
Borgarbyggð

Gæti nýr alþjóðaflugvöllur byggst upp á Mýrum í Borgarfirði?
Jarðhræringarnar á Suðurnesjum neyða okkur til að hugsa margt upp á nýtt. Eitt af því er staðsetning nýs alþjóðaflugvallar. Nokkrar staðsetningar hafa verið í umræðunni undanfarin ár og ljóst að Hvassahraun er ekki lengur kostur. Hólmsheiði hefur verið nefnd sem og Suðurlandið. Möguleg eldvirkni í Bláfjöllum þrengir nokkuð að þessum kostum.

Reglugerðafargan gerir smáframleiðendum erfitt fyrir
Mikil fjölgun er í flóru smáframleiðenda á Íslandi, sem framleiða allskonar matvæli og selja beint frá býli. Reglugerðafargan gerir þó mörgum erfitt fyrir.

Getur ekki flutt inn því það býr kona í íbúðinni hennar
Kona sem gerði húsaleigusamning um íbúðarhúsnæði á Bifröst sem tók gildi þann 1. mars getur ekki flutt inn því önnur kona býr í íbúðinni hennar. Sú er með leigusamning vegna sömu íbúðar fram í ágúst.

Ríkið gerir kröfu til túna í Borgarfirði
Fjármálaráðuneytið hefur gert kröfu til „hólma“ langt inni í landi í kröfugerð sinni um þjóðlendur á svæði 12, sem nær til eyja og skerja til Íslands.

Öllu tjaldað til í skírnarveislu Tinnu Alavis og Húsafellserfingjans
Áhrifavaldurinn og fegurðardísin Tinna Alavis og Húsafellserfinginn Unnar Bergþórsson skírðu son sinn við fallega athöfn í Húsafelli um helgina. Drengnum var gefið nafnið Arnar Máni.

Holtavörðuheiði opnuð á ný: Ökumenn allt að áttatíu bíla aðstoðaðir
Holtavörðuheiðin var í gærkvöldi lokað. Hún var lokuð í nótt og þar til klukkan 08:56 í morgun. Lögreglan á Norðurlandi vestra þurfti að aðstoða ökumenn allt að áttatíu bíla í gærkvöldi í misjafnlega miklum vandræðum á ferðum sínum.

Dæmdur í fangelsi en finnst ekki
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og rán, með því að kýla mann á sextugsaldri í andlitið og ræna af honum síma og bíllyklum í félagi við annan mann. Í dómi Héraðsdóms Vesturlands segir að óvíst sé um dvalarstað mannsins og ekki hafi tekist að birta honum fyrirkall.

Fimm tíma rafmagnsleysi í Borgarfirði
Stór hluti Borgarfjarðar hefur verið rafmagnslaus frá því klukkan fimm síðdegis. Rafmagnsleysið nær yfir Mýrar, Húsafell, Lundarreykjadal og Reykholtsdal. Fjöldi starfsmanna vinnur við að koma rafmagni á að nýju.

Vilji til þess að halda í háskóla í héraði í orði en ekki á borði?
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar númer 657 þann 18. janúar sl. var tekið fyrir mál er varðar uppbyggingu nemendagarða Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar var verið að sækjast eftir að sveitarfélagið komi með stofnframlag inn í fyrirhugaða uppbyggingu nýrra nemendagarða.

Ný stefna, nýtt nafn og nýtt merki: „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar“
Síðustu vikur og mánuði hefur farið fram mikil vinna við nýja stefnu Orkuveitu Reykjavíkur. Meðfram nýrri stefnu hefur ásýnd fyrirtækisins verið endurmörkuð. Héðan af verður það kallað Orkuveitan í daglegu tali, nýtt merki hefur verið hannað og einkennislitnum breytt úr bláum í grænan. Þá hefur setningin „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar“ verið gerð að eins konar einkunnarorðum Orkuveitunnar.

Innviðirnir góðir hjá Borgarbyggð
Þrátt fyrir mikla uppbyggingu í Borgarbyggð og íbúafjölgun í sveitarfélaginu, þá ráða innviðir sveitarfélagsins vel við ástandið.

Búið að opna heiðina
Búið er að opna Holtavörðuheiði á nýjan leik en henni var lokað á öðrum tímanum vegna veðurs.

Holtavörðuheiði gæti lokast með stuttum fyrirvara
Óvissustig er í gildi á Holtavörðuheiði. Vegagerðin varar við að hún gæti lokast með stuttum fyrirvara meðan versta veðrið gengur yfir í dag.

Heilmikið byggt í Borgarnesi
Heilmikil uppbygging á sér nú stað í Borgarnesi enda mikið byggt af nýju húsnæði á staðnum. Borgarbyggð er vaxandi sveitarfélag með sína 4.300 íbúa en íbúafjölgunin hefur verið um sex prósent á ári síðustu árin, sem þykir mjög gott, enda sveitarstjórinn ánægður með stöðu mála.

