

Skóla- og menntamál
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.

Tæp 10% grunnskólabarna telja sig hafa orðið fyrir neteinelti innan veggja skólanna
Nær helmingur sjö þúsund grunnskólanema hér á landi telur sig hafa orðið fyrir neteinelti innan veggja skólanna á síðasta ári samkvæmt nýrri rannsókn. Foreldrar eru hvattir til þess að fylgjast með netnotkun barna sinna og grípa inn í sé þörf á.

Þurfum að brjóta upp úreltu kerfin
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir er framkvæmdastjóri og stofnandi íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Kara Connect. Fyrirtækið hefur þróað hugbúnaðarlausn sem auðveldar aðgengi að sérfræðiþjónustu á sviði heilbrigðis- og menntamála.

Meirihlutinn ber ábyrgð á slæmri fjárhagsstöðu grunnskólanna
Nánast allir rekstarliðir skólastarfseminnar í Reykjavík fá of knappt fjármagn.

Ekki á dagskrá að minnka framboð af kjöti í mötuneytum Akureyrarbæjar
Akureyrarbæ barst, líkt og umhverfisráðherra, ríkisstjórn og öðrum sveitarfélögum landsins, áskorun frá samtökum grænkera um að draga úr neyslu dýraafurða.

Ungir samviskusendiherrar
Verkföll skólabarna fyrir loftslagið hafa dúkkað upp í fréttum hérlendis af og til. Þúsundir ungmenna um allan heim eru nú að skipuleggja allsherjarverkfall fyrir loftslagið á föstudaginn næsta og á það einnig við hér heima.

Skólinn okkar – Skýrsla Innri endurskoðunar
Nú er formaður Skóla- og frístundaráðs (SFR), Skúli Helgason, komin í ham og er að reyna flýta því sem mest hann má að loka hluta af Kelduskóla. Enda má engan tíma missa því borgarstjórinn tilkynnti í vikunni að hönnunarsamkeppni er framundan um skóla í hverfi formannsins.

Framhaldsskólinn – Fulla ferð áfram!
Markmiðið ætti að vera að byggja upp hvern skóla fyrir sig sem öflugt lærdómssamfélag þar sem allir vinna þétt saman að sameiginlegum markmiðum og stuðla að öflugu tengslaneti innan og þvert á skóla, milli skólastiga og inn í fræðasamfélagið. Fulla ferð áfram!

Steinunn tekur við starfi Jónasar
Steinunn Sigurðardóttir, skáld og rithöfundur, gegnir starfi Jónasar Hallgrímssonar í ritlist við Háskóla Íslands í vetur.

Léttara en ég átti von á
Vigdís Stefánsdóttir varð nýlega doktor í erfðaráðgjöf, fyrst Íslendinga. Hún var líka fyrsti íslenski erfðaráðgjafinn þegar hún hóf störf við Landspítalann árið 2006.

HR talinn betri en HÍ
Háskólinn í Reykjavík er talinn meðal 350 bestu háskóla í heiminum á nýjum lista Times Higher Education (THE),

Eiríkur nýr forseti lagadeildar HR
Eiríkur Elís Þorláksson hefur verið ráðinn forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík.

Tryggjum barninu öryggi og vellíðan
Hvernig var tekið á móti þér þegar þú steigst þín fyrstu skref í skóla? Hvaða minningar eigum við úr skóla? Hverjir voru bestu vinirnir/bestu vinkonurnar í skólanum? Var komið fram við þig af virðingu og á þínum forsendum? Leið þér vel í skólanum?

Hvernig geta minnstu skólar landsins skarað frammúr?
Við eigum ekki að fækka skólum. Þvert á móti ættum við að stefna að því að fjölga þeim - og fjölbreyttum leiðum til náms, koma betur til móts við þarfir allra barna og styðja þau á markvissan hátt til að takast á við áskoranir sem munu mæta þeim í síbreytilegum heimi.

Bjarni Kristjánsson rektor látinn
Bjarni Kristjánsson, fyrrverandi rektor Tækniskólans, lést síðastliðinn föstudag á hjúkunarheimilinu Sóltúni. Bjarni var níræður. Mbl.is greinir frá.

Árni var fórnarlamb Excel-villu læknadeildar: „Fannst mér hafa gengið betur“
Árni var búinn að gefa upp alla von um að komast inn í læknisfræðina að sinni eftir að honum var tilkynnt fyrr í sumar að hann hafi ekki hlotið náð deildarinnar. Hann var búinn að nema lögfræði við HÍ í tvær vikur þegar hann fékk símtalið afdrifaríka.

