Innlent

Sýnt virðingar- og skeytingar­leysi gagn­vart starfs­fólki

Eiður Þór Árnason skrifar
Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúkt við Háskólann á Bifröst, og Margrét Jónsdóttir, rektor skólans.
Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúkt við Háskólann á Bifröst, og Margrét Jónsdóttir, rektor skólans. Manhattan Marketing/Bifröst

„Síðustu mánuðir hafa verið mér afar þungbærir og ég hef þurft að ganga í gegnum ferli sem ég aldrei sá fyrir. Ég hef þurft að verja æru mína og akademískan starfsferil fyrir ótrúlega rætinni aðför að mér, knúinni áfram af eigin yfirmönnum við Háskólann á Bifröst, sem kærðu mig og kollega mína til siðanefndar skólans.“

Þetta segir Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúkt í markaðsfræði við Háskólann á Bifröst, sem var ásamt öðrum sakaður um að vera ranglega skráður sem meðhöfundur að fræðilegri grein. Siðanefnd skólans hreinsaði hann og tvo aðra starfsmenn af öllum ásökunum í dag. 

Ragnar gerir athugasemd við það hversu langan tíma tók að fá botn í málið og bendir á að siðanefnd Háskólans í Belgrad, sem meðhöfundar hans starfi við, hafi komist að sömu niðurstöðu 19. desember síðastliðinn.

Dýrt ferli

Ragnar segir samstarfsfólk á Bifröst vera í áfalli vegna ásakananna en Margrét Jónsdóttir rektor og stjórnendur skólans hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í málinu. Ragnar gerir málið upp í færslu á Facebook-síðu sinni og segir að hann hafi starfað við Háskólann á Bifröst í rúmt 21 ár.

„Að fá þessa áskorun frá samstarfsmönnum mínum eftir það líf sem ég hef lagt skólanum í gegnum þessa rúmlegu tvo áratugi er sorglegra en orð fá lýst og lýsir vel virðingar- og skeytingaleysi stjórnenda gagnvart mannauði sínum.“

Þessum hluta ferlisins hafi lokið í dag með úrskurði siðanefndar skólans. „Ég vissi alltaf að þetta yrði niðurstaðan á endanum en ferlið hefur verið langt. Og það hefur líka verið mjög dýrt, bæði andlega og fjárhagslega.“

Sannarlega tekið þátt í greinaskrifunum

Hvað varðar fræðigreinina sem hann var sakaður um að hafa ekki tekið þátt í að skrifa segir Ragnar að hann hafi ásamt samstarfsmanni sínum Haraldi Daða Ragnarssyni skrifað rúmlega 35 prósent af texta greinarinnar og tekið þátt í skrifum þriggja erlendra meðhöfunda.

„Ég og kollegi minn við Bifröst höfum á undanförnum árum verið í rannsóknarsamstarfi við erlenda kollega okkar í Slóvakíu og Serbíu þar sem við höfum rannsakað viðhorf nemenda í þessum þremur löndum til notkunar gervigreindar við nám og kennslu.“ Úr þeim rannsóknum hafi þeir skrifað fræðigreinar. Það sé af og frá að þeir hafi átt „ekkert vitsmunalegt framlag“ í grein sem kærð var til siðanefndar.

„Þetta var meðal annars staðfest af siðanefnd Háskólans í Belgrad, þar sem okkar meðhöfundar voru dregnir fyrir siðanefnd síns skóla til að svara til saka um þessa grein, vegna fyrirspurnar stjórnenda á Bifröst sem tilkynntu meðhöfundum okkar um að við sætum undir ásökunum á Íslandi. 

Siðanefndin í Serbíu hreinsaði okkur af öllum ásökunum þann 19. desember. Sama dag fengu stjórnendur á Bifröst sömu staðfestingu frá Serbíu en samt var málið látið hanga hjá siðanefnd Háskólans á Bifröst í næstum því 50 daga til viðbótar, þegar löngu var orðið ljóst og staðfest að þessar ásakanir áttu ekki við nein rök að styðjast,“ skrifar Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×