Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Það fer ekki framhjá neinum sem heimsækir Grímsey að þarna er samfélag sem býr yfir ótrúlegum styrk og þrautseigju. Með þetta í farteskinu hafa Grímseyingar haldið áfram og sýnt okkur samheldni og úthald við aðstæður sem íbúar í þéttbýlinu mundu flestir telja ólíðandi. En síðustu aðgerðir eða kannski væri rétt að segja aðgerðarleysi stjórnvalda eru þannig að úthald Grímseyinga fer minnkandi. Skoðun 1.5.2026 07:32
Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Mikil endurnýjun er á oddvitum framboða á Akureyri og í Fjallabyggð fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar en af ellefu oddvitum í sveitarfélaganna eru sjö nýir. Þrír oddvitar eru enn fremur glænýir í sveitarstjórnarmálum í sveitarfélögunum, oddvitar Viðreisnar og L-listans á Akureyri og oddviti Jafnaðarfólks og óháðra í Fjallabyggð. Aðeins Framsókn, Vinstri græn og Miðflokkurinn eru með sömu oddvita og í síðustu sveitarstjórnarkosningum á Akureyri. H-listinn í Fjallabyggð heldur sig einnig við sama mann í forystusæti og síðast. Innlent 28.4.2026 15:02
Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Bifreiðastöð Oddeyrar hefur fallið frá dómsmáli á hendur Akureyrarbæ og verður húsnæði stöðvarinnar yfirgefið fyrir vikulok. Formaður bæjarráðs telur niðurstöðuna farsæla fyrir báða aðila. Innlent 27.4.2026 21:00
Sterkari saman Á laugardaginn, þegar sléttar fjórar vikur voru til kosninga, kynntum við í Samfylkingunni á Akureyri stefnuskrána okkar og kosningaáherslur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Áherslurnar eru afrakstur vinnu listans, sem samanstendur af 22 öflugum og ólíkum einstaklingum, samtali við íbúa, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök um hvernig við byggjum bæinn okkar til framtíðar. Skoðun 22. apríl 2026 08:50
Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð Það er erfitt að hugsa sér Akureyri án Andrésarleikanna. Í hálfa öld hafa þeir fyllt Hlíðarfjall lífi, bundið saman kynslóðir og orðið ómissandi hluti af vetrarmenningu bæjarins. Saga þeirra á sér skemmtilegt upphaf en hún hófst á kaffistofu í Hafnarstræti 100. Skoðun 22. apríl 2026 07:02
Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Rannsókn á meintu kynferðisbroti og líkamsárás á Akureyri í byrjun mars hefur verið hætt. Talið var að ekki væri hægt að sýna fram á meint brot. Eitt brotanna, gegn kynferðislegri friðhelgi, hefur verið sent til héraðssaksóknara. Innlent 21. apríl 2026 14:58
Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 21. apríl 2026 08:02
Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Einn er í haldi eftir líkamsárás á Akureyri. Annar var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn vera í lífshættu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til vegna málsins. Innlent 21. apríl 2026 07:48
Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Einn var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu við Gránufélagsgötu á Akureyri í nótt, þar sem sérsveit ríkislögreglustjóra kom að málum. RÚV greinir frá og segir mikinn viðbúnað hafa verið á svæðinu. Innlent 21. apríl 2026 06:38
„Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Lögregla hefur fellt niður rannsókn á Sigurði Sindra Magnússyni athafnamanni í tengslum við meint kynferðisbrot á Akureyri. Hann segist ekki myndu óska neinum þess að vera ranglega bendlaður við kynferðisbrot en Sigurður hefur síðasta mánuðinn setið undir aðkasti á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt er að hann sé nauðgari. Hann segist aðeins hafa leigt húsnæði þar sem meint brot átti sér síðan stað og því hafi hann verið boðaður í skýrslutöku við upphaf lögreglurannsóknar. Að öðru leyti komi hann ekki nálægt málinu. Innlent 20. apríl 2026 23:40
