Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í norrænum miðaldafræðum við Cambridge-háskóla, er fallinn frá, fimmtíu og fimm ára að aldri. Heimildarmyndin Veðurskeytin er byggð á reynslu Marteins en hann greindist skyndilega með geðhvörf fyrir nokkrum árum og fjallar myndin um vegferð hans í kjölfar greiningarinnar. Marteinn greindist með krabbamein á lokastigi fyrir um tveimur árum og voru honum einungis ætlaðir nokkrir dagar ólifaðir. Lífið 11.6.2026 17:27
Þorsteinn Ólafsson er látinn Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur og fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er látinn, 75 ára að aldri. Innlent 10.6.2026 11:08
Tryggvi Gíslason er látinn Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er látinn, 87 ára að aldri. Innlent 10.6.2026 07:13
Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Marcia Lucas, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir klippingu á einni af Stjörnustríðsmyndunum í leikstjórn fyrrverandi eiginmanns síns, George Lucas, lést á miðvikudaginn, þann 27. maí, í Rancho Mirage í Kaliforníu. Hún var áttatíu ára þegar hún lést og hefur bandaríski miðillinn Variety eftir lögmanni fjölskyldunnar sem staðfesti að hún hefði látist úr krabbameini. Bíó og sjónvarp 30. maí 2026 00:01
Stefán Jökulsson er látinn Stefán Jökulsson, fyrrverandi lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, útvarpsmaður og tónlistarmaður, er látinn, 76 ára að aldri. Innlent 29. maí 2026 12:03
Aðalsteinn Bergdal er látinn Aðalsteinn Bergdal, leikari og leikstjóri, er látinn, 76 ára gamall, eftir baráttu við krabbamein. Leikferill Aðalsteins spannaði ríflega fimmtíu ár og á annað hundrað sýninga í atvinnuleikhúsunum þremur. Hann var einna þekktastur fyrir leik sinn sem trúðurinn Skralli sem skemmti Íslendingum í hálfa öld. Menning 29. maí 2026 10:53
Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Hin þrítuga Steinunn Lóa Hafþórsdóttir lést við fæðingu sonar síns á fæðingardeild Landspítalans hinn 19. maí. Vinkonur hennar greina frá andlátinu í færslu á Facebook og hafa hrundið af stað söfnun fyrir fjölskylduna. Innlent 28. maí 2026 22:35
Stefán Carlsson er látinn Stefán Carlsson bæklunarskurðlæknir er látinn, 77 ára að aldri. Hann lést síðastliðinn laugardag. Innlent 28. maí 2026 14:24
Emily in Paris-stjarna látin Franski leikarinn Pierre Deny, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í þáttunum Emily in Paris, er látinn, 69 ára að aldri. Lífið 28. maí 2026 07:37
Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Guðjón Reykdal Óskarsson, doktor í líf- og læknavísindum og starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar, er látinn, 35 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur síðastliðinn mánudag. Innlent 21. maí 2026 07:51
Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Jóhannes Einarsson vélaverkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Loftleiðum, Flugleiðum og Cargolux er látinn, 96 ára að aldri. Jóhannes var í hópi stjórnenda Loftleiða á mestu velgengnisárum félagsins og hefur verið nefndur faðir Cargolux vegna þess lykilhlutverks sem hann gegndi í stofnun og uppgangi þess félags. Innlent 20. maí 2026 13:44
Árni Tómas Ragnarsson er látinn Árni Tómas Ragnarsson læknir lést 27. apríl síðastliðinn. Innlent 18. maí 2026 07:34
Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Franska söngkonan Claudine Longet, sem öðlaðist frægð í bandarísku sjónvarpi á sjöunda áratugnum, er látin, 84 ára að aldri. Tónlistarferill hennar féll í skuggann á umdeildu morðmáli þar sem Longet skaut kærasta sinn, skíðamanninn Vladimir Spider Sabich, til bana árið 1976. Longet hélt því fram að um slys hefði verið ræða og var dæmd fyrir manndráp af gáleysi. Lífið 15. maí 2026 17:06
„Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Ástvaldur Einar Steinsson, sjómaður og netagerðarmaður, er látinn, 95 ára að aldri. Inga Sæland, dóttir hans og mennta- og barnamálaráðherra, greindi frá andláti Ástvaldar í hjartnæmu myndbandi á Facebook fyrr í dag. Innlent 15. maí 2026 14:51
Sigfríð Ingólfsdóttir er látin Sigfríð Ingólfsdóttir, fyrrverandi fiskverkakona á Akureyri og einn þekktasti Arsenal-stuðningsmaður landsins, er látin, 73 ára að aldri. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu, Aðalstræti 5, laugardaginn 9. maí. Innlent 15. maí 2026 14:09
Látinn aðeins 29 ára Brandon Clarke, leikmaður Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta, er látinn aðeins 29 ára að aldri. Dánarorsök liggur ekki fyrir. Körfubolti 12. maí 2026 19:00
Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Breski fatahönnuðurinn, fyrirsætan og fyrrverandi raunveruleikastjarnan Jake Hall er látinn, aðeins 35 ára að aldri. Hann lést af sárum sínum eftir að hafa hlotið höfuðáverka á Mallorca þar sem hann var í fríi. Lögregla telur hann hafa barið höfði sínu í gegnum glerhurð í ölæði. Lífið 8. maí 2026 10:48
Ted Turner er látinn Ted Turner, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa stofnað bandarísku sjónvarpsstöðina CNN og haft þannig gífurleg áhrif á þróun fjölmiðla í heiminum, er látinn. Hann var 87 ára gamall en árið 2018 greindi hann frá því að hann hefði greinst með Lewy body heilabilun. Erlent 6. maí 2026 14:45
Myndlistarkonan Rúna er látin Myndlistarkonan Sigrún Guðjónsdóttir, betur þekkt sem Rúna, er látin, 99 ára að aldri. Listaferill Rúnu spannaði átta áratugi og starfaði hún þvert á ólíka miðla málaralistar, leirlistar, hönnunar og myndlýsinga. Hún var meðal ástsælustu myndlistarmanna þjóðarinnar, var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands. Menning 6. maí 2026 10:37
Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Sigfús Pétursson, tenór og Álftagerðisbróðir, lést á sunnudag á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Greint er frá andláti hans á vef Feykis. Þar kemur fram að hann var fæddur 23. apríl 1943 og hafi verið nýorðinn 83 ára. Útför Sigfúsar verður gerð frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 15. maí. Lífið 5. maí 2026 22:39
Einn ríkasti maður Noregs látinn Stein Erik Hagen, stjórnarformaður norska verslunarrisans Orkla og einn ríkasti maður Noregs, er látinn. Hann varð 69 ára gamall. Viðskipti erlent 4. maí 2026 14:57
Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux og síðast hrossabóndi á Snæfellsnesi, er látinn, níræður að aldri. Hann andaðist á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi í Kópavogi síðastliðið laugardagskvöld, 2. maí. Innlent 4. maí 2026 13:30
Sigmar Ó. Maríusson er látinn Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður er látinn, 91 árs að aldri. Hann rak verslunina Módelskartgripir við Hverfisgötu í rúma þrjá áratugi og var sæmdur fálkaorðunni fyrir störf sín. Innlent 3. maí 2026 23:02
Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Kajakræðarinn sem lést í slysi í Skorradalsvatni á Vesturlandi í vikunni hét Inga Dögg Kristinsdóttir og var 44 ára gömul. Hún skilur eftir sig eiginmann og tvo barnunga syni. Innlent 3. maí 2026 11:13