Lífið

Barns­faðir Gypsy Rose fannst látinn

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Gypsy Rose var dæmd til þess að dvelja í fangelsi í tíu ár en afplánaði átta ár.
Gypsy Rose var dæmd til þess að dvelja í fangelsi í tíu ár en afplánaði átta ár. GETTY

Barnsfaðir Gypsy Rose Blanchard, sem er þekkt fyrir að hafa orðið móður sinni að bana, fannst látinn á heimili sínu fyrir helgi.

Ken Urker átti 34 ára afmæli þann 1. október þegar hann fannst látinn á heimili sínu í Louisiana-fylki. Orsök andlátsins liggur ekki fyrir en Gypsy Rose telur að hann hafi látist vegna of stórs skammts af fíkniefnum.

Gypsy Rose komst í heimspressuna þegar hún var dæmd í tíu ára fangelsi árið 2016 fyrir að hafa orðið móður sinni að bana. Hún játaði brotið og lýsti áralöngu ofbeldi sem hún hafi orðið fyrir af hálfu móður sinnar, Dee Dee. 

Grunur lék á að móðir hennar hefði verið með Munchasen-heilkenni gagnvart dóttur sinni, sem er ofbeldi þar sem umönnunaraðili ýkir, býr til eða veldur veikindum hjá þeim sem er í umsjá hans. Dee Dee hafi því neytt Gypsy Rose til að þykjast vera langveik árum saman. Saga mæðgnanna varð innblástur fyrir þættina The Act og heimildarmyndina Mommy Dead and Dearest.

Urker og Gypsy Rose trúlofuðu sig árið 2018 á meðan hún var enn í fangelsi. Þau slitu trúlofuninni árið 2019 og giftist Gypsy Rose þá Ryan Scott Anderson. Þau skildu skömmu eftir að henni var sleppt úr fangelsi árið 2023 og hófu þá Gypsy Rose og Urker samband sitt að nýju.

Saman eiga þau eina stúlku, Aurora, sem fæddist í desember 2024.

„Það eru engin orð sem geta lýst dýpt þessa missis. Ég bið um næði og samkennd fyrir dóttur okkar, fjölskyldur okkar og alla sem syrgja Ken á þessum ótrúlega sársaukafulla tíma,“ sagði Gypsy Rose í yfirlýsingu sem People greinir frá.

„Hans verður sárt saknað, hann verður elskaður að eilífu og aldrei gleymdur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.