Sport

Finnar neita að spila við Rúss­land á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Finnar og Rússar mætast oft á stórmótum í íshokkí en nú hóta Finnar sniðgöngu vegna innrásar Rússa í Úkraínu.
Finnar og Rússar mætast oft á stórmótum í íshokkí en nú hóta Finnar sniðgöngu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Getty/Vladimir Rys

Finnland hefur ákveðið að gera allt sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að Rússland fái sæti á heimsmeistaramótinu í íshokkí á næsta ári. Hugsanleg sniðganga er meðal þeirra úrræða sem koma til greina.

Þetta segir Heikki Hietanen, forseti finnska sambandsins, við blaðið Yle.

„Við höfum tekið afstöðu fyrir okkur sjálf: Finnland spilar ekki við Rússland,“ sagði Hietanen.

Finnland leitar nú til annarra Norðurlanda eftir stuðningi í því sem í raun er spurning um sniðgöngu. Einnig er haft samband við stórar Evrópuþjóðir.

„Ef nógu margir sniðganga leikina gegn Rússlandi verður auðvitað ómögulegt að halda mótið,“ sagði Hietanen.

Hann vill ekki gefa upp nánari upplýsingar um þau lönd sem hann hefur rætt við. Enn eru nokkur sambönd með málið til meðferðar eftir að Alþjóðaíþróttadómstóllinn úrskurðaði nýlega að hleypa verði Rússlandi aftur inn í íshokkíið.

Í Svíþjóð virðist sniðganga ólíkleg, að sögn Anders Larssons, forystumanns sænska sambandsins.

„Sænskt íþróttalíf hefur rætt þetta frá því að stríðið braust út. Við munum láta skoðun okkar og afstöðu í ljós, en sniðganga kemur hins vegar ekki til greina,“ sagði Larssons.

Fyrr á mánudag varð ljóst að Þýskaland íhugar að afsala sér gestgjafahlutverkinu fyrir heimsmeistaramótið í maí.

Frank H. Lutz, forseti þýska íshokkísambandsins, sagði við Eurosport að sambandið hefði beðið stjórnmálamenn um aðstoð.

„Ég vil ekki mála skrattann á vegginn og ég vil heldur ekki setja HM í uppnám, en að sjálfsögðu verðum við sem samband að horfast í augu við þann möguleika að við afsölum okkur þessu heimsmeistaramóti,“ sagði Lutz.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×