
Sýrland

Þrjár ISIS-konur ákærðar í Danmörku
Yfirvöld í Danmörku hafa ákært þrjár konur fyrir að ganga til liðs við Íslamska ríkið. Konurnar fóru til Sýrlands á árum áður og giftust þar vígamönnum hryðjuverkasamtakanna. Eftir fall Kalífadæmisins voru konurnar og fjórtán börn þeirra í Roj-búðum í norðausturhluta Sýrlands.

Vígamenn tengdir al-Qaeda tóku Afrin í Sýrlandi
Vígamenn öfgahópsins Hayat Tahrir al-Sham, eða HTS, hafa tekið yfir stjórn borgarinnar Afrin í samnefndu héraði í Sýrlandi. HTS er afsprengi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Sýrlandi en vígamennirnir náðu tökum á borginni eftir harða bardaga við meðlimi öfgahópsins Al-Jabha Al-Shamiyyah.

Felldu enn einn háttsettan ISIS-liða
Bandarískir sérsveitarmenn réðust í nótt til atlögu gegn háttsettum leiðtoga Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Hermennirnir voru fluttir með þyrlum til þorpsins Muluk Saray, sem er skammt frá Qamishli og er á yfirráðasvæði Bashars al Assads, forseta Sýrlands.

Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner
Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hefur viðurkennt að hafa stofnað og eiga málaliðahópinn Wagner Group. Hann segist hafa stofnað hópinn eftir innrás Rússa í Úkraínu 2014 og með því markmiði að senda málaliða til austurhluta Úkraínu.

Tugir farandfólks fórust undan ströndum Sýrlands
Leitarlið hefur fundið 71 lík eftir að bátur með á annað hundrað farandfólks sökk undan ströndum Sýrlands í gær. Björgunaraðgerðir standa enn yfir en tuttugu manns hafa fundist á lífi til þessa og verið fluttir á sjúkrahús í Sýrlandi.

Skiptast á skotum við sveitir Írans í Sýrlandi
Þrír bandarískir hermenn eru sagðir hafa særst lítillega í eldflaugaárásum á bandarískar herstöðvar í Sýrlandi. Það er í kjölfar þess að Bandaríkin gerðu loftárásir á vopnaðar sveitir í Sýrlandi sem studdar eru af Íran.

Felldu nýja leiðtoga ISIS í loftárás
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í dag að leiðtogi Íslamska ríkisins hefði verið felldur í loftárás. Maher al-Agal, er þriðji leiðtogi samtakanna sem fellur í árás Bandaríkjanna á undanförnum árum en hann var felldur í drónaárás í morgun.

Hækkun íslenskra framlaga til UN Women, UNICEF og UNFPA
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hækka kjarnaframlög til þriggja Sameinuðu þjóða stofnana, UN Women, UNICEF og UNFPA. Á fundum utanríkisráðherra með framkvæmdastjórum stofnananna í gær var greint frá því að kjarnaframlög til UN Women hækki um 12 prósent, um 15 prósent til UNICEF og um rúmlega 70 prósent til UNFPA.

„Slátrarinn í Sýrlandi“ tekur við stjórn hersins í Úkraínu
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað nýjan herforingja til að taka yfir stjórn innrásarinnar í Úkraínu. Sá heitir Aleksandr Dvornikov en er gjarnan kallaður „Slátrarinn í Sýrlandi“. Herforinginn tók við stjórn innrásarinnar um helgina en hingað til hefur enginn einn herforingi haldið utan um hernaðaraðgerðir Rússa.

Milljónir barna aldrei þekkt annað en stríðsástand
Í Sýrlandi þurfa 6,5 milljónir barna á neyðaraðstoð að halda, 2,5 milljónir barna eru utan skóla og um ein milljón barna þjáist af vannæringu. Alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children hafa unnið í Sýrlandi frá árinu 2012 og hafa aðstoðað yfir fimm milljónir manna, þar af þrjár milljónir barna.

Sýrlensk börn særð á líkama og sál eftir ellefu ár af stríði
Frá því stríðið hófst í Sýrlandi fyrir ellefu árum hafa tæplega þrettán þúsund börn látið lífið eða særst í átökunum. Til að setja þann fjölda í íslenskt samhengi bendir UNICEF á að dauðsföll barna séu fleiri en sem nemur öllum íbúum Mosfellsbæjar á síðasta ári. Í gær létu þrjú börn lífið þegar sprengjuleifar sprungu á jörðu niðri í Aleppo.

Nýr leiðtogi Íslamska ríkisins bróðir stofnandans
Íslamska ríkið tilkynnti á fimmtudag að Abu al-Hassan al-Hashemi al-Quraishi væri nýr leiðtogi samtakanna en hann er bróðir stofnanda og fyrsta leiðtoga samtakanna, Abu Bakr al-Baghdadi.

Farnir að beita sömu aðferðum og í Sýrlandi
Her Rússlands er sagður byrjaður að beita sömu aðferðum í Úkraínu og hermenn nýttu í Sýrlandi. Ganga þær út á að umkringja borgir og bæi og þvinga þá til uppgjafar.

Kalla enn eftir því að losna við konur og börn Íslamska ríkisins
Þremur árum eftir fall kalífadæmis Íslamska ríkisins eru tugir þúsunda fyrrverandi meðlima hryðjuverkasamtakanna enn í búðum og fangelsum sem sýrlenskir Kúrdar reka í norðausturhluta landsins. Að miklu leyti er um erlenda vígamann að ræða og eiginkonur þeirra og börn sem heimaríki þeirra vilja ekki taka við á nýjan leik.

