Vegan-smjör innkallað vegna myglu Matvælastofnun hefur sent út tilkynningu þar sem varað er við neyslu á tveimur lotum af vegan smjöri frá Naturli vegna hættu á mygluvexti. Viðskipti innlent 2. september 2020 18:30
HMS fjallar um kosti og galla óverðtryggðra lána: „Við erum ekki að vara fólk við því taka þessi lán“ Karlotta Halldórsdóttir, sérfræðingur hjá hagdeild HMS, segir stofnunina ekki vera að vara fólk við því að taka óverðtryggð húsnæðislán með breytilegum vöxtum heldur vilji hún hvetja lántakendur til að vera meðvitaða og vakandi fyrir því ef stýrivextir hækka því þá hækki greiðslubyrðin af láninu. Viðskipti innlent 2. september 2020 10:35
Eiga rétt á afslætti vegna ferða sem enduðu fyrr vegna faraldursins Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur úrskurðað í tveimur málum þar sem ferðalangar þurftu skyndilega að fljúga heim vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins á Spáni. Innlent 27. ágúst 2020 20:18
Kjúklingur innkallaður níu sinnum oftar vegna gruns um salmonellu hér á landi en í Danmörku á síðastliðnum tólf mánuðum Kjúklingakjöt var innkallað níu sinnum oftar vegna gruns um salmonellu hér á landi en í Danmörku á síðastliðnum tólf mánuðum. Þó búa sextán sinnum fleiri í Danmörku en á Íslandi. Innlent 27. ágúst 2020 19:30
Vara við neyslu á orkustykkjum úr Costco Öll þau sem keypt hafa umrædd orkustykki frá 1. mars eru beðin um að hafa varann á og skila þeim til Costco í Kauptúni. Viðskipti innlent 27. ágúst 2020 10:43
Rafrettuvefsíður fullar af ólöglegum varningi Á sjöunda hundrað ólöglegra rafretta og fylgihluta mátti finna í íslenskum vefverslunum. Viðskipti innlent 27. ágúst 2020 10:08
Þetta eru molarnir fjórir sem Nói Siríus fórnar Fjórir þekktir molar munu víkja úr Nóa konfektinu fyrir fjórum nýjum molum. Viðskipti innlent 26. ágúst 2020 10:40
Sáu ekki verðið í gleraugnaverslunum Viðunandi verðmerkingar og upplýsingar á vefsíðu vantaði hjá meirihluta þeirra gleraugnaversluna sem Neytendastofa segist hafa kannað á dögunum. Viðskipti innlent 26. ágúst 2020 09:08
Vilja 10 milljóna sekt fyrir okur á hættustundu Flokkur fólksins vill að ríkisslögreglustjóra verði gefin heimild til að ákveða hámarkssöluverð eða hámarksálagningu á vörum, fari svo að eftirspurn á þeim aukist verulega eða framboð þeirra dragist saman vegna hættuástands. Innlent 26. ágúst 2020 06:11
Ríflega 28 þúsund beiðnir um endurgreiðslu enn á borði Icelandair Icelandair hefur þegar endurgreitt hátt í 107 þúsund bókanir frá öllum markaðssvæðum félagsins frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á. Að baki hverri bókun og þar af leiðandi endurgreiðslubeiðnum getur verið fjöldi farþega. Viðskipti innlent 25. ágúst 2020 16:45
Hefja póstdreifingu á laugardögum Pósturinn hyggst taka upp dreifingu á laugardögum á höfuðborgarsvæðinu. Er það gert vegna aukinnar innlendrar netverslunar. Viðskipti innlent 25. ágúst 2020 13:55
Endurgreiðslukröfur á Icelandair á borði Neytendasamtakanna hlaupa á hundruðum Hundruð mála eru á borði Neytendasamtakanna vegna endurgreiðslna sem ekki hafa borist fyrir flugmiða sem keyptir voru í ferðum sem ekki voru farnar. Viðskipti innlent 25. ágúst 2020 13:51
Mun friðhelgi einkalífs kosta meira í framtíðinni? Síðasta föstudag birtist frétt á Vísi um nýjung sem tryggingafélagið VÍS hyggst setja á markað um næstu áramót. Nýjungin er kubbur sem settur er í bíla og er þeim eiginleikum búinn að geta fylgst með akstri bílstjóra, meðal annars hvort þeir keyri of hratt eða séu í símanum undir stýri. Skoðun 24. ágúst 2020 15:00
