Efnahagsmál
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 69 ›
Yfirtakan muni líklega róa markaði í Evrópu Íslenskur greinandi segir að yfirtaka UBS á Credit Suisse muni líklega róa markaði í Evrópu en bankinn hafi verið svarti sauðurinn að ákveðnu leyti. Það að kaupverðið sé langt undir markaðsvirði komi ekki á óvart þar sem úlfatími sé á fjármálamarkaði. Bandaríkjamenn þurfi einnig að huga að lagabreytingum vegna veikleika sem komu bersýnilega í ljós í síðustu viku. Viðskipti erlent 19.3.2023 21:28
Fjármálaráðherra þurfi að gera meira: „Ásgeir er með þriðju vaktina“ Þingmaður Viðreisnar segir seðlabankastjóra sinna þriðju vaktinni í sambandi með fjármálaráðherra, sé litið til verkskiptingar á heimilinu. Ráðherrann þurfi að gera meira en að treysta bara á Seðlabankann og sýna aðhald í ríkisfjármálum. Viðskiptaráðherra segir alla í ríkisstjórn sammála um að ná þurfi verðbólgu, og ekki síður verðbólguvæntingum, niður sem fyrst þar sem ýmsar aðgerðir koma til greina. Viðskipti innlent 19.3.2023 13:04
Seðlabankastjóri: Lánshæfismat Íslands „lægra en við eigum skilið“ Seðlabankastjóri segist vera þeirrar skoðunar að lánshæfismat íslenska ríkisins sé „lægra en við eigum skilið“ en þar spilar meðal annars í að alþjóðlegu matsfyrirtækin virðast hafa vantrú á ferðaþjónustunni. Ef áætlanir fyrirtækja í hugverkaiðnaði um stórauknar útflutningstekjur á komandi árum ganga eftir þá mun það hins vegar hafa veruleg áhrif fyrir allt íslenska hagkerfið. Innherji 17.3.2023 07:01
Gera sömuleiðis ráð fyrir 75 punkta hækkun stýrivaxta Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 75 punkta á miðvikudaginn þegar tilkynnt verður um næstu ákvörðun. Spáin rímar við spá Greiningar Íslandsbanka sem birt var í gær. Viðskipti innlent 16.3.2023 12:41
Seðlabankastjóri segir íslenska bankakerfið með sterkar varnarlínur Seðlabankastjóri segir ekki hægt að útiloka að vandræði smærri banka í Bandaríkjunum smitist til annarra landa. Íslenska bankakerfið væri hins vegar undir strangasta eftirlit sem þekktist á Vesturlöndum og hann teldi að varnarlínur í fjármálakerfinu muni halda. Innlent 16.3.2023 11:45
Kaupmáttur rýrnaði um 1,7 prósent í fyrra Hagstofa Íslands áætlar að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila á mann hafi dregist saman um 1,7 prósent í fyrra borið saman við árið áður. Kaupmáttarrýrnunin var enn meiri á síðasta fjórðungi ársins. Viðskipti innlent 16.3.2023 11:04
„Ef þú ætlar að nálgast þetta þannig, þá lendirðu örugglega í vandræðum“ Daði Kristjánsson hreifst af rafmyntum fyrir nokkrum árum, hætti svo í hefðbundna bankageiranum og rekur nú fyrsta íslenska rafmyntafjárfestingasjóðinn, Viska Digital, ásamt meðstofnendum og viðskiptafélögum. Hann segir rafmyntir langtímaverkefni, nýtt áhugavert hliðarkerfi, en ekki leið til skjótfengins gróða: „Þá lendirðu örugglega í vandræðum,“ segir hann. Viðskipti innlent 16.3.2023 09:00
Áfram lækkanir í kauphöllum Hlutabréf í bönkum og fjármálastofnunum hafa lækkuðu áfram við opnun markaða á suðurhveli jarðar í nótt. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:38
Seðlabankinn slær varnagla vegna aukinnar áhættu Seðlabankinn gerði viðskiptabönkunum í dag að leggja meira fé til hliðar vegna vaxandi áhættu að undanförnu með því að auka framlög þeirra í sveiflujöfnunarsjóð. Bankarnir, heimilin og fyrirtækin standi þó almennt vel og vanskil sjaldan verið minni. Innlent 15.3.2023 19:31
