Til hagsbóta fyrir vinnandi fólk Bjarni Benediktsson skrifar 3. október 2014 07:00 Athugasemdir Alþýðusambands Íslands vegna aðgerða stjórnvalda til að bæta hag heimilanna standast ekki skoðun. Ríkisstjórnin hefur tekið á skuldavandanum, lækkað tekjuskatt og styrkt velferð. Ábyrg ríkisfjármálastjórn hefur tryggt hærri tekjur um leið og skuldasöfnun ríkisins hefur verið stöðvuð. Allt þetta ásamt réttlátari skattastefnu hækkar ráðstöfunartekjur og gerir fólki auðveldara að ná endum saman. Að slík stefna sé nefnd aðför að launafólki eru hrein öfugmæli.Förum yfir nokkrar staðreyndir:1. Lækkun á miðþrepi tekjuskatts Tekjuskattur 130 þúsund launþega hefur verið lækkaður. Miðþrep í tekjuskatti einstaklinga lækkaði úr 25,8% í 25,3% eða um 0,5% prósentustig, auk þess sem neðri viðmiðunarmörk þrepsins hækkuðu um tæpar 49 þús. kr. eða í 290 þús krónur. Um 90% skattgreiðenda nutu góðs af lækkun miðþreps tekjuskattsins. Það er fráleitur málflutningur að kalla skattalækkanir sem ná til alls meginþorra launþega aðför að launafólki líkt og ASÍ hefur gert. Þá lækkaði skattur sérstaklega hjá tekjulágum þar sem fleiri greiða nú eingöngu skatt í neðsta þrepinu með hækkun á lægra viðmiðunarmarki miðþrepsins. Skattur lækkaði á þá einstaklinga sem höfðu tekjur á bilinu 241.475 – 290.000 kr. á mánuði úr 40,22% í 37,3%, eða um tæplega þrjú prósentustig. Skattkerfið er eftir sem áður með þeim hætti að vegna áhrifa persónuafsláttarins eru þeir sem greiða eingöngu skatt í lægsta skattþrepinu með minnstu skattbyrðina. Það er mikilvægt að vinda ofan af nýlegum skattahækkunum vinstristjórnarinnar á langflesta launþega, alla þá sem greiða skatta í milliþrepinu. Með þessu var fyrsta skrefið tekið.2. Afnám auðlegðarskatts ASÍ gagnrýnir að auðlegðarskattur hafi runnið sitt skeið á enda. Skatturinn er ósanngjarn eignaskattur þar sem ekkert tillit er tekið til tekna. Auk þess er rétt að benda á að það var fyrri ríkisstjórn sem lagði skattinn á tímabundið. Sú ráðstöfun er látin standa. Tekjulágir eldri borgarar voru stór hluti greiðenda auðlegðarskattsins. Sýnt hefur verið fram á að um þriðjungur greiðenda var 65 ára og eldri og tveir þriðju þeirra með undir fimm milljónum króna í árslaun. Er því ljóst að margir hafa ekki getað greitt skattinn nema ganga á eignir sínar. Þetta kallar ASÍ að „afsala“ sér skatttekjum. Ríkisstjórnin vinnur ekki samkvæmt þeirri hugmyndafræði að lækkun skatta feli í sér afsal á réttmætum tekjum ríkisins. Stefnan er að halda sköttum lágum og veita einstaklingum svigrúm til athafna. Þá fela tekjuaðgerðir ríkisstjórnarinnar ekki í sér tekjutap fyrir ríkið. Heildaraðgerðir ríkisstjórnarinnar leiða til hærri tekna þar sem undanþágur slitabúa frá bankaskatti hafa verið afnumdar og skatturinn hækkaður. Fjármálafyrirtæki og slitabú borga nú hærri skatta. Þeir sem vinna borga lægri skatta. Það er réttlæti. Ekki aðför að launafólki.3. Höfuðstólslækkun húsnæðisskulda Gagnrýni ASÍ á aðgerðir ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun verðtryggðra skulda heimilanna í landinu er sú að aðgerðirnar muni frekar nýtast tekjuhærri heimilum en þeim tekjulægri. Hið rétta er að fjögurra milljóna króna hámark á skuldaniðurfærslu á hvert heimili tryggir innbyrðis jafnræði milli ólíkra