Íslenski boltinn

Víkingar syrgja stuðnings­mann sem lést langt fyrir aldur fram

Aron Guðmundsson skrifar
Stuðningsmenn Víkings Reykjavíkur á Meistaravöllum þar sem að lið þeirra tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð í leik gegn KR.  Aron má sjá á myndinni, þar styður hann sína menn.
Stuðningsmenn Víkings Reykjavíkur á Meistaravöllum þar sem að lið þeirra tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð í leik gegn KR.  Aron má sjá á myndinni, þar styður hann sína menn. Vísir/Anton Brink

Víkingar minnast eins af sínum dyggustu stuðningsmönnum, Arons Höskuldssonar, sem lést langt fyrir aldur fram þann 31. október síðastliðinn, í hjartnæmri færslu á samfélagsmiðlum.

Aron var einn af burðarásunum í stuðningsmannahópi Víkings Reykjavíkur sem verður að teljast einn sá sterkasti á landinu. Hann lést laugardaginn 31. október síðastliðinn.

„Það er mikilvægt að við tölum saman og höldum vel utan um hvert annað í gegnum þessa erfiðu tíma. Aron snerti hjörtu ótrúlega margra í 108 og víðar,“ segir í færslu stuðningsmannahóps Víkinga á samfélagsmiðlum þar sem minning Arons er heiðruð með myndbandi.

„Þetta er gríðarlega stór missir og þyngra en tárum taki fyrir félagið sem og hverfið allt. Hvíldu í friði, Víkingur númer eitt, minning þín mun lifa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×