Bönkunum gert að spara meira fyrir mögulegum áföllum Seðlabankinn ákvað í dag að hækka framlög viðskiptabankanna í sveiflujöfnunarauka upp í 2,5 prósent og hefur hlutfallið aldrei verið hærra. Þótt fjármálakerfið standi traustum fótum að mati bankans fari fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja versnandi í þrálátri verðbólgu. Innlent 15.3.2023 11:55
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 15.3.2023 09:01
Spá 75 punkta stýrivaxtahækkun Seðlabankans Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 75 punkta í næstu viku þannig að þeir fari úr 6,5 prósentum í 7,25 prósent. Viðskipti innlent 15.3.2023 08:45
Telja fjármálakerfið hér standa traustum fótum Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans telur að innlent fjármálakerfi standi traustum fótum. Þó hafa fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja farið versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Útlit er fyrir að verðbólga verði þrálát. Viðskipti innlent 15.3.2023 08:43
Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum Gjaldþrot Silicon Valley Bank (SVB) sýnir að sú stefna sem fjármálayfirvöld hafa rekið í einn og hálfan áratug var röng. Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum. Fleiri bankar glími við samskonar vanda og SVB en það stefnir þó ekki í aðra bankakrísu, segir Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við London School of Economics. Innherji 14.3.2023 15:00
Fjórar loðnur á tíkallinum –billjónir loðna á land! Þau góðu tíðindi bárust frá Hafrannsóknarstofnun að loðnuafli á yfirstandandi fiskveiðiári yrði aukinn um 184.100 tonn frá síðustu ráðgjöf, heildarmagn loðnu sem veiða má nemur því 459.800 tonnum. Þessi aukning mun skipta sköpum fyrir ríkissjóð við núverandi efnahagsaðstæður. Skoðun 14.3.2023 08:30
Tveir af hverjum fimm frá Bretlandi og Bandaríkjunum Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum febrúar samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða álíka margar brottfarir og í febrúar árið 2020 og um 86 prósent af því sem þær voru í febrúar 2018 eða þegar mest var. Viðskipti innlent 10.3.2023 07:37
Flotinn mokveiddi hrognafulla loðnu undan Reykjanesi í dag Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst. Loðnan er komin að hrygningu og þar með í sitt verðmætasta form og er hver dagur að skila eins til tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum. Viðskipti innlent 9.3.2023 22:44
Fátæk börn í skugga metárs í fjármagnstekjum og arðgreiðslum Þingmenn Flokks fólksins og Samfylkingarinnar gagnrýndu ríkisstjórnina fyrir aðgerðaleysi vegna vaxandi fjölda barna sem byggju við fátækt á Alþingi í dag. Á sama tíma væri metár í fjármagnstekjum og greiðslu arðs hjá stórútgerðinni. Forsætisráðherra sagði ríkisstjórnina hafa gripið til margvíslegra aðgerða fyrir þennan hóp og aðrar væru í undirbúningi. Innlent 9.3.2023 12:18
Segir ekki satt að Elva missi starfið tapi hún kosningunum Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það ekki satt að Elvu Hrönn Hjartardóttur verði gert að segja upp hjá VR tapi hún í formannskosningum félagsins. Hún hafi sjálf tekið það skýrt fram að fyrra bragði að hún ætlaði að hætta skyldi hún tapa. Innlent 9.3.2023 11:39
Leggur áherslu á mál sem formaður VR hafi sýnt lítinn áhuga Elva Hrönn Hjartardóttir sem býður sig fram til formennsku í VR gegn Ragari Þór Ingólfssyni sitjandi formanni segir félagið verða að taka á málum sem formaðurinn hafi sýnt lítinn áhuga. Formanns- og stjórnarkjör hefst í VR, fjölmennasta verkalýðsfélagi landsins, í fyrramálið og liggja niðurstöður fyrir á hádegi á miðvikudag eftir viku. Innlent 7.3.2023 20:01
