Evrópusambandið
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 48 ›
Gleðilegt Evrópuár! Það var ánægjulegt að ein fyrsta frétt ársins var um framsýni og þrautseigju Króata. Um áramótin tóku þeir upp Evru og gengu í Schengen-samstarfið eftir góðan og krefjandi undirbúning. Fyrir 12 árum síðan vorum við Íslendingar einnig umsóknarríki að Evrópusambandinu. Ætluðum jafnvel að vera á undan Króötum með aðild og upptöku Evru. En nú er öldin önnur. Skoðun 3.1.2023 07:00
AGS spáir samdrætti hjá þriðjungi ríkja heims Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir þriðjung ríkja heims standa frammi fyrir samdrætti árið 2023. Framkvæmdastjórinn Kristalina Georgieva segir árið munu verða erfiðara en árið 2022. Viðskipti erlent 2.1.2023 07:38
Króatar taka upp evru Króatía hefur tekið upp evru og gengið í Schengen-samstarfið, áratug eftir að landið gekk í Evrópusambandið. Erlent 1.1.2023 14:28
Formaður Þjóðarflokksins sýknaður Dómstóll í Danmörku sýknaði Morten Messerschmidt, formann Þjóðarflokksins, af ákæru um misferli með fjármuni Evrópusambandsins í dag. Upphaflega var Messerschmidt sakfelldur en sá dómur var ógiltur og málið tekið fyrir aftur. Erlent 21.12.2022 11:51
Mannvonskan hefur engin takmörk Það var ekki ósvipað og maður hafi verið stungin með hníf í hjartastað þegar maður las pistil Hildar Sverrisdóttir í Vísi þann 17. desember síðastliðinn. Skoðun 20.12.2022 16:31
ESB samþykkir verðþak á jarðgasi Samþykkt hefur verið innan Evrópusambandsins að innleiða verðþak á jarðgasi frá og með 15.febrúar næstkomandi. Verðþakið felur í sér að óheimilt er að greiða hærra verð en 180 evrur fyrir megavattstundina í meira en þrjá daga í röð. Innherji 20.12.2022 14:00
Tekist á um verðþak á gasi innan ESB Í dag kemur í ljós hvort orkumálaráðherrar Evrópusambandsins nái samstöðu um verðþak á gasi innan álfunnar á komandi ári. Skiptar skoðanir eru meðal aðildarríkja Evrópusambandsins um hvar verðþakið eigi að liggja, á meðan aðrir eru mótfallnir því að innleiða verðþak yfir höfuð. Innherji 19.12.2022 12:06
Birgir fundaði með talíbönum í Afganistan Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er fyrsti erlendi stjórnmálamaðurinn til að heimsækja talíbana síðan þeir tóku völd í águst. Hann segir mikilvægt að alþjóðasamfélagið ræði við talíbana, annars muni það aðeins bitna á almenningi. Birgir hvatti ríkisstjórn talíbana til að virða mannréttindi. Innlent 18.12.2022 23:30
Ríkið geti mætt losunarskuldbindingum með því að nýta heimildir vegna stóriðju Heimild til þess að ríkið geti notað óseldar losunarheimildir vegna stóriðju upp í sínar eigin loftslagsskuldbindingar var bætt inn í fjárlagafrumvarpið fyrir þriðju og síðustu umræðu þess. Ungir umhverfissinnar segja heimildina skapa hættu á að ríkið dragi úr metnaði loftslagsaðgerða sinna. Innlent 15.12.2022 18:35
Álverin óttast áhrif kolefnisgjalds á innflutt ál Íslenskir og evrópskir álframleiðendur óttast að nýtt gjald sem Evrópusambandið hyggst leggja á innflutt ál geti skekkt enn frekar samkeppnisstöðu þeirra á alþjóðamarkaði og gert fyrirtæki sem framleiða álvörur ósamkeppnishæf. Kerfið gæti dýpkað loftslagsvandann í stað þess að draga úr honum. Viðskipti erlent 15.12.2022 07:01
Fór hörðum orðum um Ríkisútvarpið og hefur lagt fram kæru Arnþrúður Karlsdóttir eigandi Útvarps Sögu hefur lagt fram kæru á hendur íslenska ríkinu vegna hindrana í samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Hún segir fjölmiðlastyrki hins opinbera vera orðnir að geðþóttaákvörðun stjórnvalda hverju sinni, eins og sýni sig í því að N4 geti fengið fjárlaganefnd til að bæta við 100 milljóna styrk, en að Útvarp Saga fái engan. Innlent 14.12.2022 19:31
