagnir heldur láta nægja að ráða ekki í störf sem losna skilar ekki nægum árangri. Styrkja þarf stjórnskipulag embættisins og gera áætlunargerð embættisins að gagnsærra og virkara stjórntæki. Þetta kemur fram í úttekt sem unnin var fyrir dómsmálaráðuneytið á fjármálum embættisins. Ríkislögreglustjóri telur úttektina ekki taka tillit til fjölgunar verkefna á þeirra borði. Innlent 31.10.2025 10:43
Fjárhagsstaðan alvarleg og tímabundin ráðning ráðgjafans ekki endurnýjuð Áætlaður rekstrarhalli embættis ríkislögreglustjóra árin 2023 til 2025 er 1,49 milljarður, eða 5,4 prósent af 27,4 milljarða veltu stofnunarinnar þessi ár. Embættið harmar mistök sem voru gerð í tengslum við viðskipti við félagið Intra og verður þriggja mánaða ráðning ráðgjafans ekki endurnýjuð. Innlent 30.10.2025 21:07
Ein hinna reknu segir konunum kastað fyrir ljónin Fyrrverandi starfsmaður í landamæradeild ríkislögreglustjóra, sem var sagt upp störfum í vikunni, getur ekki orða bundist yfir framferði embættis ríkislögreglustjóra. Hann segir að störf þriggja starfsmanna í landamæradeildinni hafi verið lögð niður, og erfitt sé að sjá hvernig embættið ætli að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til deildarinnar í framhaldinu. Konurnar þrjár sem sagt var upp hafi nýlega lýst yfir áhyggjum og óánægju með framgöngu nýs deildarstjóra landamæradeildarinnar. Innlent 30.10.2025 15:55
„Auðvitað slær þetta mig ekki vel“ Forsætisráðherra segir greiðslur embættis ríkislögreglustjóra til ráðgjafa upp á vel á annað hundrað milljónir króna yfir fimm ára tímabil ekki slá sig vel. Ríkisstjórnin ætli alls ekki að verða varðhundar kerfisins heldur lyfta við öllum steinum þar sem vísbendingar séu um að betur megi fara með fé. Innlent 30.10.2025 10:24
Fagnar aðgerðum en telur húsnæðispakkann „fremur rýran“ Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segist fagna því að ríkisstjórnin setji aukna áherslu á húsnæðismál en henni þyki nýr húsnæðispakki ríkisstjórnar í heild „fremur rýr“. Rætt var við Guðrúnu í kvöldfréttum Sýnar í gær. Innlent 30.10.2025 08:35
Reynsluboltum sagt upp í skugga ráðgjafabruðls Þungt andrúmsloft er innan dómsmálaráðuneytisins og ákveðinna deilda embættis ríkislögreglustjóra vegna greiðslna embættisins til ráðgjafafyrirtækisins Intru. Þremur reynsluboltum var sagt upp hjá embættinu í gær sem skjóti skökku við að mati starfsfólks sem baðst undan því að koma fram undir nafni. Innlent 29.10.2025 20:03
Vandræðamál hjá Hafró og Landspítala bera af í fjölda og kostnaði Íslenska ríkið greiddi mestar bætur vegna starfsmannamála innan Landspítala og Hafrannsóknarstofnunar á árunum 2015 til 2024. Nemur upphæðin um 239 milljónum króna en í heild greiddi ríkið 642 milljónir króna í kjölfar úrskurða eða dóma er varða ágreining, uppsagnir eða brottrekstur opinberra starfsmanna á tímabilinu. Innlent 29.10.2025 16:45
Fundinum lokið án niðurstöðu Fundi dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóra vegna 190 milljóna króna greiðslna til ráðgjafa frá lögregluembættum Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur lauk í morgun án niðurstöðu. Formaður Landssambands lögreglumanna fordæmir fjárútlát ríkislögreglustjóra. Ríkislögreglustjóri hefur hafnað ítrekuðum viðtalsbeiðnum fréttastofu. Innlent 29.10.2025 12:16
Opinberir starfsmenn kjósa síður áminningarskyldu Sagan af Bartleby skrifara eftir Herman Melville er ein sú þekktasta sem gerir að viðfangsefni sínu eitraða vinnustaðamenningu. Skoðun 29.10.2025 11:00