Borgun varar við sms-skilaboðum fjársvikara Borgun varar við yfirstandandi tilraunum til fjársvika í nafni Borgunar en einhverjir hafa lent í því að fá sms-skilaboð í nafni Borgunar sem í stað þess að endurgreiða fólki einhverja fjárhæð, eins og segir í skilaboðunum, fá svikahrappar aðgang að kortaupplýsingum fólks. Innlent 23. ágúst 2020 15:35
Brimborg og Askja innkalla bifreiðar Bílaumboðin Askja og Brimborg hafa þurft að innkalla bíla í gær og fyrradag. Askja tilkynnt um innköllun á 20 Mercedens-Benz X-Class pallbílum. Brimborg hefur tilkynnt um innköllun á 22 Ford Kuga PHEV bíla. Bílar 20. ágúst 2020 07:00
Múlalundur ósáttur við grímukönnun ASÍ Framkvæmdastóri vinnustofunnar Múlalundar segir nýlega verðkönnun ASÍ á grímum vera ranga. ASÍ fagnar því hins vegar að Múlalundur hafi lækkað verðið eftir heimsóknina. Viðskipti innlent 14. ágúst 2020 15:12
Mikill verðmunur á grímum og töluverðum fjölda kippt úr umferð Töluverður verðmunur getur verið á þriggja laga, einnota andlitsgrímum. Viðskipti innlent 13. ágúst 2020 10:56
Volvo innkallaður vegna brunahættu Bílaumboðið Brimborg hefur innkallað á sjötta tug Volvo-bifreiða vegna bilunar í kælikerfinu, sem í alvarlegustu tilfellunum getur orsakað brunahættu. Viðskipti innlent 10. ágúst 2020 12:54
Fleiri kjúklingar innkallaðir Fyrirtækið Reykjagarður hefur stöðvað vinnslu úr tilteknum kjúklingahópi eftir að upp kom grunur um salmonellusmit Viðskipti innlent 4. ágúst 2020 13:35
Efnalaugar geri hreint fyrir sínum dyrum Allar þær nítján efnalaugar sem Neytendastofa tók til skoðunar þurfa að gera bragarbót á vefsíðum sínum. Viðskipti innlent 4. ágúst 2020 12:35
Í lífshættu eftir að hafa smakkað íslenskan orkudrykk Brynja Guðmundsdóttir fékk alvarlegt fiskiofnæmiskast eftir að hafa tekið sopa af íslenska orkudrykknum Collab. Innlent 1. ágúst 2020 19:24
Hafa sagt upp viðskiptasamböndum til að sporna gegn smálánastarfsemi Sparisjóður Strandamanna hefur gripið til viðeigandi ráðstafana til þess að koma í veg fyrir að innheimta í tengslum við smálánastarfsemi fari fram í gegnum reikninga sjóðsins. Viðskipti innlent 1. ágúst 2020 10:46
Foreldrar hvattir til að hætta notkun Thule Sleek Ákveðið hefur verið að innkalla barnakerrur frá framleiðandanum Thule AB vegna fallhættu. Viðskipti innlent 31. júlí 2020 07:03
Innkalla hrísgrjónaolíu vegna aðskotaefna Dai Phat Trading ehf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað hrísgrjónaolíu vegna aðskotaefna (Glycidyl ester) í vörunni Viðskipti innlent 30. júlí 2020 15:24
Hafna því alfarið að hafa rúmlega tvöfaldað grímuverð á 23 mínútum Mikill verðmunur á andlitsgrímum sem keyptar voru með 23 mínútna millibili í Lyf og heilsu í Hafnarfirði í dag skýrist af innkaupaverði hjá viðkomandi heildsölum. Viðskipti innlent 30. júlí 2020 14:38
Ólögleg starfsemi þrífist í skjóli sparisjóðsins Neytendasamtökin gagnrýna Sparisjóð Strandamanna fyrir viðskipti hans við smálánafyrirtæki. Viðskipti innlent 28. júlí 2020 10:11
Vara við neyslu á Ali og Bónus-kjúklingi Dreifing á Ali og Bónus-kjúklingi hefur verið stöðvuð vegna gruns um salmonellu. Viðskipti innlent 24. júlí 2020 14:05
Tilhæfulaus skattur innheimtur á tjaldsvæði Breki Karlsson varar við ólöglegri innheimtu. Innlent 17. júlí 2020 13:34
Geta sótt um lán til að endurgreiða ferðir í næstu viku Alþingi hefur samþykkt stofnun Ferðaábyrgðasjóðs í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Ferðaskrifstofur munu geta sótt um lán hjá sjóðnum í byrjun næstu viku og hafist handa við að greiða endurgreiðslukröfur á hendur sér. Viðskipti innlent 17. júlí 2020 11:00
Penninn leggur aukna áherslu á leikföng með kaupum á heildsölu Samkeppniseftirlitið gerar engar athugasemdir við það að Penninn kaupi HB heildverslun að fullu. Viðskipti innlent 13. júlí 2020 14:22