

Sportið í dag
Sportið í dag er fréttaþáttur um íþróttir á Stöð 2 Sport. Þátturinn er sýndur alla virka daga klukkan 15.00.

Arnar ætlaði að klófesta Inga Þór strax
Ingi Þór Steinþórsson segist hlakka til samstarfsins með Arnari Guðjónssyni sem vildi ólmur fá hann til Stjörnunnar.

Aron vill vera áfram hjá Barcelona: „Er ekki að segja umbanum að banka fast á aðrar dyr“
Aron Pálmarsson hefur hug á því að vera áfram hjá Barcelona er samningur hans við félagið rennur út eftir rúmt ár. Þetta staðfesti hann við Henry Birgi Gunnarsson í þættinum Sportinu í dag fyrir helgi.

Patrekur hefur sett upp þriggja ára áætlun til að koma Stjörnunni í hæstu hæðir
Nýráðinn þjálfari Stjörnunnar er með þriggja ára áætlun til að gera Stjörnuna samkeppnishæfa á toppi Olís deildarinnar í handbolta.

Formaður KKÍ segir vandamálið stórt: Allir þurfa að taka þátt í að lækka kostnað
„Vandamálið er stórt. Það er númer eitt, tvö og þrjú að við lækkum allan þennan kostnað,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, sem segir langflest körfuknattleiksfélög á Íslandi í dag eiga erfitt með að láta enda ná saman.

Henry Birgir og Kjartan Atli rifjuðu upp þegar þyrla kom með Íslandsmeistaratitilinn í Frostaskjólið
KR-ingar nær og fjær eru eflaust ánægðir með þessa upprifjun.

Aron finnur metnaðinn hjá ungu leikmönnum landsliðsins | Myndband
Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson ræddi framtíð íslenska handboltalandsliðsins hjá Henry Birgi Gunnarssyni í liðinni viku.

Þröngt mega sáttir sitja, magnað andrúmsloft og „leynileið“ í sund | Myndband
Kjartan Atli Kjartansson kíkti í klefa körfuknattleikslið Stjörnunnar í Ásgarði en sá er ekki allur þar sem hann er séður.

Keflvíkingar grilluðu fyrir framlínufólk
„Það er gaman að geta gert eitthvað svona fyrir framlínufólkið okkar,“ segir Kristján Helgi Jóhannsson, stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild Keflavíkur, en deildin bauð heilbrigðisstarfsfólki upp á grillaða hamborgara til að sýna þakklæti fyrir störf þess á tímum kórónuveirufaraldursins.

Aron fastur inni í níu vikur: „Mjög ljúft að komast út að æfa“
„Það verður mjög ljúft að komast út að æfa,“ segir Aron Bjarnason sem eftir sjö vikur í útgöngubanni í Ungverjalandi og tvær vikur í sóttkví hér á landi getur byrjað að æfa með sínu nýja liði Val á mánudaginn.

Patrekur vill akademíu í samstarfi við körfuna
Patrekur Jóhannesson, sem tekur við handboltaliði karla hjá Stjörnunni 1. júní, vill að farin verði sama leið í Garðabæ og á Selfossi með því að koma á fót handboltaakademíu.

Gummi Ben stýrir nýjum þætti um Pepsi Max deildina í sumar
Tveir sigursælir leikmenn og tveir miklir reynsluboltar bætast við sérfræðingahóp Stöðvar 2 Sport í umfjölluninni um Pepsi Max deild karla í sumar.

Sveimhuginn Du Rietz mætti í partí hjá Aroni á Íslandi fyrir nokkrum árum
Aron Pálmarsson ræddi um þá ákvörðun Kims Ekdahl du Rietz að hætta í handbolta, öðru sinni á fjórum árum.


Gullmoli dagsins: Óborganlegur flutningur Frikka á júróvisjónlaginu
Friðrik Dór Jónsson var reglulega senuþjófur í þættinum Teignum á Stöð 2 Sport þar sem fjallað var um íslenska fótboltann og óborganlegur flutningur hans á Í síðasta skipti sló í gegn.

Aron tók á sig högg en liðsstjórinn æðislegi slapp
„Auðvitað er þetta högg en það eru allir að þessu,“ segir Aron Pálmarsson sem þurfti að taka á sig 70% launaskerðingu, tímabundið, líkt og aðrir leikmenn Barcelona vegna kórónuveirukrísunnar.