Fann afdrifaríka reiknivillu á prófsýningu inntökuprófa í læknisfræði
Reiknivilla, sem uppgötvaðist við prófsýningu á inntökuprófum í læknisfræði við Háskóla Íslands í vikunni, varð til þess að fimm einstaklingar bætast á mánudag við hóp nýnema við læknadeild skólans, þremur vikum eftir að önnin hófst.

Eftirlit við Hlíðaskóla aukið vegna tveggja manna
Nemandi í Hlíðaskóla í Reykjavík lýsir því hvernig tveir menn hafi lagt að sér að koma með sér af lóð skólans í dag.

Hrafnhildur til Hjallastefnunnar
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf markaðs- og gæðastjóra hjá Hjallastefnunni.

Börnin á Laufásborg ánægð með saltfiskinn
Saltfiskvika fer nú fram á veitingastöðum um land allt. Markmið vikunnar er að vekja athygli á salfisknum heima fyrir.

Gerum landsbyggðina máttuga aftur!
Vandamálið sem við stöndum hins vegar frammi fyrir og þurfum að bregðast við nú þegar er að það ríkir ekki jafnrétti til náms fyrir ungmenni á landsbyggðinni.

Einelti í skólum að aukast á ný
Einelti í grunnskólum hefur aukist á síðustu árum eftir að hafa minnkað á árunum eftir hrun. Framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar segir að fylgni virðist mælast við efnahagsástandið í landinu.

Hönnunarsamkeppni um nýja leik- og grunnskóla í 102 Reykjavík og Vogahverfi
Borgarstjórn samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um að halda hönnunarsamkeppnir um nýja leik- og grunnskóla í Skerjafirði og Vogabyggð.

Árholt – leikskóli að nýju
Eitt af aðaláherslumálum í meirihlutasamningi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar er að bæta kjör og hag barnafólks á Akureyri. Ein af meginleiðunum til að ná þessu markmiði er að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.

Kirkjuklukkur hringja inn „Vaknaðu. Þú átt bara eitt líf“
Tuttugu og þrjú dauðsföll sem tengjast ofneyslu lyfja fyrstu átta mánuði ársins eru í rannsókn hjá Embætti Landlæknis. Þau voru þrjátíu og níu á síðasta ári og af þeim voru ellefu ungmenni. Fjölskylda drengs sem lést vegna lyfjaeitrunar hefur síðan þá unnið að forvörnum í skólum undir yfirskriftinni Eitt líf. Átakið er nú stærsta forvarnarátak sem fram hefur farið hér á landi.

Mikil útgjöld í framkvæmdir og viðhald skóla
Reykjavíkurborg vinnur að viðhaldi og framkvæmdum í að minnsta kosti átta af 39 grunnskólum í Reykjavíkur en í fimm þeirra hefur komið upp raki og eða mygla.

Kemur til greina að setja gjaldskyldu á bílastæðin við Háskóla Íslands
Til greina kemur að setja gjaldskyldu á bílastæðin við Háskóla Íslands til að hvetja til umhverfisvænni samgangna. Slíkt er ekki á döfinni hjá Háskóla Reykjavíkur.

Sex ára einhverfur drengur gleymdist í rútu í nokkra klukkutíma
Mikolaj Czerwonka er sex ára einhverfur drengur sem hóf nám í 1. bekk í Klettaskóla síðastliðinn mánudag. Eftir skóla í gær átti hann að fara í frístundaheimilið Guluhlíð en þegar mamma hans, Sylwia, kom að sækja hann um klukkan 16:30 komst hún að því að hann hafði ekki skilað sér þangað.

Styttist í að holan verði að Húsi íslenskunnar
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Guðrún Ingvarsdóttir forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins og Karl Andreassen framkvæmdastjóri ÍSTAKs skrifuðu undir samning um byggingu Húss íslenskunnar við Arngrímsgötu í morgun.

Styrkja háskóla í Manitóba
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja íslenskudeild Manitóbaháskóla í Kanada með því að efla tengsl deildarinnar við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Segir innri endurskoðun um rekstur grunnskóla í Reykjavík áfellisdóm
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir skýrslu innri endurskoðunar um rekstur grunnskóla borgarinnar vera áfellisdóm yfir skólamálum í Reykjavík.