Zelensky kallaði eftir 121 milljarðs króna innviðafjárfestingu Á ráðstefnu í París sem haldin var í dag til stuðnings úkraínsku þjóðinni óskaði forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky eftir 840 milljónum Bandaríkjadala eða 121,1 milljarði íslenskra króna í fjárhagslegan stuðning fyrir úkraínsku þjóðina. Erlent 13.12.2022 16:04
Greiða leiðina að nýstárlegu kolefnisgjaldi á innflutning til Evrópu Evrópsk innflutningsfyrirtæki þyrftu í raun að greiða kolefnisgjald af ákveðnum vörum sem þau flytja inn frá löndum sem hafa minni metnað í loftslagsmálum með nýrri löggjöf sem Evrópuþingið og leiðtogaráð Evrópusambandsins hafa náð samkomulagi um. Reglurnar yrðu þær fyrstu sinnar tegundar í heiminum. Viðskipti erlent 13.12.2022 11:16
Mútumál skekur Evrópuþingið: Heitir því að engum verði hlíft Roberta Metsola, forseti Evrópuþingsins, segir árás hafa verið gerða á lýðræðið í Evrópu. Það er í kjölfar þess að einn varaforseta Evrópuþingsins, og þrír aðrir voru handteknir og hafa verið sakaðir um að þiggja mútur frá yfirvöldum í Katar. Erlent 12.12.2022 22:02
Málstaður sem skilar ekki auknu fylgi Fylgi Samfylkingarinnar hefur tvöfaldast frá þingkosningunum sem fram fóru fyrir rúmu ári síðan samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana í kjölfar þess að nýr formaður, Kristrún Frostadóttir, tók við flokknum. Fylgið hefur þannig farið úr tæpum 10% í kosningunum í um 20%. Kannanir benda til þess að þar vegi þungt ákvörðun formannsins um það að setja stefnu flokksins um inngöngu í Evrópusambandið á ís. Skoðun 10.12.2022 10:30
Varaforseti Evrópuþingsins grunaður um spillingu Evu Kaili, einni af fjórtán varaforsetum Evrópuþingsins, hefur verið vikið úr stjórnmálaflokk sínum í heimalandinu vegna gruns um spillingu. Henni hefur einnig verið vikið úr þingflokknum á Evrópuþinginu. Erlent 10.12.2022 09:37
Sjálfkrafa fyrning orlofs ólögmæt samkvæmt Evrópudómstól Evrópudómstóllinn hefur skorið úr um lögmæti sjálfkrafa fyrningar á áunnu orlofi. Niðurstaða dómstólsins var sú að fyrrnefnd fyrning sé ólögmæt og staðfestir það kröfur Alþýðusambandsins vegna innlendra samningsákvæða sem ríma ekki við þetta. Erlent 8.12.2022 20:27
Með hálfan þingmann á Alþingi Vægi ríkja innan Evrópusambandsins, og þar með möguleikar þeirra á því að hafa áhrif innan sambandsins, fer fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Því fámennari sem ríkin eru því minni möguleika eiga þau almennt á því að hafa áhrif á ákvarðanatöku stofnana Evrópusambandsins þar sem þau eiga fulltrúa. Skoðun 7.12.2022 15:30
Flugvélahamur heyrir brátt sögunni til í Evrópu Hinn svokallaði flugvélahamur (e. Airplane mode) mun brátt heyra sögunni til, í það minnsta í Evrópu, og munu flugfarþegar geta vafrað um á netinu og hringt í háloftunum. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að flugfélög geti veitt farþegum aðgang að 5G nettengingu í flugi. Erlent 7.12.2022 11:19
Gagnrýnir nýtt neyðartæki ESB í Financial Times Norrænt atvinnulíf, þar á meðal Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, gagnrýnir nýtt neyðartæki Evrópusambandsins (ESB) í aðsendri grein í Financial Times. Innherji 5.12.2022 11:56
Fiskveiðisamningur Færeyja og Rússlands sagður smekkleysa Evrópusambandið gagnrýnir nýjar fiskveiðisamning Færeyja og Rússlands. Þingmaður Dana á Evrópuþinginu segir samninginn smekklausan. Erlent 3.12.2022 17:05
