Íslenski handboltinn

Stelpurnar töpuðu fyrir Sviss
Fyrsti æfingaleikur íslenska kvennalandsliðsins af þremur gegn Sviss fór fram í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í kvöld. Þar höfðu Svisslendingar betur, 20-17.

Rúnar Kára: Ég skammast mín ekki fyrir eina sekúndu
Landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason hefur yfirgefið herbúðir Rhein-Neckar Löwen og mun spila með öðru úrvalsdeildarliði, Hannover-Burgdorf, út þessa leiktíð. Hann kveður Löwen sáttur þó svo hann hefði gjarna viljað fá að spila meira hjá Guðmundi Guðmundssyni.

Valsmenn undir í hálfleik en unnu
Valur er kominn áfram í 16-liða úrslit Coca Cola-bikar karla í handbolta eftir sigur á Stjörnunni í dag, 29-22.

Vilja safna pening svo Sigfús geti lifað með reisn
"Sigfús Sigurðsson er íslensk þjóðhetja. Hann sýndi ótrúlegt hugrekki þegar hann steig fram og sýndi að hann ætti við vandamál að stríða.“

Gróttustelpur áfram í bikarnum
Grótta er komin í átta liða úrslit Coca Cola bikars kvenna í handbolta eftir 26-19 sigur á HK í Digranesi í kvöld.

Ragnar meiddist illa á æfingu með FH | Verður lengi frá
Handknattleiksmaðurinn Ragnar Jóhannsson, leikmaður FH, varð fyrir nokkuð slæmum meiðslum á æfingu liðsins í gær en hann fór í ökklalið.

Erfiður tvíhöfði hjá Framkonum í Ungverjalandi
Kvennalið Fram heldur í dag til Ungverjalands þar sem framundan eru tveir leikir við heimakonur í Köfem Sport Club í 3. umferð EHF-bikarsins.

Fullkomið kvöld hjá Hafnfirðingum | Myndir
Haukar unnu tveggja marka sigur á Selfyssingum og FH vann þægilegan sigur á Aftureldingu í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarsins í handknattleik kvenna í kvöld.

Róbert Aron óbrotinn
Handknattleikskappinn Róbert Aron Hostert verður frá keppni um tíma vegna meiðsla sem hann varð fyrir á rist í viðureign ÍBV og Vals um helgina.

Valsmenn fara á kostum í tónlistarmyndbandi
Handknattleikslið Vals gerði á dögunum skemmtilegt tónlistarmyndband þar sem þeir taka lagið La dolce vita með Páli Óskari Hjálmtýssyni.

Selja treyjur sínar til styrktar krabbameinsbaráttu
Handknattleiksmennirnir Björgvin Páll Gústavsson og Sverre Jakobsson, leikmenn Bergischer og Grosswallstadt í þýska handboltanum, hafa sett landsliðstreyjur sínar á uppboð til styrktar einstaklingi sem berst við krabbamein.

Sportspjallið: Aron Kristjánsson í yfirheyrslu hjá Gaupa
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, segir þá Björgvin Pál Gústavsson og Aron Rafn Eðvarðsson standa öðrum íslenskum markvörðum framar um þessar mundir.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - ÍR 26-23 | Seiglusigur Framara
Fram heldur í við topplið Olísdeildar karla eftir góðan þriggja marka sigur á ÍR á heimavelli í kvöld. ÍR-ingar voru þó nálægt því að koma til baka í lokin.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - HK 29-21 | HK sá ekki til sólar
Frábær byrjun síðari hálfleiks var lykillinn að sigri Hauka gegn HK í Olís-deild karla í kvöld. Lokatölur urðu 29-21 fyrir heimamenn í Haukum. Staðan í hálfleik var 12-7.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Akureyri 23-17 | Auðvelt hjá FH
FH vann öruggan sigur á Akureyri 23-17 í Olís deild karla í handbolta í kvöld á heimavelli sínum. FH var þremur mörkum yfir í hálfleik 9-6.

Guðjón Valur yfir hundrað mörkin í áttunda sinn
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, skoraði 18 mörk í vináttuleikjunum tveimur í Austurríki um helgina og komst með því yfir hundrað marka múrinn í ár.

Aron æfði með FH í síðustu viku
Aron Pálmarsson gat ekki tekið þátt í landsleikjunum á móti Austurríki um helgina þar sem hann er enn að jafna sig eftir hnéaðgerð. Guðjón Guðmundsson hitti á Aron þar sem hann var að æfa heima á Íslandi í síðustu viku og tók saman innslag sem var sýnt í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Strákarnir hentu frá sér fimm marka forskoti í lokin
Ísland tapaði 32-33 í seinni æfingaleiknum á móti Austurríki í Linz í kvöld en íslenska liðið hafði unnið eins marks sigur í leiknum í gærkvöldi. Þórir Ólafsson var markahæstur í íslenska liðinu með níu mörk. Austurríkismenn skoruðu sigurmarkið úr víti á lokasekúndu leiksins.

Hefði viljað vita af síðasta landsleiknum
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir leggur skóna á hilluna í vor eftir handboltaiðkun í aldarfjórðung. Fékk ekki að kveðja landsliðið eftir sautján ára landsliðsferil.

FH með góðan sigur á Selfyssingum
FH vann Selfoss, 23-18, í Olís-deild kvenna í handknattleik í kvöld en leikurinn fór fram í Kaplakrika.

Guðjón Valur fór hamförum í sigri Íslands á Austuríkismönnum
Íslenska landsliðið í handbolta vann góðan sigur á því austurríska, 29-28, í vináttulandsleik í Linz í Austurríki í kvöld.

Aron er áhyggjufullur af litlum spiltíma Ásgeirs Arnar
Íslenska landsliðið í handknattleik mætir því austurríska í tveimur æfingaleikjum í kvöld og á morgun.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Valur 19-24 | Valur á toppinn
Valur komst á topp Olísdeild kvenna með góðum sigri á Íslandsmeisturum Fram í kvöld. Valskonur eru enn taplausar á tímabilinu.

Steinunn meidd | Rétt eftir að Ásta Birna sleit krossbönd
Íslandsmeistarar Fram hafa orðið fyrir annarri blóðtöku en Steinunn Björnsdóttir, leikmaður liðsins, meiddist í landsleik Íslands og Slóvakíu um helgina og verður líklega frá keppni í einhvern tíma.

Mosfellingar unnu toppslaginn í Mýrinni
Afturelding er nú eina liðið með fullt hús í 1. deild karla í handbolta eftir tveggja marka útisigur á Stjörnunni í kvöld, 28-26, í toppslag deildarinnar í Mýrinni.

Pistill: Úr klefanum hjá konunum í ÍR
„Ég sagði á uppskeruhátíð í vor að það væri ekki hægt að ÍR væri að ala upp leikmenn fyrir önnur félög.“

Þetta var risastór dagur fyrir mig
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta byrjaði undankeppni EM með stæl í gær. Stelpurnar völtuðu yfir Finnland, 34-18. Mikill styrkleikamunur var á liðunum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Finnland 34-18 | Finnar engin fyrirstaða
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik byrjaði undankeppni EM vel í kvöld er liðið rúllaði yfir slakt lið Finna. Sextán marka sigur var síst of stór.

Stella nýr fyrirliði landsliðsins
Stella Sigurðardóttir verður fyrirliði kvennalandsliðs Íslands í handknattleik í leikjunum gegn Finnum og Slóvökum í undankeppni HM.

Íris Björk inn fyrir Florentinu
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, hefur í nógu að snúast vegna forfalla leikmanna landsliðsins.