Ferrari hafa fundið lausn á vandamálum sínum Ferrari-liðið ók endurhönnuðum bíl sínum á æfingum á Mugello brautinni á Ítalíu í dag. Sagt er að endurhönnunin muni færa liðinu um það bil 0,2 sekúntur hvern hring og jafnvel meira. Formúla 1 3. maí 2012 22:00
Loeb á góðri leið að níunda titlinum Franski rallýökuþórinn Sebastian Loeb vann sinn sjötugasta heimsmeistararallsigur á ferlinum í Argentínu á Sunnudag.Með sigrinum jók hann forskot sitt á Norðmanninum Petter Solberg í átján stig í heimsmeistarakeppninni. Formúla 1 30. apríl 2012 20:00
Vettel segir liðið hafa tapað sjáfstraustinu Heimsmeistarinn Sebastian Vettel, sem ekur fyrir heimsmeistaralið Red Bull í Formúlu 1, segir lið sitt hafa tapað sjálfstraustinu sem það hafði svo sterkt í fyrra. Ástæðuna segir hann vera að liðið hafi ekki haldið gríðarlegum yfirburðum sínum milli ára. Formúla 1 29. apríl 2012 00:01
Ecclestone: Formúla 1 keppir að nýju í Barein Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, segir að mótaröðin muni snúa aftur til Barein þrátt fyrir gríðarlegt fjaðrafok í kringum mótið í ár og í fyrra. Formúla 1 24. apríl 2012 15:45
Schumacher segist ekki geta sýnt hvað í honum býr Michael Schumacher hjá Mercedes liðinu segist ekki geta ekið bíl sínum og fengið allt úr honum sem í boði er vegna þess að hann þurfi alltaf að passa upp á að slíta dekkjunum ekki of hratt. Formúla 1 23. apríl 2012 19:45
Alonso öskureiður út í Rosberg Fernando Alonso, ökumaður Ferrari í Formúlu 1, segist vera afar óánægður með að Nico Rosberg hafi komist upp með glannaskap í kappakstrinum í Barein í gær. Formúla 1 23. apríl 2012 17:00
Vettel sótti sigur í fyrsta sinn í ár Sebastian Vettel sótti fyrsta sigur sinn á árinu í kappakstrinum í Barein í dag. Finninn Kimi Raikkönen og liðsfélagi hans Roman Grosjean hjá Lotus urðu í öðru og þriðja sæti. Formúla 1 22. apríl 2012 15:14
Vettel fremstur á ráslínu í Barein Þýski heimsmeistarinn Sebastian Vettel gerði það sem hann var orðinn vanur í fyrra og setti Red Bull-bíl sinn á ráspól fyrir kappaksturinn í Barein sem fram fer á morgun. Formúla 1 21. apríl 2012 12:29
Mótið í Barein á áætlun þrátt fyrir mikil mótmæli Mótmælendur krefjast mannréttinda og vilja ekkert með Formúlu 1 hafa. Áhyggjur vaxa um að mótmælendur muni nota kappaksturinn til að koma rödd sinni á framfæri. Ecclestone hefur engar áhyggjur af öryggismálum fyrir mótið. Formúla 1 21. apríl 2012 10:00
Rosberg enn fljótastur á lokaæfingunni Þjóðverjinn Nico Rosberg á Mercedes-bíl var fljótastur á lokaæfingu keppnisliða í Barein í morgun. Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var annar á Red Bull. Formúla 1 21. apríl 2012 09:20
Hamilton fær 3 milljarða á ári og vill nýjan samning við McLaren Lewis Hamilton er tilbúinn að eyða næstu Formúlu 1-árum sínum hjá McLaren og vill fá nýjan samning. Núgildandi samningur hans rennur út í ár en þá hefur hann gilt í fimm ár og skilað honum rúmum þremur milljörðum króna á ári. Formúla 1 21. apríl 2012 06:00
Rosberg fljótastur og Force India dregur sig í hlé Nico Rosberg, á Mercedes-bíl, var fljótastur á seinni æfingu keppisliða í Formúlu 1 sem nú fer fram í Barein. Lewis Hamilton á McLaren-bíl var fljótastur á fyrri æfingunni. Formúla 1 20. apríl 2012 18:00
Verður mótinu í Barein á endanum aflýst? Formúlu 1 kappaksturinn í Barein fer fram samkvæmt áætlun á sunnudaginn, fullyrðir Salman bin Hamad bin Isa Al Khalifa krónprinsinn í konungsríkinu Barein. Miklar umræður um hvort kappaksturinn eigi yfir höfuð að fara fram í löndum á barmi borgarastríðs hefur staðið í nokkrar vikur. Formúla 1 20. apríl 2012 15:20
Kappakstur í skugga mótmæla og óeirða Barein kappaksturinn fer fram um helgina eftir að talsverð óvissa hefur ríkt um hvort mótið verði eða ekki. Tvö ár eru liðin síðan keppt var í Barein síðast því kappakstrinum var aflýst í fyrra vegna gríðarlegra mótmæla í þar í landi. Formúla 1 19. apríl 2012 06:00