Evrópa of háð Bandaríkjunum í öryggismálum Innrás Rússa í Úkraínu sýnir að Evrópulönd séu of háð Bandaríkjunum um eigið öryggi, að mati Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands. Hún vill að Evrópulönd auki vopnaframleiðslu og varnarviðbúnað sinn. Erlent 3.12.2022 09:01
Skatturinn hefur til skoðunar dóm um að hætta skuli birtingu á eigendum félaga Nokkur Evrópusambandsríki hafa hætt að birta upplýsingar hverjir eiga fyrirtæki í kjölfar að Evrópudómstóllinn taldi að slíkt bryti gegn sáttmála Evrópusambandsins. Lögfræðingur segir að óljóst sé „hvaða – ef einhver – áhrif“ dómurinn muni hafa hér á landi. Full ástæða sé þó fyrir íslensk stjórnvöld til þess að gefa dómnum gaum en ákvæði sáttmála Evrópusambandsins um rétt til friðhelgis einkalífs sé „nánast orðrétt hið sama og finna má í stjórnarskránni og Mannréttindasáttmála Evrópu“. Innherji 1.12.2022 13:33
Stuðningur kjósenda Samfylkingar við aðild að ESB úr 84 prósentum í 67 prósent 42,8 prósent þjóðarinnar eru hlynnt aðild að Evrópusambandinu en 35,1 prósent andvíg. Óákveðnum hefur fjölgað úr 17,7 prósent í 22,1 prósent, ef marka má nýja könnun Prósents. Dregið hefur úr stuðningi við aðild meðal kjósenda Samfylkingarinnar. Innlent 24.11.2022 06:59
Rússar grunaðir um netárás á vefsíðu Evrópuþingsins Netárás var gerð á vefsíðu Evrópuþingsins fyrr í dag. Árásin var gerð mjög skömmu eftir að þingmenn samþykktu þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Rússneskur hópur hefur lýst yfir ábyrgð. Erlent 23.11.2022 17:36
Skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki: Tveggja daga gamalt barn dó í eldflaugaárás á fæðingardeild Þingmenn Evrópuþingsins samþykktu í dag þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Er það gert með vísan í ítrekaðar árásir Rússa á orkuinnviði Úkraínu, sjúkrahús, skóla og neyðarskýli. Nýfætt barn lést í árás Rússa á fæðingardeild í suðurhluta landsins í nótt. Erlent 23.11.2022 12:09
Óvænt útspil til að forða því að loftslagsviðræður sigli í strand Útlit er fyrir að loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi ljúki án umtalsverðs árangurs nú þegar aðeins einn dagur er eftir af henni. Samningamaður Evrópusambandsins reyndi að koma viðræðunum af stað með óvæntu útspili í kvöld. Erlent 17.11.2022 23:37
Verður ríkisábyrgð sett á þúsund milljarða? Komi til þess að ný tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar verði innleidd á Íslandi vegna aðildar landsins að EES-samningnum mun það að öllum líkindum þýða að ríkisábyrgð verði sett á bankainnistæður upp á um eitt þúsund milljarða króna. Málið snýst í raun um kjarna Icesave-málsins enda ljóst að hefði umrædd löggjöf verið í gildi hér á landi þegar málið kom upp á sínum tíma hefði það tapast. Skoðun 16.11.2022 10:01
„Dylst varla neinum að Fréttablaðið er í áróðri fyrir inngöngu í Evrópusambandið“ Bjarni Benediktsson, sitjandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fór með fundargesti í ferðalag aftur til ársins 2010, reifaði atvik í Búsáhaldabyltingunni, skaut föstum skotum á Samfylkinguna að nýju og sagði engum dyljast að Fréttablaðið stundaði áróður í þágu aðildar að Evrópusambandinu. Innlent 5.11.2022 18:33
Hendur nýs formanns verða ekki bundnar vegna ESB Krafan um Evrópusambandsaðild mun ekki verða til þess að Samfylkingin verði með hendur bundnar andspænis mögulegu ríkisstjórnarsamstarfi. Þrátt fyrir að nýr formaður Samfylkingarinnar sé Evrópusinni verða Evrópumálin ekki fyrsta forgangsmál. Áhersla verður lögð á „klassísk jafnaðarmannamál.“ Innlent 2.11.2022 13:49