Innlent

Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sigurveig var einn frumkvöðla fréttastofu Stöðvar 2.
Sigurveig var einn frumkvöðla fréttastofu Stöðvar 2. Aðsend

Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október.

Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október.

Sigurveig fæddist í Reykjavík 9. september 1943 og var yngst fjögurra systkyna. Eldri bræður Sigurveigar voru Torfi myndlistarmaður, nú látinn, Helgi V. lögmaður og endurskoðandi, nú látinn og Hallgrímur G. Jónsson f.v. sparisjóðsstjóri. Foreldrar þeirra voru Jón Sigurður Helgason stórkaupmaður og Hanna Alvilda Helgason húsmóðir.

Sigurveig ólst upp í Reykjavík, gekk í Miðbæjarskóla og Gaggó Aust, lauk stúdentsprófi frá Verzlunaskóla Íslands og félagsfræði frá Háskóla Íslands.

Árið 1964 giftist Sigurveig Víglundi Þorsteinssyni fyrrum framkvæmdastjóra B.M. Vallár. Þau skildu en Víglundur lést 2018. Synir þeirra eru Jón Þór, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Þorsteinn, forstjóri Hornsteins og Björn, sölustjóri hjá Heklu. Barnabörnin eru átta og eitt barna-barnabarn.

Sigurveig starfaði lengst af starfsævinni við fjölmiðla, sem blaðamaður á Vísi, fréttamaður á fréttastofu Ríkisútvarpsins og var einn frumkvöðla á fréttastofu Stöðvar 2, fyrst sem varafréttastjóri, og síðar fréttastjóri.

Sigurveig var upplýsingafulltrúi Íslandsbanka um hríð og lauk starfsævinni sem sjálfstætt starfandi rithöfundur, þar sem hún, meðal annara verka, skrifaði í samvinnu við Helgu Guðrúnu Johnson 100 ára sögu Símans og sögu Ferðaþjónustunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×