tekjuhópa og að skuldaniðurfærslan nýtist sem flestum. Í 110% leiðinni tóku um níu þúsund heimili þátt. Þau skiptu 45 ma.kr. á milli sín og fékk tekjuefsta tíundin mest til sín með þeirri leið. Um 69 þúsund heimili taka þátt í núverandi skuldaniðurfærslu og skipta 73 ma.kr. á milli sín. Yfir 100.000 manns munu með beinum hætti njóta góðs af aðgerðunum sem mun létta greiðslubyrði lána og eru þá ótaldir allir þeir sem nýta sér skattfrelsi lífeyrisiðgjalda í séreignarsparnaðarleiðinni. Þetta er ekki aðför að heimilunum. Það er verið að aðstoða fólk við að eiga og eignast heimili.4. Virðisaukaskattur og vörugjöld Breytingar á virðisaukaskatti og afnám vörugjalda skilar heimilunum um 3,5 milljörðum í auknar ráðstöfunartekjur á næsta ári. Þá tekur ASÍ í gagnrýni sinni ekki með í reikninginn að beinar aðgerðir í formi 13% hækkunar á barnabótum munu skila sér að fullu til tekjulægri barnafjölskyldna. Áhyggjur ASÍ snúa að því að breytingarnar muni ekki skila sér til heimilanna, en áhrif þeirra til hækkunar á ráðstöfunartekjum hafa verið metin 0,5% og lækkun verðlags um 0,2%. Hagsmunaaðilar launþega og neytenda hafa í þessum efnum hlutverki að gegna enda mikilvægt að tryggja sem best eftirfylgni og eftirlit með breytingunum. Nýlegar auglýsingar frá verslunum, sem boða 17-20% lækkun á ýmsum heimilistækjum vegna afnáms vörugjalda, gefa sterka vísbendingu um að íslensk fyrirtæki, sem ekki eiga einungis í samkeppni á innlendum markaði heldur einnig við verslun erlendis, ætli sér að skila þessum lækkunum að fullu til neytenda.5. Breytingar á lífeyrisgreiðslum Árið 2009 voru leiddar í lög ýmsar breytingar sem juku tekjutengingar greiðslna almannatrygginga til aldraðra og öryrkja. Eitt fyrsta verk núverandi ríkisstjórnar var að ráðast í breytingar til að bæta kjör aldraðra og öryrkja og afturkalla þessar skerðingar vinstri stjórnarinnar og því er gagnrýni ASÍ á breytingar á lífeyrisgreiðslum almannatrygginga í hæsta máta furðuleg. Á árinu 2014 hækkuðu greiðslur ellilífeyristrygginga um 3,6% og á næsta ári munu þær hækka um 3,5% en það eru meiri hækkanir en breytingar á verðlagi gefa tilefni til og í takt við kaupmáttaraukningu launa að undanförnu. Samtals hafa lífeyrisgreiðslur almannatrygginga hækkað um 8,8 milljarða króna á tveimur árum. Í því sambandi er vert að hafa í huga að lífeyrisgreiðslur almannatrygginga voru ekki skertar á árunum eftir hrun eins og raunin var með greiðslur sem skertar voru vegna lífeyrissjóðsréttinda.Hvað skiptir mestu máli? Eðlilega eiga stjórnvöld von á því að aðilar vinnumarkaðarins hafi uppi ýmis ólík sjónarmið hvernig best sé að bæta kjör fólks. Á sama tíma er gerð sú krafa að tekið sé tillit til þess árangurs sem náðst hefur og skilar sér í auknum ráðsstöfunartekjum allra í landinu. Verðbólga er sögulega lág, ný störf eru að verða til og kaupmáttur launa eykst. En það er ekki sjálfgefið að slíkur bati haldist og ábyrgðin hvílir ekki á stjórnvöldum einum. Ríkisstjórnin mun áfram vinna að hag allra landsmanna, bættum lífskjörum og réttlátara samfélagi og býður öllum til samstarfs sem leggja vilja því verkefni lið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bjarni Benediktsson Mest lesið Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar