Hafnarfjörður
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 61 ›
Miðlægt þekkingarsetur ungs fólks Allir hafa þurft að færa einhverjar fórnir og breyta lífsháttum sínum til að halda Covid-19 í skefjum en óhætt er að segja að ungt fólk, sérstaklega framhaldsskólanemar, hafi gert það all hressilega og það á miklum mótunarárum ævi sinnar. Ég efast ekki um að flest þeirra hafi stuðning og bakland til að nýta sér þessa reynslu sér til góðs en fórnirnar hafa verið miklar. Skoðun 26.4.2021 12:00
Skiptar skoðanir meðal lögreglumanna um handtöku í Hafnarfirði Skiptar skoðanir eru meðal lögreglumanna vegna máls lögreglumanns sem sakaður var um ofbeldi við handtöku í Hafnarfirði. Mál lögreglumannsins var látið niður falla hjá héraðssaksóknara en verður kært til ríkissaksóknara. Innlent 24.4.2021 13:00
Með mikla áverka eftir handtöku í Hafnarfirði Niðurstaða héraðssaksóknara í máli lögreglumanns, sem var til rannsóknar vegna meints ofbeldis við handtöku, verður kærð til ríkissaksóknara. Gögn málsins sýna mikla áverka á hinum handtekna. Lögmanni hans blöskrar niðurstaða héraðssaksóknara. Innlent 23.4.2021 19:38
Sex hundruð störf skapist vegna kolefnisförgunarmiðstöðvar Fyrirtækið Carbfix ætlar að reisa kolefnisförgunarmiðstöð í Straumsvík. Áætlanir eru uppi um að taka við og farga allt að þremur milljónum tonna af koltvísýringi frá Norður-Evrópu á ári. Innlent 22.4.2021 21:22
Ætla að farga milljónum tonna koltvísýrings í Straumsvík Um sexhundruð ný störf eru sögð geta skapast með tilkomu kolefnisförgunarmiðstöðvar sem Carbfix, dótturfyrirtæki Orku náttúrunnar, ætlar að byggja í Straumsvík. Miðstöðin, sem á að taka við kolefni frá Norður-Evrópu, verður kynnt á opnum fundi á degi jarðar í dag. Viðskipti innlent 22.4.2021 08:01
Friðrik Dór bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður og Hafnfirðingur, er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2021. Friðrik, einnig þekktur sem Frikki Dór, var sæmdur titlinum við hátíðlega athöfn í bænum í dag. Menning 21.4.2021 20:51
Golffár á Fróni og nú þegar slegist um rástímana Áhugi á golfinu hefur ekki verið eins mikill í annan tíma á Íslandi. Þó tímabilið sé ekki hafið og nú sé svokallað vetrargolf stundað, sem áður var bara meðal þeirra hörðustu, eru allir rástímar sem í boði eru upp bókaðir og biðlistar í að komast í klúbbana. Innlent 17.4.2021 08:00
Smit í Öldutúnsskóla í fimmta sinn Nemandi í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði greindist með kórónuveiruna í gær. Hátt í þrjátíu nemendur í 5. bekk skólans og þrír starfsmenn þurfa í sóttkví. Þetta er í fimmta sinn sem smit kemur upp í skólanum frá því faraldurinn hófst. Innlent 14.4.2021 10:35
Ungmenni með „Molotov-kokteila“ við skóla í Hafnarfirði Lögregla var kölluð á vettvang um kl. 22 í gærkvöldi vegna hóps ungmenna sem var að fikta með flöskusprengjur, svokallaða Molotov-kokteila, við skóla í Hafnarfirði. Innlent 13.4.2021 06:14
Í gæsluvarðhald grunaður um umfangsmikla kannabisræktun Karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögregla kom upp um umfangsmikla þurrkun kannabisefna í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði á fimmtudag. Innlent 10.4.2021 11:22
Leifur hættur sem skólastjóri Áslandsskóla Leifur Sigfinnur Garðarsson er hættur sem skólastjóri Áslandsskóla. Þetta staðfestir Árdís Ármannsdóttir samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar við Vísi og segir tilkynningu hafa borist frá Leifi þess efnis í morgun. Hann hefur verið í leyfi undanfarnar vikur. Innlent 6.4.2021 13:04
Handtekinn eftir að hafa brotið gegn nálgunarbanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem hafði brotið gegn nálgunarbanni í Hlíðahverfi í Reykjavík. Viðkomandi hafði einnig átt í hótunum og var hann vistaður í fangaklefa. Innlent 5.4.2021 07:37
Aldís ráðin forstöðumaður Hafnarborgar Aldís Arnardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Hafnarborgar – menningar - og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Menning 26.3.2021 16:57
Um 400 unglingar í Hafnarfirði í sóttkví Allir 209 nemendur unglingadeildar Víðistaðaskóla í Hafnarfirði eru komnir í sóttkví eftir að nemandi í deildinni greindist með kórónuveiruna. Innlent 26.3.2021 14:12
Laugarnesskólasmitið komið í Hafnarfjörð Allir 180 nemendur á unglingastigi Öldutúnsskóla og tuttugu kennarar eru komnir í úrvinnslusóttkví eftir að í ljós kom í gærkvöldi að nemandi á unglingastigi væri smitaður af Covid-19. Innlent 26.3.2021 10:40
