Bolludagur, sprengidagur, öskudagur og maskadagur Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar 3. mars 2025 16:14 Ofurspenntir bræður á afmælis-, Bollu- og Maskadegi. Harpa María Móðir á Ísafirði hefur í nægu að snúast enda ber bolludag og maskadag upp á afmælisdag sex ára sonar. Já, maskadagur er haldinn hátíðlegur vestur á fjörðum en fyrir vikið er lítið um fagnaðarlæti þegar sprengidag ber upp á miðvikudag.
Í sjöundu viku fyrir páska eru þrír hátíðisdagar sem eiga sérstakan stað í þjóðarsálinni hér á landi en þó eru siðirnir sem þessum dögum fylgja misjafnir eftir landshlutum. Á mánudeginum er bolludagurinn þar sem flestir landsmenn reyna að innbyrða sem mest af bollum. Á þriðjudeginum tekur svo við sprengidagur þar sem saltkjöt og baunir vermir diskinn og á miðvikudeginum er svo öskudagur. Maskadagurinn Hinsvegar er hefðin á Ísafirði, Bolungarvík og nágrenni sú að á bolludegi er einnig haldinn hátíðlegur svokallaður maskadagur. Ólöf Anna Benediktsdóttir skólaritari Grunnskólans á Ísafirði sagði í stuttu viðtali við Vísi að þá fari börnin í búning og svo er haldið maskaball í grunnskólum og leikskólum fyrir vestan. Þegar myrkrið skellur svo á fara börnin að „maska“ en þá ganga börn í hús og banka upp á hjá fólki í bænum sem gefur þeim sælgæti, ekki ósvipað amerísku hefðinni á hrekkjavökunni sem er heldur betur að festa sig í sessi hér á landi. Krakkarnir á Ísafirði skemmta sér væntanlega konunglega í dag.vísir/Einar Fyrir vestan er Öskudagurinn ekki haldinn hátíðlegur nema að því leyti að einhverjir sækja í gömlu hefðina að hengja öskupoka á aðra. En búningarnir verða eftir heima því fyrir vestan er maskadagurinn á bolludaginn sá dagur sem börnin fara í búning og syngja fyrir sælgætinu. Vísir heyrði einnig í Hörpu Maríu Grétarsdóttur frá Ísafirði en sonur hennar Emil Berg Tómasson var einstaklega spenntur fyrir deginum í dag því hann á einmitt sex ára afmæli og byrjaði daginn á að skottast í Sonic-búninginn sinn og fá sér bollu í morgunmat. Afmælisbarnið Emil Berg vaknaði snemma og skellti sér í Sonic-búninginn í tilefni dagsins! Til hamingju með sex ára afmælið Emil!Aðsend Í fimm ára-náminu hans á leikskólanum Tanga á Ísafirði fara börnin svo í búninga sem þau hafa búið til sjálf og dansa og syngja. Eftir leikskóla ætlar Emil að fara aftur í Sonic-búninginn og fara að maska með stóru systur sinni og eru ísfirsk börn úti að berja að dyrum fram eftir kvöldi og koma venjulega heim með fulla bakpoka af sælgæti. Bolludagurinn Á bolludaginn hér áður fyrr stóð valið á milli þess að fá sér gerbollu eða einfalda vatnsdeigsbollu með súkkulaði, sultu og rjóma. Nú keppast allir við að gera framandi bollur með ýmsu sniði. Vegan bollur, ketó bollur, sykurlausar bollur, glútenlausar bollur, karamellu kropps bollur, eggja- og mjólkurlausar bollur. Gamlar uppskriftir með nýju tvisti, í nýjum litum með allskyns skrauti, sælgæti og ferskum ávöxtum og toppað með bragðbættum rjóma í öllum regnbogans litum. Að sjálfsögðu fékk Emil Berg bollu í morgunmat á sex ára afmælisdaginn enda er bæði Bolludagur og Maskadagur sem ber upp á afmælisdegi Emils Berg þetta árið.Aðsend Bolludagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á Íslandi í meira en hundrað ár en nafnið má finna fyrst á prenti árið 1910. Þar áður var dagurinn oft kallaður flengingardagur. Siðir eins og að ganga um bæinn í grímubúningum og að slá köttinn úr tunnunni koma frá Danmörku og hafa þeir siðir hérlendis tekið breytingum í aldanna rás. Leikskólabörn landsins búa enn til bolluvendi og flengja fólk allan liðlangan daginn og þurfa svo að borða eina bollu fyrir hverja flengingu sem þau ná þann daginn. Sprengidagur – Saltkjöt og baunir – túkall! Sprengidagur eða sprengikvöld felur í sér mikilfenglega átveislu, baunasúpugerð með kartöflum og saltkjöti. Dagurinn er Íslendingum að góðu kunnugur en þó má ávallt minna á að vera meðvituð um saltneysluna sem réttinum fylgir og mikilvægi þess að drekka nóg vatn. Öskudagurinn Öskudagshefðin hefur verið hvað sterkust á Norðurlandi þar sem frí er í skólum, börnin vakna eldsnemma og fara í búning og fara í öskudagsliðum og heimsækja fyrirtæki og verslanir bæjarins þar sem þau syngja sér inn sælgæti. Þá er dagskrá fyrir börnin á Glerártorgi frá klukkan tíu þar sem hægt er að syngja og fá gott í poka. Stemmningin hefur verið góð á Glerártorgi í gegnum árin.Glerártorg Í ár tekur Leikfélag Menntaskólans á Akureyri á móti börnunum á Glerártorgi og hlusta á söng og gefa börnunum sælgæti. Þau verða einnig með atriði úr sýningunni Galdrakarlinn í Oz sem verður frumsýndur í Hofi þann 14. mars. Þá lýkur deginum á því að kötturinn verður sleginn úr tunnunni eins og gert hefur verið í tugi ára. Börnin fara svo heim klyfjuð af sælgæti í haldapokum sem ætti að duga börnunum langt fram að hausti. Borgarbörn í Reykjavík hafa ekki kynnst þessum sið líkt og börnin fyrir norðan þó einhverjar verslanir taki þátt og er frekari áhersla á að halda daginn hátíðlega í skólum og leikskólum. Sinn er siður í landshluta hverjum en eitt er þó víst að börnin fara glöð inn í vikuna enda spennan víða mikil.
Öskudagur Bolludagur Sprengidagur Menning Ísafjarðarbær Bolungarvík Akureyri Mest lesið Kona féll fram af svölum fjölbýlishúss í Breiðholti Innlent Telur tjónið nema milljarði: Mölbrotinn flygill og gólfið eins og sjávarbotn Innlent Kennari mun ekki hlýða snjallsímabanni í skólum Innlent „Auðvitað hefur þetta áhrif á formannskjörið“ Innlent Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir er látin Innlent Gulli hafi loksins unnið formannsslag Innlent Aldan hrifsaði bíla og fólk út í sjó Innlent Sérsveitaraðgerð í Kópavogi Innlent Helgi Seljan byrjaður að vinna á RÚV Innlent Reynir að greiða úr flækjunni standi Guðrún við stóru orðin Innlent Fleiri fréttir Slegin óhug vegna eyðileggingarmáttar náttúruaflanna Fljúga tveimur vikum lengur Enginn uppfyllti skilyrðin í upphafi Þungt haldinn eftir að hafa farið í sjóinn Staðan sé betri í dag en í fyrradag Eyðilegging eftir óveður og bolluóðir landsmenn Samfylkingin eykur fylgið Fékk blóðnasir í pontu Sögðu 23 starfsmönnum sláturhússins upp Kennari mun ekki hlýða snjallsímabanni í skólum Sérsveitaraðgerð í Kópavogi Helgi Seljan byrjaður að vinna á RÚV Reynir að greiða úr flækjunni standi Guðrún við stóru orðin Vill flýta þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að ESB Kona féll fram af svölum fjölbýlishúss í Breiðholti Gulli hafi loksins unnið formannsslag Vonskuveður víða um land og Anora kom á óvart Telur tjónið nema milljarði: Mölbrotinn flygill og gólfið eins og sjávarbotn Ekki óvanalegt að kennarar fengju meiri hækkanir „Auðvitað hefur þetta áhrif á formannskjörið“ Aldan hrifsaði bíla og fólk út í sjó Svona skimarðu fyrir krabbameini í ristli heima hjá þér Telur að psilocybin og MDMA fái markaðsleyfi á næstu árum Segir reynsluna úr atvinnulífinu hafi skipt sköpum fyrir sigurinn Bein útsending: Daði situr fyrir svörum um styrkjamálið Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir er látin Sóttu mann í ógöngum á Hólmatindi Lokuðu mann inni á meðan beðið var eftir lögreglu Þak flettist af húsi í Sandgerði Bátur kastaðist upp á bryggju í hamfaraveðri í Sandgerði Sjá meira