Sterkari Háskóli, sterkari Akureyri! Háskólinn á Akureyri er einn sterkasti hornsteinn samfélagsins okkar. Háskólinn hefur ekki aðeins byggt upp öflugt mennta- og rannsóknarumhverfi, heldur hefur hann einnig laðað að fólk til búsetu, styrkt atvinnulíf og aukið fjölbreytni í samfélaginu. Skoðun 19. apríl 2026 11:32
Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Presta- og djáknastefna fer þessa dagana fram á Akureyri. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem biskup Íslands kallar vígða þjóna kirkjunnar til fundar við sig og samtals. Biskup fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna en segir mega gera betur. Innlent 16. apríl 2026 07:50
„Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Vaxtarræktarheimurinn nötrar eftir að Íslandsmótið í fitness fór fram á Akureyri um helgina. Einkaþjálfarinn Guðmundur Emil Jóhannsson telur sig hafa verið rændan sigri eftir að hafa lent í öðru sæti á eftir Íslandsmeistaranum Sæmundi Frey Erlendssyni. Sæmundur segir Guðmund hafa látið keppnisskapið leiða sig í gönur og hann gert lítið úr mótherjum. Lífið 15. apríl 2026 13:00
Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Maður leitaði á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri aðfaranótt föstudags með stunguáverka og þurfti að undirgangast skurðaðgerð. Ráðist var á hann í heimahúsi og tveir eru grunaðir um aðild að málinu. Innlent 11. apríl 2026 14:47
Þau skipa L-listann á Akureyri Óðinn Svan Óðinsson, fyrrverandi fréttamaður Ríkisútvarpsins, er oddviti L-listans á Akureyri en listinn hefur verið samþykktur. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi og lífeindafræðingur, skipar annað sætið. Innlent 9. apríl 2026 12:47
Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi. Innlent 9. apríl 2026 09:01
Fólk stillt að mestu á Akureyri Varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri segir kvöldið hafa gengið rólega fyrir sig þrátt fyrir mikinn fjölda fólks í bænum yfir helgina. Lögregla sinnti minniháttar líkamsárás. Innlent 5. apríl 2026 10:14
Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði afskipti af þremur afhendingarstöðum áfengisverslana og lét loka þeim í gær. Óheimilt er samkvæmt áfengislögum að afhenda áfengi á helgidögum. Embættið hefur haft eftirlit með sömu stöðum í dag. Innlent 3. apríl 2026 15:11
„Þetta hlýtur að verða metdagur“ Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins telur líklegt að um metdag sé að ræða. Innlent 3. apríl 2026 14:16
Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fara fram á að starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri skili páskaeggjum sem það fékk að gjöf frá Smáríkinu, sem opnaði í bænum í vikunni. Forstjóri sjúkrahússins segist hingað til hafa tekið við öllum gjöfum og ekki gert upp á milli gefenda. Verkferlar verði þó skoðaðir. Innlent 3. apríl 2026 12:10
Færri strætóferðir um páskana Strætó verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana á höfuðborgarsvæðinu og á sunnudags- og laugardagsáætlun landsbyggðinni. Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina. Innlent 31. mars 2026 08:22
Gerum hlutina almennilega! Aðstöðumál íþróttafélaga skipta sköpum fyrir öflugt íþróttastarf. Þau skipta líka miklu máli fyrir samfélagið í heild. Svo Akureyri sé aðlaðandi kostur fyrir fjölskyldufólk til að setjast að þarf aðstaða fyrir börn og ungmenni að vera í lagi. Þar gegna íþróttamannvirki lykilhlutverki. Skoðun 30. mars 2026 13:00
Foreldrar segja lögreglu gera lítið úr meintu kynferðisbroti á barni sínu á leikskólaaldri Foreldrar gera alvarlegar athugasemdir við opinbera umfjöllun lögreglu um mál er varðar meint kynferðisbrot starfsmanns leikskólans Tröllaborga á Akureyri á barni sínu. Innlent 27. mars 2026 18:28
Snekkjan fékk undanþágu frá hafnbanni Snekkja skattsvikarans og auðjöfursins rússneska Olegs Tinkov, La Datcha, liggur við bryggju á Akureyri þar sem hún tekur olíu og neyðarvistir. Hafnarbann á snekkjunni vegna þvingunaraðgerða gegn Rússum er enn í gildi en undanþága var veitt af öryggisástæðum. Innlent 27. mars 2026 17:42