Af hverju má ekki ræða launamálin almennilega?
„Það hefur alltaf verið þannig að félögunum er ekki vel við að ræða launamál, hvort sem það eru launamál erlendra eða íslenskra leikmanna,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ.

Hildur fékk ekkert á hreint hjá KR og leitaði annað
Vegna óvissunnar sem ríkir hjá körfuknattleiksdeild KR og vegna þess að félagið kom ekki með klárt tilboð á borð til hennar, ákvað Hildur Björg Kjartansdóttir að róa á ný mið.

Aron tilbúinn að vera fyrirliði landsliðsins
Aron Pálmarsson vill verða næsti fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins.

Gullmoli dagsins: Sveppi heimsótti Eið á Camp Nou og sendi Liverpool-mönnum tóninn
„Gullmoli dagsins“ er dagskrárliður í Sportinu í dag þar sem rifjuð eru upp skemmtileg atriði úr sögu íþróttastöðva Stöðvar 2. Í dag var sýnd heimsókn Sveppa til Eiðs Smára Guðjohnsen vorið 2007.

Sara óttast að íþróttir kvenna fari verr út úr faraldrinum - Hefði viljað tvö EM á sama sumri
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, segist óttast að efnahagslegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins muni hafa meiri og verri áhrif á íþróttir kvenna en karla.

Segir félög vanáætla eða ljúga um launakostnað: „Þá værum við bara í mansali“
Hluti körfuknattleiksfélaga á Íslandi vanáætlar stórlega launakostnað vegna leikmanna, svindlar á þeim eða vill halda kostnaðinum leyndum.

Lyon verið í sambandi við Söru í tvö ár
Besta knattspyrnulið Evrópu síðustu ár, Lyon, hefur verið í sambandi við landsliðsfyrirliðann Söru Björk Gunnarsdóttur síðustu tvö ár. Sara yfirgefur Wolfsburg í sumar og hefur verið sterklega orðuð við Lyon.

Langaði út en átti erfitt með að segja nei við Bjarna og Ingvar
Lovísa Björt Henningsdóttir framlengdi á dögunum samning sinn við Hauka í Dominos-deild kvenna og mun leika með liðinu á næstu leiktíð.

Gullmoli dagsins: Valtýr Björn og Buttercup heimsóttu Aftureldingu
Boltaball Aftureldingar fyrir tuttugu árum fékk skemmtilega kynningu hjá íþróttafréttamanninum Valtýr Birni Valtýssyni.

Ekki hægt að æfa frjálsar utanhúss í Reykjavík: „Afleiðing ákvarðanaleysis“
Ekki er hægt að stunda frjálsar íþróttir utanhúss í Reykjavík í dag svo að vel sé. Eina hlaupabrautin í borginni, á Laugardalsvelli, er ónýt eftir veturinn og tafir hafa orðið á því að nýr völlur í Mjódd verði tilbúinn.

„Heiður að danska sambandið hafi leitað til mín“
„Það er gaman að hafa aftur eitthvað að gera í landsliðspásunum,“ sagði Arnór Atlason léttur í bragði í Sportinu í dag þar sem hann ræddi um sitt nýja starf sem aðalþjálfari U18-landsliðs pilta í handbolta í Danmörku.

Hannes um erlenda leikmenn: „Menn sammála um að vera ósammála“
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, segir að það sé ekki bara á Íslandi þar sem er rætt um fjölda erlenda leikmanna í hverju liði okkar því nágrannar okkar á Norðurlöndunum eru á svipuðum slóðum.

Kári tók hnefaleika fyrir í skúrnum: „Horfði á alla bardagana með ömmu hans“
Hnefaleikar voru Kára Kristjáni Kristjánssyni ofarlega í huga þegar hann sendi inn innslag úr skúrnum sínum í Eyjum í Sportið í dag á Stöð 2 Sport.

Þögnin í Vesturbænum ekkert annað en vandræðaleg
Eftir þriggja áratuga feril sem körfuboltaþjálfari var Inga Þór Steinþórssyni sagt upp störfum í fyrsta sinn þegar KR ákvað að láta hann fara í síðustu viku. Henry Birgir og Kjartan Atli fóru yfir málið í Sportinu í dag.

„Hef ekki vaknað spenntur á leikdegi í langan tíma“
Bergsveinn Ólafsson segir að ástríðin fyrir fótboltanum hafi farið þverrandi undanfarin misseri.