Gera ekki tilkall til höfuðborgartitils þótt Akureyri verði borg Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sem verður kannski bráðum borgarstjóri, segir það skipta máli fyrir þá þjónustu sem er veitt á Akureyri og hvaða verkefni Akureyri fer með fyrir sitt nágrenni að bærinn verði borg. Verkefnin verði að vera vel skilgreind og það viðurkennt að Akureyri fari með þessi verkefni. Ef byggð eigi að vera á öllu landinu verði að tryggja öflugt atvinnulíf og þetta sé eitt skref að því. Innlent 29.10.2025 10:32
Lögreglumenn hundfúlir með bruðl ríkislögreglustjóra Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir fjárútlát ríkislögreglustjóra fara illa í lögreglumenn. Hann tekur undir með dómsmálaráðherra um slæma áferð á málinu. Peningum hefði betur verið varið í löggæslu og þjálfun lögreglumanna. Innlent 29.10.2025 09:17
Ráðgjafinn ráðinn tveimur dögum eftir að grennslast var fyrir um málið Ráðgjafi sem fékk 160 milljónir króna greiddar fyrir störf sín fyrir embætti Ríkislögreglustjóra var ráðinn í tímabundið starf hjá embættinu tveimur dögum eftir að blaðamaður Ríkisútvarpsins óskaði eftir upplýsingum um starf ráðgjafans. Dómsmálaráðherra hyggst funda með ríkislögreglustjóra. Innlent 28.10.2025 20:51
Verklagi ábótavant og krefur ríkislögreglustjóra skýringa Dómsmálaráðherra segir það blasa við að ríkislögreglustjóri hefði mátt standa betur að málum er varðar samstarf og greiðslur til stjórnandaráðgjafa sem nema tæpum 200 milljónum. Samkvæmt lögum hefði átt að ráðast í útboð og harmar embættið að það hafi ekki verið gert. Innlent 28.10.2025 19:47
Reglur brotnar og þjónusta sem bjóða ætti út Stjórnsýsla ríkislögreglustjóra við kaup á þjónustu ráðgjafafyrirtækisins Intra er óeðlileg og brýtur ýmsar reglur. Þetta er mat stjórnsýslufræðings sem segir augljóst að bjóða hefði átt þjónustuna út miðað við hve háar upphæðir sé um að ræða. Innlent 28.10.2025 14:03
Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Embætti ríkislögreglustjóra hefur ráðið Þórunni Óðinsdóttir, eiganda Intra ráðgjöf, tímabundið í fullt starf samkvæmt tilkynningu. Fréttirnar koma í kjölfar umfjöllunar um að fyrirtæki Þórunnar hefði fengið hátt í tvö hundruð milljónir króna á átta árum greiddar fyrir ráðgjöf sína, en ráðgjöfin fólst meðal annars í skreppitúrum í Jysk. Innlent 27.10.2025 22:46
Kynferðisbrotum sem leiða til greiðslu bóta hefur fjölgað verulega Ríkið hefur síðustu níu ár greitt rúman 1,5 milljarð í bætur til þolenda ofbeldisbrota. Í fyrra greiddi ríkið um 239 milljónir í bætur til þolenda. Alls berast bótanefnd um 500 umsóknir á ári. Líkamsárásir og kynferðisbrot eru algengustu brotaflokkarnir. Innlent 26.10.2025 07:02
Nýtt vopn í búri fjármálaráðherra Ef breyta á lögum um áminningarskyldu ætti sú umræða heima í kjaraviðræðum opinberra starfsmanna, að mati forseta ASÍ. Hann segir að ný könnun Maskínu, sem sýnir að meginþungi opinberra starfsmanna vilji afnema áminningarskyldu, sé vopn í höndum fjármálaráðherra. Innlent 25.10.2025 15:14
Meirihluti vill afnema áminningarskyldu Um 48 prósent opinberra starfsmanna eru hlynnt afnámi áminningarskyldu ríkisstarfsmanna en aðeins um 32 prósent eru andvígir afnámi hennar, samkvæmt nýrri könnun. Á sama tíma eru um 54 prósent landsmanna hlynnt því að áminningarskyldan sé afnumin en aðeins 23 prósent andvíg. Viðskipti innlent 25.10.2025 10:20