Gosið aldrei sést jafnvel frá Hafnarfirði Eldgosið í Geldingadal sést óvenjuvel frá höfuðborginni í kvöld. Náttúruvársérfræðingur segir engin merki um að gosið hafi aukist. Skyggni og veðurskilyrði í kvöld séu einfaldlega betri en síðustu daga en þó geti verið að minni gígarnir tveir hafi sameinast í einn. Innlent 23.3.2021 22:02
Krýsuvíkurskóli rýmdur og fjöldahjálparstöð opnuð Meðferðarheimilið Krýsuvíkurskóli var rýmt í kvöld vegna gasmengunarhættu. Þau sem þar dvöldu voru flutt í Hópsskóla í Grindavík, þar sem opnuð hefur verið fjöldahjálparstöð. Innlent 20.3.2021 01:49
Suðurstandarvegur lokaður fram yfir helgi Ástand Suðurstrandarvegar við Festarfjall er svipað og var í gær en hefur heldur þróast til verri vegar. Í ljósi jarðskjálftavirkninnar og spár um rigningu á svæðinu næsta daga hefur verið tekin sú ákvörðun að halda veginum lokuðum að minnsta kosti fram yfir helgi. Innlent 19.3.2021 12:05
Borgarlínan – Bein leið Borgarlínan er eitt viðamesta verkefnið sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa staðið að í sameiningu. Frumdrög fyrsta kafla hafa nú litið dagsins ljós og því mikilvægt að sveitarfélögin styðji vel við verkefnið og og bregðist hratt við breytttum aðstæðum hverju sinni. Skoðun 19.3.2021 08:00
Banaslys á Reykjanesbraut rakið til ölvunaraksturs Ökumaður sem lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut 12. janúar 2020 var undir áhrifum áfengis við aksturinn. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar samgönguslysa sem birti skýrslu sína um slysið í gær. Innlent 19.3.2021 07:54
Loka fyrir umferð á Suðurstrandarvegi í kvöld og í nótt Suðurstrandarvegi verður lokað klukkan 18 á eftir og fram á morgun hið minnsta. Er það gert vegna ástands vegarins í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Innlent 18.3.2021 16:21
Verstu spár aðstoðarleikskólastjóra Hafnarfjarðar að rætast Opið bréf til fræðsluráðs Hafnarfjarðar, stjórnmálaflokka í Hafnarfirði og annarra er málið varðar. Skoðun 18.3.2021 10:01
Ráðast í annað útboð þannig að Gosa og Drottningu verði skipt út Til stendur að hefja innkaupaferli á tveimur nýjum síðalyftum fyrir Bláfjöllum. Síðar verður svo hafinn undirbúningur að kaupum á fleiri lyftum fyrir Bláfjöll og Skálafell, auk þess að snjóframleiðslu verði komið upp. Innlent 18.3.2021 07:37
Almannavarnir sendu óvart SMS-skilaboð til íbúa á höfuðborgarsvæðinu SMS-skilaboð frá almannavörnum sem voru ætluð vegfarendum í námunda við Keili og Fagradalsfjall dreifðust um of stórt svæði og voru meðal annars send í símtæki í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu. Í skilaboðunum var ítrekað að enn væri varhugavert að vera nálægt Keili og Fagradalsfjalli. Innlent 17.3.2021 17:58
Segja útilokað að rafmagnsbilanir tengist jarðhræringum Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS veitna segir útilokað að jarðskjálftahrinann á Reykjanesi hafi valdið rafmagnsleysi í Hafnarfirði í gærkvöldi og morgun. Þetta er þriðja rafmagnsbilunin hjá HS veitum í þessum mánuði Innlent 14.3.2021 13:54
Rafmagnslaust var í hluta Hafnarfjarðar Ekkert rafmagn hefur verið í Arnarhrauni og Smyrlahrauni í Hafnarfirði frá því klukkan hálf sjö í morgun. Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS Veitna segist vonast til að komist verði fyrir bilunina fyrir hádegið. Innlent 14.3.2021 09:23
Ekki hægt að opna gamla Suðurstrandarveg að fullu vegna grjóthrunshættu Bæjaryfirvöldum í Grindavík hafa borist ábendingar um að gamli Suðurstrandarvegurinn sé lokaður. Það geti skapað hættu ef það gjósi vestan við Grindavík og komi til rýmingar um Suðurstrandarveg. Atli Geir Júlusson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs hjá bænum segir ekki hægt að opna allan veginn að svo stöddu vegna hættu á grjóthruni. Innlent 13.3.2021 13:09
Draga ekkert undan en ljúga helling Gaflaraleikhúsið setur á svið sýningu með þeim Sölku Sól Eyfeld, Selmu Björnsdóttur og Björk Jakobsdóttur sem leiða nú saman hryssur sínar í fyrsta sinn. Sýningin heitir Bíddu bara. Lífið 12.3.2021 09:00
Líkur á að hraun renni yfir Suðurstrandarveg Jarðskjálfti af stærðinni 4,6 í Eldvörpum skömmu fyrir klukkan níu í morgun er merki um spennubreytingar á Reykjanesskaga. Smáskjálftavirkni á svæðinu er en talinn fyrirboði eldgoss en talið er að kvikugangurinn við Fagradalsfjall hafi færst til suðurs. Innlent 11.3.2021 11:47
Segir forgangsmál að koma í veg fyrir frekari slys Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir að bæjaryfirvöldum hafi verið mjög brugðið við slysið í Áslandshverfi og úrbætur séu þegar hafnar. Mildi sé að ekki hafi farið verr. Engar athugasemdir hafi fundist hjá bænum frá íbúum vegna slysahættu. Innlent 9.3.2021 19:17