Vöruviðskiptin óhagstæð um 25,9 milljarða Fluttar voru út vörur fyrir 73,8 milljarða króna í febrúar 2023 og inn fyrir 99,7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 25,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,1 milljarð króna í febrúar 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Viðskipti innlent 7.3.2023 10:32
„Þetta er algjörlega breyttur heimur“ Doktor í fjármálum segir heiminn algjörlega breyttan eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Hann segir að stríðið muni hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir hagstjórn í ríkjum heimsins. Innlent 5.3.2023 23:27
Forðast þurfi með öllum ráðum að lenda í vonda vítahringnum Formaður Framsóknarflokksins segir að það ófremdarástand sem skapaðist í efnahagsmálum á níunda áratugnum, með víxlverkun launahækkana og verðlags, megi aldrei endurtaka sig. Allir sem eitthvað geti gert verði að leggjast á eitt til að tryggja að svo verði ekki. Innlent 5.3.2023 13:00
Evrópusambandsdraugurinn Nú þegar gefur á bátinn í hagkerfum heimsins og verðbólga hefur farið vaxandi hefur gamall draugur verið dregin út úr skápnum. Aftur er komin í gang sama orðræða og í kjölfarið á hruninu þar sem innganga í Evrópusambandið átti að leysa öll okkar vandamál og er þá litið á evruna sem galdratæki sem bjargað geti öllum okkar vandræðum í eitt skipti fyrir öll. Skoðun 4.3.2023 08:31
Sex vilja verða varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Sex umsóknir bárust um embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits Seðlabankans en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 7. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 27. febrúar. Viðskipti innlent 2.3.2023 10:05
Ekki markmiðið að fjölga ferðamönnum heldur hámarka arðsemi þeirra „Við þurfum að passa svolítið hvernig við tölum um ferðaþjónustuna. Fólk talar stundum á svolítið óvæginn hátt um ferðaþjónustuna, og ég er alveg ekki viss um að það sé henni eða okkur til tekna að tala um að Ísland sé uppselt eða að þurfi að loka landinu eða að við séum að drukkna í ferðamönnum,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Innlent 1.3.2023 22:01
Kemur í ljós eftir viku hvort hnúturinn raknar Ef miðlunartillaga setts ríkissáttasemjara verður samþykkt heggur hún á hnút hörðustu kjaradeilu í landinu á síðari árum. Tillagan gerir ráð fyrir sömu launahækkunum og aðrir hafa fengið en þernur á hótelum og bílstjórar olíufélaganna og Samskipa fá að auki hækkun um launaflokk og áhættuþóknun. Innlent 1.3.2023 19:40
Gæti ráðist á næsta sólarhring hvort ný miðlunartillaga verði lögð fram Tími setts ríkissáttasemjara til að leggja fram nýja miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins fer að renna út vegna yfirvofandi verkbanns á mánudag. Hann er líka í þrengri stöðu en embættið var til að leggja fram slíka tillögu þar sem hann þarf að vera þess fullviss að báðir deiluaðilar muni samþykkja að tillaga hans fari í atkvæðagreiðslu. Innlent 28.2.2023 19:30
Rennur hratt úr tímaglasi sáttasemjara Reikna má með að settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins reyni að leggja fram miðlunartillögu á allra næstu dögum. Ýmsar ytri aðstæður hjálpa til við að flækja málin og tíminn vinnur ekki með lausn deilunnar. Innlent 28.2.2023 11:46
Boðaðar ráðstafanir leiði til tug milljarða tjóns Stærstu eigendur skuldabréfa ÍL-sjóðs telja það að ekki vera grundvöllur fyrir samningaviðræðum við fjármálaráðuneytið um uppgjör skuldbindinga sjóðsins. Þeir segja fulltrúa ráðuneytisins ekki hafa komið til móts við kröfur lífeyrissjóðanna. Viðskipti innlent 28.2.2023 11:38