„Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Bjarki Sigurðsson skrifar 7. febrúar 2026 16:53 Þórhallur Jónsson er varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Aðsend Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, telur flokksstarfi sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn lokið eftir að hann laut í lægra haldi gegn Berglindi Ósk Guðmundsdóttur í oddvitaslag. Hann segir margt rotið innan flokksins á Akureyri.
Berglind Ósk, fyrrverandi þingmaður, er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Berglind hlaut 51 prósent atkvæða gegn 46 prósentum Þórhalls. Heimir Örn Árnason mun skipa annað sætið og Arna Rut Gunnarsdóttir það þriðja. Upphaflega ætlaði Heimir, oddviti flokksins í síðustu kosningum, einnig að sækjast eftir oddvitasætinu en hann og Berglind mynduðu síðar bandalag. Við þetta fyrirkomulag var Þórhallur afar ósáttur og kallaði eftir prófkjöri í stað þess að raðað yrði á lista. Berglind hafi sjálf verið formaður fulltrúaráðs flokksins sem ákvað að raðað yrði á listann, en hún síðar sagt af sér sem formaður og ákveðið að bjóða sig fram. Hún hafi svo myndað bandalag með Heimi án þess að ræða það við fulltrúaráð eða stjórnir flokksins á Akureyri. Gengur stoltur frá borði Í samtali við fréttastofu var Þórhallur nokkuð brattur eftir að úrslitin voru kynnt, þó að hann væri súr yfir því að ekki hefði verið farið í prófkjör eins og hann óskaði eftir. Einungis meðlimir fulltrúaráðsins og varamenn fengu að kjósa, en ekki allir Sjálfstæðismenn sveitarfélagisns eins og í opnu prófkjöri. „Nú er ég bara hættur í bili. Ég geng bara stoltur frá mínum störfum og er ánægður með mitt framlag í gegnum tíðina. Flokkurinn verður að sitja uppi með þetta,“ segir Þórhallur. Rotið og galið Fáir hafi ekki stutt tillögu hans um að fara í opið prófkjör. „Flokkurinn hafði ekki manndóm í sér að afstýra þessari vitleysu sem var búið að stýra þessu í. Röðunin var byggð á því að Heimir væri einn í framboði og gæfi kost á sér til að leiða flokkinn. Það eru forsendurnar, þannig ég kærði til miðstjórnar og sagði að það væri forsendubrestur. Þau treystu sér ekki til þess að taka það fyrir og fulltrúaráðið hér úrskurðaði um eigin ákvörðun og taldi sig geta haft þetta svona enda hún fyrrverandi formaður ráðsins. Þetta er náttúrulega bara rotið og galið,“ segir Þórhallur. Allir fái að tjá sig Hann hefði viljað að allir fengju að segja sína skoðun. „Þegar við berjumst um oddvita vil ég að allir Sjálfstæðismenn fái tækifæri til að segja sína skoðun. Ekki bara sumir Sjálfstæðismenn. Og ekki Sjálfstæðismenn sem sumir eru búnir að raða inn á lista í kringum sig í heilt ár. Það er það sem ég gagnrýni,“ segir Þórhallur. Hann segist ekki hafa tekið ákvörðun hvort hann segi sig úr flokknum en ljóst sé að störfum hans fyrir flokkinn sé lokið.
Akureyri Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira