Heilbrigðismál

Þakklátur Bubbi segir rifna slagæð vera ástæðu fjarverunnar
Rifin slagæð var ástæða þess að tónlistarmaðurinn ástsæli Bubbi Morthens gat ekki komið fram með Dimmu á tónleikum Bylgjunnar í Hljómskálagarði á Menningarnótt. Hann segist vera afar þakklátur starfsfólki Landspítalans.

Fækkun bólusettra leiðir til metfjölda mislingasmita í Evrópu
Alls hafa rúmlega 41.000 manns greinst með mislinga í álfunni og 37 hafa látist.

Fimmtán sem biðu eftir plássi á Vogi dóu í fyrra
Fimmtán þeirra einstaklinga sem biðu eftir meðferð á Vogi í fyrra létust áður en til meðferðar kom. Ellefu af biðlistanum létust árið 2016. Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi, gagnrýnir heilbrigðisyfirvöld.

Vara við hættunni vegna frétta af neyslu ungmenna
Landlæknisembættið varar við misnotkun á ávanabindandi lyfjum. Embættið kemur upplýsingunum á framfæri vegna frétta sem fluttar hafa verið af notkun ungmenna á lyfjunum.

Gagnrýnir brottvísun sonar síns af meðferðarheimili: „Nú væri hægt að grípa inn í áður en allt fer til fjandans“
Móðir ungs manns, sem vísað var af meðferðarheimilinu Vík vegna "ófullnægjandi þvagprufu“, gagnrýnir harðlega úrræðaleysi í málaflokknum.

Jáeindaskanni brátt tekinn í notkun á LSH
Landspítali hefur fengið nauðsynleg leyfi frá Lyfjastofnun til að hefja framleiðslu á þeim lyfjum sem notuð verða í rannsóknum í jáeindaskanna spítalans.

„Fangi í eigin líkama“ eftir læknamistök
Pálína Sigurrós Stefánsdóttir kemst ekki fram úr rúminu á morgnanna án þess að taka verkjalyf.

Erfitt geti reynst að koma með barnið til landsins
Ísraelskt fyrirtæki sem hyggst bjóða Íslendingum upp á milligöngu um staðgöngumæðrun er ekki að fara í kringum íslensk lög á meðan eingöngu er boðið upp á starfsemina erlendis.

Bjarga barnslífum með fræðsluátaki
Læknar, ljósmæður og heilbrigðisstarfsmenn munu taka þátt í nýju fræðsluátaki sem sannað þykir að bjargar barnslífum. Mæðrum verður kennt að þekkja hreyfingar barns síns á seinni hluta meðgöngu. Rúmlega sjötíu manns hlaupa og safna fyrir átakinu.

Á fjórða tug hefur sóst eftir forvarnarlyfjum gegn HIV
Ábatinn af forvarnameðferð gegn HIV-sýkingum sem er nýlega orðin möguleg á Íslandi vegur mun þyngra en kostnaðurinn að sögn smitsjúkdómalæknis. Á fjórða tug hefur nú þegar sótt um að gangast undir meðferðina.

Aðstandendur vildu samtal en voru handteknir
Móðir og systir manns á fertugsaldri voru handteknar á geðdeild Landspítalans í gær þegar þær mótmæltu útskrift mannsins af deildinni. Faðir mannsins segir fjölskylduna hafa beðið um útskýringar og samtal en því hafi verið svarað með ofbeldi. Eftir tuttugu ára baráttu fyrir son sinn segir maðurinn ljóst að geðheilbrigðiskerfið hér á landi sé gjörónýtt.

Efni notað í megrunartilgangi valdið 13 dauðsföllum í Bretlandi
Matvælastofnun varar við notkun á efninu DNP sem dregið hefur að minnsta kosti 13 manns í Bretlandi til dauða. Þrátt fyrir að bannað sé að selja efnið til manneldis er enn verið að selja og nota það í fæðubótarefni í megrunartilgangi.

Rítalín best við barna-ADHD
Heppilegast og öruggast er að nota Rítalín og önnur skyld lyf með virka efnið meþílfenídat, til að meðhöndla athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) hjá börnum.

Ósátt við að ráðherra hafni að greiða 911 milljóna rekstrartap
Akureyri krefur ríkið um 911 milljónir vegna taps á rekstri öldrunarheimila bæjarins. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir bæinn hafa tekið ákvörðun um að bæta fé í reksturinn og hafnar kröfunni.

Lýsir sorg fjölskyldunnar eftir plastbarkaígræðslu eiginmannsins
Í ítarlegu viðtali við Mannlíf lýsir Merhawit Baryamikael Tesfaslases því hvernig læknar hafi þrýst á Andemariam að gangast undir aðgerðina og að enginn frá Landspítalanum hafi haft samband við hana eftir útför hans.

