

Vinnumálastofnun hefur fengið fjölda ábendinga um að erlend ferðaþjónustufyrirtæki starfi hér á landi án tilskilinna leyfa.
Á vef pólsku sjónvarpsstöðvarinnar WP var nýlega fjallað um skemmdir á Douglas Dakota en pólsk nöfn hafa verið krotuð á vélina.
Forstjóri Icelandair Group segir að malasíski auðkýfingurinn Vincent Tan, sem hefur keypt meirihluta í Icelandair Hotels, sjái stórt tækifæri í því að fjölga ferðamönnum frá Asíu til Íslands. Það sé meðal annars ástæðan fyrir kaupunum.
Berjaya,félag í eigu Vincent Tan, kaupir 75 prósent hlut í Icelandair Hotels.
Sé leitað að Breiðamerkursandi á Google Maps kemur ekkert upp. Breiðamerkursandur blasir hins vegar við þeim sem leitar séu leitarorðin Diamond Beach notuð.
Á vef Neytendastofu er vakin athygli á fréttatilkynningu frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um samkomulag sem hefur verið gert við Airbnb.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir tækifæri fólgin í þrengri stöðu ferðaþjónustunnar eftir fallWOW air. Hún segir Reykjavíkurbréfin ekki hafa mikil áhrif á sig.
Sóttvarnalæknir segir að enn geti bæst í hóp þeirra 16 barna sem vitað er að greinst hafi með sýkingu af völdum E. coli-bakteríunnar sem rekja má til Efstadals II. Hann þekki dæmi þess að erlendir ferðamenn hafi veikst fljótlega eftir heimkomu úr Íslandsferðum. Möguleiki sé á að þeir hafi einnig sýkst vegna bakteríunnar.
105 þúsund færri erlendir ferðamenn fóru um Leifsstöð á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra.
Allrahanda og Reykjavík Sightseeing ætla að sameinast og vísa til hækkun launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar sem hafi skapað óhagstæð rekstrarskilyrði.
Heimilisfólkið á Þorvaldseyri telur myndefnið í Eyjafjallajökull Erupts að fullu í sinni eigu.
Ekið hefur verið utan hans með tilheyrandi raski.
Anthon Geisler þakkar vinnusemi og hollum lífsstíl háan aldur. Hann vinnur enn í lítilli verslun sinni í Ilulissat á Grænlandi.
Aukið sætaframboð í flugi myndi breyta landslagi Íslenskrar ferðaþjónustu, en mikil óvissa ríkir um afkomu fyrirtækja í greininni í haust, að mati formanns Samtaka ferðaþjónustu.
Ólafur Eggertsson bóndi áhugalaus um að deila hagnaði af sýningum á Eyjafjallajökull Erupts.
Útlit er fyrir að kyrrsetning Boeing 737 MAX flugvéla muni vara lengur en reiknað hafði verið með og hefur Icelandair því uppfært flugáætlun sína til loka október næstkomandi.
Undanfarna áratugi hefur samband afkomu í útflutningsgreinum þjóðarinnar og lífskjara almennings í landinu stimplast rækilega inn í þjóðarsálina, þar sem sveiflur gjaldmiðils og gjöfulleiki auðlindanna hefur ráðið miklu um lífsskilyrðin. Lengi vel var sjávarútvegur nær einráður um þetta sveiflusamband og áhrif hans á efnahagslíf þjóðarinnar réð mestu um ákvarðanir stjórnvalda á hverjum tíma.
Kristján Helgi Carrasco og Kristinn Birkisson ganga þvert yfir Ísland, samtals fimm hundruð kílómetra frá Lóni í austri að Borgarfirði í vestri. Útsendari Fréttablaðsins rakst á þá í Hvannalindum, þá nýbúna að lenda í svaðilförum.
Vegna vaxandi áhuga og fjölgunar kínverskra ferðamanna á Íslandi hefur Bláa lónið haft það að markmiði að reyna að vera með einn kínverskumælandi starfsmann á hverri vakt.
Skortur á viðhaldi og slæmt ástand á vegum hálendisins eru meðal afleiðinga utanvegaakstur. Þetta segir Ólafur Guðmundsson sem hefur kannað ástand vega á hálendinu fyrir sveitarfélög landsins.
Eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Efstadals tvö í Bláskógabyggð harmar e.coli-smit sem kom upp þar.
Viktor Ólason hjá KúKú Campers segir samdrátt hjá fyrirtækinu nema um 10-13 prósentum miðað við janúar til júlí í fyrra. Júní þessa árs var þó betri en sami mánuður í fyrra.
Farþegar flugfélagsins Icelandair í júní mánuði voru 553 þúsund talsins og var sætanýting 88% í mánuðinum. Farþegafjöldi milli ára jókst því um 15% en framboð var aukið um 8%. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair Group.
Enn eru nokkrar vikur þar til að búast má við niðurstöðum í innsendar kröfur vegna rekstrarstöðvunar ferðaskrifstofunnar Gaman Ferða.
Þegar klukkan var að ganga þrjú í dag barst björgunarsveitum Landsbjargar tilkynning um slasaðan göngumann á gönguleiðinni um Laugaveginn, sunnan við Hrafntinnusker.
Rakel Garðarsdóttir segir skipulagningu gera gæfumuninn þegar kemur að því að draga úr notkun einnota umbúða og annars tilvonandi rusls.
Kröfur í þrotabú bókunarþjónustunnar Iceland Travel Asisstance, sem tekið var til gjaldþrotaskipta í mars á síðasta ári, námu rúmum 268 milljónum króna.
Ein stærsta ferðahelgi ársins er fram undan.
Fyrirtækið Mountaineers of Iceland fékk leyfi frá Bláskógabyggð til að grafa í Suðurjökul Langjökuls til að útbúa þar eitt hundrað metra ísgöng. Herbert Hauksson, stofnandi fyrirtækisins, segir náttúrulega íshella í jökulsporðinu vera að bráðna. Bjóða þurfi ferðamönnum nýjan möguleika á breyttum tímum.
Uppábúið rúm, náttborð og lampi er kannski ekki það fyrsta sem kemur í hugann þegar við hugsum um tjaldútilegu. Þetta er sá búnaður sem gestum býðst á tjaldhóteli í Mýrdal.