Ákall UNICEF vegna hræðilegra aðstæðna barna í Sýrlandi
„Klukkan tifar fyrir börnin í norðurhluta Sýrlands og hver dagur skiptir máli.

Ellefu börn látast í Sýrlandi af völdum vetrarkulda og átaka
Að minnsta kosti sex börn létust og eitt særðist alvarlega í átökum í landamærabænum Athmeh í norðvesturhluta Sýrlands í síðustu viku. Önnur fimm börn hafa látist í vetrarhörkum síðustu tvær vikur.

Hvernig árásin fór fram: Vissu ekki að leiðtogi ISIS byggi fyrir ofan þau
Árás bandarískra sérsveitarmanna á hús í Idlib-héraði í Sýrlandi á miðvikudagskvöld, þar sem Abu Ibrahim al-Hashimi al-Qurayshi, leiðtogi Íslamska ríkisins dó, hafði verið skipulögð yfir nokkurra mánaða skeið. Fimmtíu hermenn komu að árásinni og voru fluttir á svæðið með þyrlum.

Leiðtogi ISIS-samtakanna drepinn í aðgerð Bandaríkjahers
Abu Ibrahim al-Hashimi al-Qurayshi, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna ISIS, var drepinn í aðgerð sérsveitar bandaríska hersins í norðvesturhluta Sýrlands í nótt.

Gerðu umfangsmestu árásina í Sýrlandi síðan Baghdadi var felldur
Bandarískir sérsveitarmenn gerðu í gærkvöldi umfangsmikla árás í norðvesturhluta Sýrlands sem talin er hafa beinst gegn hryðjuverkamönnum. Bandaríkjaher segir árásina hafa heppnast og að enginn hermaður hafi fallið í henni.

ISIS-liðar stinga aftur upp kollinum í Írak og Sýrlandi
Vígamenn Íslamska ríkisins stinga sífellt oftar upp kollinum í Írak og Sýrlandi. Þó samtökin séu langt frá því að ná fyrri hafa meðlimir samtakanna fyllt upp í tómarúm sem myndast hefur í norðurhluta Íraks og í Sýrlandi.

UNICEF óttast mjög um öryggi barna í Sýrlandi
Vaxandi átök í norðausturhluta Sýrlands eftir árás á Ghwayran-fangelsið í síðustu viku hafa kostað yfir hundrað mannslíf og þúsundir eru á vergangi. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, óttast mjög um öryggi 850 barna sem eru í haldi, sum hver einungis 12 ára gömul. UNICEF kallar eftir því að öllum börnum í haldi verði tafarlaust sleppt.

Harðir bardagar eftir flótta ISIS-liða
Harðir bardagar hafa geisað í norðausturhluta Sýrlands eftir að fjölda ISIS-liða tókst að strjúka úr fangelsi sem sýrlenskir Kúrdar hafa rekið. Fangelsið hýsti um það bil 3.500 ISIS-liða og hefur gert lengi en meðal fanganna voru nokkrir af leiðtogum Íslamska ríkisins.

Sýrlenskur ofursti dæmdur fyrir glæpi gegn mannkyni
Dómstóll í Þýskalandi hefur dæmt sýrlenskan ofursta í lífstíðarfangelsi fyrir glæpi gegn mannkyni þar sem hann starfaði í alræmdu fangelsi í sýrlensku höfuðborginni Damaskus við upphaf borgarastyrjaldarinnar.

Blóðug byrjun á nýju ári í Sýrlandi
Yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku lýsir þungum áhyggjum af stöðu mála.

Hafa ekki bæði efni á upphitun húsa og mat fyrir börnin
Yfir 500 milljónir Bandaríkjadala þarf fyrir maí á þessu ári til að bregðast við neyðinni í Sýrlandi.

66°Norður og UN Women fá styrk til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur
Verkefnið snýr að því að vinna að atvinnusköpun fyrir konur á flótta frá Sýrlandi, Afganistan og Írak.

Þúsundir fallið í árásum byggðum á slæmum upplýsingum og illa ígrunduðum ákvörðunum
Drónahernaður Bandaríkjamanna hefur oftsinnis byggt á gölluðum upplýsingum og illa ígrunduðum ákvörðunum um árásir. Af þessum sökum hafa þúsundir almennra borgara látið lífið, þeirra á meðal mörg börn.

Skutu niður fyrsta skotmarkið í fjörutíu ár
Flugmaður orrustuþotu breska flughersins skaut nýverið niður dróna sem verið var að fljúga nærri herstöð í Sýrlandi. Þetta var í fyrsta sinn sem bresk orrustuþota skýtur niður skotmark frá því í Falklandseyjastríðinu fyrir tæpum fjörutíu árum.

Börnum á stríðshrjáðum svæðum fjölgar hratt
Rétt um 200 milljónir barna búa á stríðshrjáðum svæðum í þrettán þjóðríkjum.

Þurftu að hlusta á rangan þjóðsöng en sungu bara þá hinn rétta í staðinn
Starfsmenn Körfuboltasambandsins í Kasakstan gerðu vandræðalega mistök fyrir leik Kasakstan og Sýrlands í undankeppni HM í körfubolta um helgina.