Mótmælendur mættu Formúlu-liðum er þau mættu til Barein Þegar Formúlu 1-liðin lentu í Manama, höfuðborg Barein, í gærkvöldi mættu þeim hundruðir mótmælenda. Uppreisnarmenn eru mjög óánægðir með að Formúla 1 skuli halda mót í Barein í umboði stjórnvalda þar í landi. Formúla 1 18. apríl 2012 22:45
Button telur Mercedes nýja ógn við McLaren Nico Rosberg sótti sinn fyrsta sigur í Kína um helgina. Þetta var jafnframt fyrsti sigur Mercedes-bílaframleiðandans í Formúlu 1 síðan 1955. Jenson Button, ökuþór McLaren, segist nú sannfærður um að Mercedes-liðið og Rosberg verði ógn í titilbaráttu McLaren. Formúla 1 17. apríl 2012 21:00
Nú er óvíst hvort mótið í New York 2013 fari fram Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, segir nú óvíst hvort Ameríkukappaksturinn fari fram í New Jersey árið 2013 eins og ráðgert er, vegna þess að brautin verður hugsanlega ekki tilbúin. Formúla 1 17. apríl 2012 19:00
Nico Rosberg vann í fyrsta sinn í Kína Þjóðverjinn Nico Rosberg vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 í kínverska kappakstrinum í Shanghai í morgun. Jenson Button var annar eftir fjöruga lokahringi sem röðuðu mönnum upp á nýtt. Formúla 1 15. apríl 2012 09:02
Kobayashi mun hafa áhrif á toppbaráttuna Jenson Button, ökuþór McLaren liðsins í Formúlu 1, segir að Kamui Kobayashi á Sauber muni hafa áhrif á framvindu kappakstursins í Kína á morgun. Kobayashi mun ræsa þriðji í kappakstrinum. Formúla 1 14. apríl 2012 23:00
Rosberg langfljótastur í tímatökum fyrir kínverska kappaksturinn Þjóðverjinn Nico Rosberg á Mercedes bíl var hálfri sekúntu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren í tímatökum fyrir kínverska kappaksturinn í morgun. Enginn átti séns í Rosberg. Formúla 1 14. apríl 2012 07:23
Hamilton og Schumacher fljótastir á föstudagsæfingum í Kína Lewis Hamilton á McLaren og Michael Schumacher á Mercedes voru fljótastir á föstudagsæfingum í Kína sem fram fóru í nótt. Lewis var lang fljótastur á fyrri æfingunni en rigning setti strik í reikninginn. Formúla 1 13. apríl 2012 13:00
Ákvörðun FIA: Keppt í Barein þrátt fyrir mótmæli Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) ákvað í nótt að mótið í Barein skyldi fara fram, þrátt fyrir gríðarlega umræðu um öryggi starfsmanna keppnisliðanna og áhorfenda. Formúla 1 13. apríl 2012 11:30
Gríðarlegir fjármunir í húfi verði mótinu í Barein aflýst Umræðan um hvort Formúla 1 eigi að fara til Barein og keppa þar 22. apríl hefur magnast í aðdraganda kínverska kappakstursins um næstu helgi. Gríðarlegir fjármunir eru fólgnir í kappakstrinum bæði fyrir hagkerfið í Barein og fyrir auglýsendur og keppnislið í Formúlunni. Formúla 1 12. apríl 2012 21:45
Möguleiki á rigningu og óvæntum úrslitum í Kína Um helgina fer kínverski kappaksturinn fram í Shanghai. Brautin var, eins og sú sem keppt var á síðast í Malasíu, hönnuð af brautahönnuðinum Herman Tilke. Hér var fyrst keppt árið 2004. Þá ók Rubens Barrichello Ferrar bíl sínum fyrstur yfir endalínuna. Formúla 1 11. apríl 2012 23:30
Samband Hamilton og Button gæti snúist upp í andhverfu sína Lewis Hamilton og Jenson Button, ökumenn McLaren liðsins, þurfa að hafa varan á segir Johnny Herbert dómari í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður. Hann telur gott samband liðsfélaganna geta snúist upp í andhverfu sína í ár haldi McLaren áfram að hafa yfirburði. Formúla 1 11. apríl 2012 22:30
Óvissa magnast um mótið í Barein vegna pólitískrar ólgu Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, hefur sagt að hann og mótshaldarar geti ekki þvingað liðin til að mæta og keppa í Barein þann 22. apríl næstkomandi. Formúla 1 10. apríl 2012 21:15
Raikkönen segir Lotus skorta heppni Kimi Raikkönen segir Lotus liðið og vinnuveitendur sína hafa það sem þarf til að taka þátt í toppbáráttunni í ár. Fyrstu tvö mótin hafa hins vegar verið erfið fyrir liðið. Formúla 1 3. apríl 2012 20:00
Sauber-liðið í skýjunum með annað sætið Liðsmenn Sauber liðsins í Formúlu 1 sér enga ástæðu til að vera vonsviknir eftir að hafa misst af fyrsta sætinu í malasíska kappakstrinum um síðastliðna helgi. Formúla 1 27. mars 2012 14:45