Innlent

Leitinni að sundmanninum lokið að sinni

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa
Þyrla Landhelgisgæslunnar var enn á flugi um hálf tíu. Maðurinn sást síðast klukkan fimm síðdegis.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var enn á flugi um hálf tíu. Maðurinn sást síðast klukkan fimm síðdegis. Vísir

Töluverður fjöldi viðbragðsaðila var kallaður út eftir að tilkynnt barst um að sundmaður væri í sjónum við Fiskislóð í Reykjavíkurborg. Ekki hefur spurst til mannsins síðan klukkan fimm síðdegis. Leitinni lauk að ganga tíu að kvöldi til og verður staðan endurmetin í fyrramálið.

Tilkynning um einstakling í sjónum barst lögreglu korter fyrir fimm að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðarlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Þónokkrir bátar sigldu um.Vísir/Silja

Baldur Ólafsson varðstjóri, sem var staddur á vettvangi um sexleytið sagði að stöðugt sé verið að endurskipuleggja leitina út frá sjávarstraumum og fleira. 

„Það er í raun það sem er búið að vera í gangi og er í gangi. Það eru allir hérna: Landsbjörg, slökkvilið, lögregla, Landhelgisgæsla. Bátar, jetsky, kafarar. Það er ekkert farið að ræða hversu lengi við verðum að. Á meðan veður er gott og skyggni verður haldið áfram líklegast,“ segir Baldur. 

Uppfært klukkan 21:45: Leitinni er lokið að sinni að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns. Staðan verði endurmetin í fyrramálið.

Baldur segir að áhorfendur hafi haft auga með manninum þar til hann hvarf undan ströndinni. 

Klippa: Leita sundmanns við Örfirisey

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var einnig á vettvangi auk þyrlu Landhelgisgæslunnar. Samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var sérsveitaaðgerðasveit Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út á varðbátnum Óðni. 

Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug um.Vísir/Silja

Tveir flokkar sjóbjörgunarsveita Landsbjargar voru einnig kallaðir út samkvæmt Jóni Þóri Víglundssyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Kafarar á vegum sérsveitarinnar voru einnig verið kallaðir til aðstoðar segir Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu.

Lögregla hefur afmarkað svæðið þar sem margir viðbragðsaðilar koma að leitinni.Vísir/Silja

Fréttin var uppfærð klukkan 21:50




Fleiri fréttir

Sjá meira


×