Ómetanlegt að koma skilaboðum sinnar kynslóðar á framfæri á svo stórum viðburði Lovísa Arnardóttir skrifar 29. maí 2025 14:01 Sara Júlía segir það meðal hápunkta sem ungmennafulltrúi að hafa sótt High Level Political Forum í New York. Aðsend Fimm íslensk ungmenni eru aðalhlutverki í myndbandi sem var sýnt í Osaka í Japan í dag áður en Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, flutti ræðu á Heimssýningunni sem þar fer nú fram. Í myndbandinu deila ungmennin sýn sinni á frið, jafnrétti, sjálfbærni og framtíð samfélagsins, með áherslu á að rödd ungs fólks skipti máli í alþjóðlegri umræðu.
Alls koma fram fimm ungmennafulltrúar Ísland á vegum Sameinuðu þjóðanna í myndbandinu. Það eru Sara Júlía Baldvinsdóttir, ungmennafulltrúi á sviði sjálfbærrar þróunar, Emma Ósk Ragnarsdóttir, ungmennafulltrúi á sviði barna og ungmenna, Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, ungmennafulltrúi á sviði mannréttinda, Arna Dís Heiðarsdóttir, ungmennafulltrúi á sviði menntunar, vísinda og menningar og Ragnhildur Katla Jónsdóttir, sem er eins og Sara Júlía, ungmennafulltrúi á sviði sjálfbærrar þróunar. Í myndbandinu deila þær sýn sinni á frið, jafnrétti, sjálfbærni og framtíð samfélagsins, með áherslu á að rödd ungs fólks skipti máli í alþjóðlegri umræðu. „Það er ómetanlegt að fá tækifæri til að koma skilaboðum á framfæri á svona stórum vettvangi. Við erum rödd þeirra kynslóðar sem þarf að takast á við afleiðingar þess sem aðrir fresta, því verðum við að taka virkan þátt í samtalinu. Það er alveg frábært að fá tækifæri til að vera með einhverja rödd á viðburðinum þó maður sé ekki sjálfur á staðnum að tala við ungmennin sjálf,“ segir Sara Júlía. Klippa: Ungmenni í aðalhlutverki í Osaka Halla hóf í gær opinbera heimsókn til Japan sem stendur til 1. júní. Heimsóknin er í tilefni af heimssýningunni EXPO 2025 sem fram fer í Osaka. Þann 29. maí, flytur Halla ræðu á íslenska þjóðardeginum á Heimssýningunni í Osaka. Rétt áður verður sýnt myndband þar sem íslenskir ungmennafulltrúar Sameinuðu þjóðanna fjalla um frið, mannréttindi, sjálfbærni og jafnrétti. Myndbandið verður sýnt í skála Sameinuðu þjóðanna og er yfirskrift þjóðardagsinsviðburðarins Friður og jafnrétti. Markmiðið með honum er að veita gestum sýningarinnar innsýn í íslensk gildi og lífssýn. „Við erum öll tilnefnd í gegnum eitthvað ungmennastarf. Ég er tilnefnd í gegnum Samband íslenskra nema erlendis, SÍNE, því ég var í meistaranámi erlendis. En svo eru fulltrúar frá UN Women og ungliðastarfi stjórnmálaflokkanna. Félögin tilnefna í þessi embætti og svo er kosið í lýðræðislegri kosningu og við sitjum í tvö ár í senn.“ Sara Júlía á fundi á vegum Sameinuðu þjóðanna í júlí í fyrra. Aðsend Sara Júlía er við það að ljúka sínu starfi og hættir í október þegar kosið verður í embættið. Hún hefur í sínu starfi sem ungmennafulltrúi sótt ýmsa viðburði en segir það ákveðinn hápunkt að hafa sótt High Level Political Forum á vegum Sameinuðu þjóðanna í New York í júlí í fyrra. „Það er gríðarleg reynsla að fá að koma þarna og heyra hvað önnur lönd eru að gera hvað varðar sjálfbæra þróun á heimsmarkmiðunum, og að hitta fólk og önnur ungmenni. Svo er það auðvitað mikill heiður að fá að vera rödd ungmenna þegar kemur að þessu mikilvæga málefni sem er sjálfbær þróun. Að manni sé treyst fyrir því að tala um þessi stóru og mikilvægu mál fyrir hönd þessa mikilvæga hóps.