Hætti á dvalarheimili eftir lyfjaþjófnað
Embætti landlæknis hefur verið tilkynnt um málefni starfsmanns á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi sem tekið hafði morfínskyld lyf ófrjálsri hendi. Viðkomandi starfsmaður hefur látið af störfum. Formaður stjórnar dvalarheimilisins segir að farið verði yfir verkferla.

Ljósmæður farnar að snúa til baka til starfa á Landspítala
Ástandið í fæðingarþjónustu Landspítala er hægt og rólega að komast í eðlilegt horf þótt liðin helgi hafi verið erfið. Aðgerðaáætlun er þó enn í gildi en nokkrar ljósmæður sem hættu í byrjun júlí hafa snúið til baka.

40 árum seinna
Níu mánuðum eftir að sæði og eggfruma áttu stefnumót í ræktunarskál á rannsóknarstofu á Bretlandi – undir hárréttum kringumstæðum og vökulu auga vísindamanns – kom Louise Brown í heiminn þann 25. júlí árið 1978, á Oldham-sjúkrahúsinu í Manchester.

Óttast að hér blossi upp sjúkdómar „sem ekki hafa sést um árabil“
Þátttaka í almennum bólusetningum á Íslandi í fyrra var svipuð og árið á undan.

Veikindi tengd streitu og kulnun í starfi að aukast hér á landi
Einkennin eru fyrst og fremst depurð, kvíði og svefntruflanir en kulnun er lýsing á ástandi um að vera undir of miklu álagi.

Nýtt lyf við legslímuflakki samþykkt í Bandaríkjunum
Ester Ýr Jónsdóttir, varaformaður Samtaka um endómetríósu, segist fagna nýjum meðferðarúrræðum.

Bogfrymlarnir sem Sigmundur varaði við geta leitt til áhættusækni og MBA náms
Ný rannsókn alþjóðlegs hóps vísindamanna bendir til þess að tengsl séu á milli bogfrymlasýkingar og áhættusækinnar hegðunar. Þeir sem hafa sýkst af bogfrymlasótt eru líklegri til að nema viðskiptafræði en aðrir og hlutfall smitaðra er hærra meðal fjárfesta og frumkvöðla en almennings.

Sjö ljósmæður draga uppsagnir til baka
Heilbrigðisráðherra segir þessa afgerandi niðurstöðu sérstakt fagnaðarefni og formaður samningarnefndar ljósmæðra er feginn því að stór hluti ljósmæðra er sáttur við þessa lendingu.

Helmingur á Vogi hefur keypt lyfseðilskyld lyf
Rúmlega helmingur innritaðra sjúklinga á Sjúkrahúsinu Vogi, eða 52 prósent, hafði keypt lyfseðilskyld lyf á götunni samkvæmt mánaðarlegri könnun sem SÁÁ gerir á verðlagi á ólögmætum lyfjum.

Fyrirbyggjandi lyfjameðferð við HIV verður niðurgreidd hér á landi
Heilbrigðisyfirvöld hafa samþykkt að niðurgreiða svokallaða PrEP-meðferð hérlendis, en meðferðin er talin ein öflugasta vörnin gegn HIV-smitum.

Forstjóri segir enga uppsafnaða þörf eftir kjaradeilu ljósmæðra
Enginn hjalli myndaðist á Landspítalanum vegna yfirvinnubanns ljósmæðra, segir forstjóri spítalans. Hann vonar að þær ljósmæður sem eru hættar komi aftur til starfa.

Öryrkjar borga mun meira en áður
Sumt er gott. Annað bara alls ekki. Þetta er í stuttu máli reynslan af nýju greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu sem tók gildi fyrir rúmu ári.

Ráðherra hugsi yfir því að lausnum sé hafnað
Þjónusta við verðandi mæður hefur verið skert á Landspítala. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist hugsi þar sem ljósmæður "hafni hverju lausnarúrræðinu á fætur öðru“.

Bæta þarf kjör aldraðra strax, ekki síðar!
Bæta þarf kjör eldra fólks með því að hækka ellilífeyri og tryggja, að hann sé ekki undir fátæktarmörkum.

Fljúga með þungaðar konur norður vegna neyðarástands
Flogið hefur verið með þungaðar konur á Sjúkrahúsið á Akureyri og von er á fleirum þangað. Konur veigra sér við að hafa samband við fæðingardeildir því þær vilja ekki trufla. Deiluaðilar funda í dag. Tvisvar þurfti að óska eftir undanþágu frá yfirvinnubanni ljósmæðra á Landspítalanum í gær.