Segir sameiningar háskóla efla háskólastarf um land allt
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, ræddi sameiningu háskóla í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagðist skilja ótta við breytingar og að það væri eðlilegt að margar spurningar vöknuðu við stórar sameiningar.

Vinnuvélar og dráttarvélar til sýnis í Borgarnesi
Traktorar og vinnuvélar eiga allan hug manns í Borgarnesi, sem er nú með sýningu á módelum sínum í Safnahúsi Borgarfjarðar. Sjón er sögu ríkari.

Fjölnotaíþróttahús byggt í Borgarnesi
Heilmiklar framkvæmdir fara fram í Borgarbyggð á nýju ári en þar ber helst að nefna byggingu nýs fjölnotaíþróttahúss í Borgarnesi og endurbyggingu á grunnskólanum á Kleppjárnsreykjum. Kostnaðurinn við þessi tvö verkefni er um þriðja milljarð króna.

Ákærðir fyrir að kýla mann og ræna hann
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og rán, með því að kýla mann á sextugsaldri í andlitið og ræna af honum síma og bíllyklum í félagi við annan mann.

Enn tveimur skrefum frá sameiningu skólanna
Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri segir að enn eigi eftir að klára samtalið um samruna áður en verði af honum. Tilkynnt var í dag Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafi samþykkt að hefja sameiningarviðræður.

Næststærsti háskóli landsins í pípunum
Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafa samþykkt að hefja sameiningarviðræður. Frá þessu greindi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, að loknum ríkisstjórnarfundi.

Þegar jöfnunartæki snýst upp í andhverfu sína – um frístundastyrk sveitarfélaga
Það var gæfuspor sem var stigið þegar frístundastyrkur sveitarfélaga var tekinn upp á sínum tíma með það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu tómstundastarfi og tel ég að vel hafi tekist til að mörgu leyti.

„Bílstjórinn stendur sig mjög vel en þessar aðstæður eru óviðunandi“
Íbúi Borgarbyggðar segir vegi ekkert hafa verið hálkuvarða þrátt fyrir yfirlýsingar sveitarfélagsins um að í forgangi séu vegir þar sem er skólaakstur. Skólarútan ferðist löturhægt um fljúgandi hálar ósaltaðar brekkur.

„Hver ber ábyrgð á vegum þegar þeir eru orðnir dauðagildra?“
Sumarhúsaeigandi við Jarðlangsstaði í Borgarbyggð segir hvorki sveitarfélagið né Vegagerðina vilja taka ábyrgð á hálkuvörnum á veginum sem leiðir að sumarhúsabyggðinni. Í henni eru meira en 150 sumarbústaðir og segir hann flughálku hafa verið á veginum í fleiri daga. Litlu megi muna að þar verði mannskæð bílslys nánast daglega.

Grillhúsið til sölu á 110 milljónir
Veitingastaðir Grillhússins á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík auk útibús í Borgarnesi hafa verið auglýstir til sölu. Uppsett verð er 110 milljónir króna.

Huga að útigangskindum í Borgarfirði - ein vafin í gaddavír
Hópur fólks lagði af stað í hádeginu í Þverárhlíð í Borgarfirði til að kynna sér ástand tuttugu kinda, sem eru þar á útigangi og engin virðist hugsa um. Kindurnar eru mjög styggar og ein þeirra öll vafinn í gaddavír. Fólkið fór með hey á staðinn.

Varð valdur að banaslysi vegna þreytu
Karlmaður hefur verið dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa valdið banaslysi við Hítará í sumar af stórfelldu gáleysi. Slysið var talið mega rekja til þess að maðurinn hafi verið ófær um að stjórna bifreið vegna þreytu.

Nafn konunnar sem lést í slysinu á Vesturlandsvegi
Konan sem lést í umferðarslysinu sem varð við Vesturlandsveg á miðvikudag hét Jóninna Huld Haraldsdóttir.

Kötturinn Prins var týndur í tólf ár
Kötturinn Prins, sem hefur verið týndur í tólf ár var að finnst heill á húfi. Hann átti heima í Reykjavík en fannst í Húsafelli eftir að hafa verið þar á vergangi.

Játaði að hafa logið til að taka skellinn í héraðsdómi
Rúmlega fertugur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rangan framburð fyrir dómi í umfangsmiklu fíkniefnamáli árið 2019. Með því reyndi hann að taka á sig sök í málinu.

„ADHD er ofurkraftur“
Thelma Dögg Harðardóttir samfélagsmiðlastýra og sveitastjórnarfulltrúi VG í Borgarbyggð var greind með ADHD fyrir níu árum. Eftir stutta reynslu af Concerta einsetti hún sér að lifa með greiningunni lyfjalaus og lagðist í mikla og djúpa sjálfsvinnu. Í dag talar hún um ekki um ADHD-ið ekki sem röskun. Hún kallar það ofurkraft.