“ Verður fljótt hluti af hugsunarhætti Sara Júlía lifir og hrærist í heimi sjálfbærrar þróunar og sjálfbærni. Hún lærði um það í meistaranámi sínu, starfar við það og sinnir því sem ungmennafulltrúi. „Þegar maður fer að pæla í þessu og skilja þetta, og skilja hvað þetta er mikilvægt, er ekki hægt að hundsa það. Þetta verður einhvern veginn bara lífsstíll. Þú ert ekki að fara að þróa vöru eða þjónustu án þess að hugsa um það hvaða áhrif það hefur á umhverfið og samfélagið. Þetta verður svo fljótt hluti af hugsunarhætti þínum. Ég hef alltaf fundið mikinn tilgang í þessu og hef alltaf verið mikill talsmaður þess að vinna við eitthvað sem þú hefur ástríðu fyrir.“ Hún segist í dag miklu meðvitaðri en áður um bæði neyslu sína og hegðun. „Maður tekur kannski heilt yfir upplýstari ákvarðanir um neyslu til dæmis. Ég hef aldrei verið brjálaður umhverfissóði, þannig þetta var ekki algjör umbreyting, en ég er klárlega orðin meðvitaðri um mig sjálfa og það samfélag sem við búum í og að við Íslendingar séum kannski ekki að standa okkur sérlega vel í umhverfismálum heilt yfir.“ Hvar eigum við að byrja? „Það er svona stóra spurningin auðvitað. Það fer eftir því hvort um sé að ræða stofnun, fyrirtæki eða einstakling, en að byrja er stóra málið. Að taka meðvitaða ákvörðun um að byrja og hafa góð áhrif.“ Kynna ungmenni fyrir starfi Sameinuðu þjóðanna Expo 2025 í Osaka stendur yfir frá apríl til október og er áætlað að allt að 2,5 milljónir gesta heimsæki Norræna skálann á þeim tíma. Ísland tekur þátt í skálanum ásamt hinum Norðurlöndunum og leggur áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og norræn lífsgildi. „Það skiptir máli að ungt fólk fái rými á alþjóðavettvangi, bæði sem hlustendur og sem virkir þátttakendur. Myndbandið er stutt en öflugt framlag til dagskrár sem snýst um að miðla íslenskum sjónarhornum, og það gleður okkur sérstaklega að ungt fólk tali hér beint inn í umræðu um frið, sjálfbærni og framtíðarsýn þeirra,“ segir Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Ungmennafulltrúar Íslands skipa sendinefnd Landssambands ungmennafélaga (LUF) hjá Sameinuðu þjóðunum. Ungmennafulltrúar eru lýðræðislega kjörnir af aðildarfélögum LUF. Ungmennafulltrúarnir sækja viðburði í samstarfi eftirfarandi ráðuneyti: Forsætisráðuneytið, umhverfis- orku-, og loftslagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið auk menningar- og viðskiptamálaráðuneytisins. Sendinefnin er samstarfsverkefni LUF og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem vinna að aukinni þátttöku Ungmennafulltrúa Íslands á viðburðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Youth Delegation Programme.) Félag Sameinuðu þjóðanna hefur það að markmiði að kynna sérstaklega börnum, ungmennum og almenningi á Íslandi hlutverk ungmennafulltrúanna. FSÞ veitir sendinefndinni fræðslu og stuðning í hlutverki sínu í samvinnu með LUF. Þá er eitt helsta hlutverk FSÞ einnig að stuðla að aukinni umfjöllun hvort sem um ræðir með viðtölum, fréttaflutningi eða þátttöku þeirra í viðburðum.
Réttindi barna Umhverfismál Sameinuðu þjóðirnar Japan Forseti Íslands Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira