

Ferðalög
Greinar um ferðalög, ferðasögur og frábæra staði til að heimsækja.

Telur aukið beint flug yfir Atlantshaf framhjá Íslandi alvarlega ógn við hagkerfið
Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri og eigandi WOW air telur að aukin tíðni flugferða beint á milli Evrópu og Bandaríkjanna, framhjá Íslandi, sé alvarleg ógn við íslensku ferðaþjónustuna sem og hagkerfið. Þetta skýri af hverju ákveðið hafi verið að bæta breiðþotum inn í flugflota WOW air, sem síðar varð flugfélaginu líklega að falli.

Fermingarpeningunum stolið
Langþráð þriggja vikna frí Sigurðar Geirs Geirssonar og fjölskyldu til Torrevieja á Spáni fór heldur betur illa af stað. Strax á flugvellinum var tösku sem í voru meðal annars fermingarpeningar sonar hans stolið.

„Ekki vitað um dæmi „devils breath“-eitrunar hér á landi
Grunur leikur á um að rúmenska mafían hafi byrlað íslenskum feðgum ólyfjan á Tenerife fyrir nokkrum vikum og rænt þá um hábjartan dag.

Íslenskum feðgum byrlað eitur á Tenerife
Íslenskum feðgum var byrlað eitur, þeir rændir og síðan skildir eftir við ruslagám um hábjartan dag á Tenerife fyrir skemmstu. Fararstjóri segir málið óhugnarlegt en eitrið sem um ræðir vekur óhug.

Planta tré fyrir gesti og umbuna þeim sem koma hjólandi á hótelið
ION Adventure Hotel á Nesjavöllum býður upp á græna upplifun í maí. Þeir gestir sem mæta á hjóli, gangandi eða á rafmagnsbíl fá uppfærslu í Deluxe herbergi. Sjálbærni og náttúruvernd eru hluti af hugmyndafræði hótelsins.

Fleiri fóru í utanlandsferð í fyrra en árið á undan
Ný könnun Ferðamálastofu á ferðalögum Íslendinga innanlands og utan sýnir að 83 prósent aðspurðra fóru í utanlandsferð í fyrra samanborið við 78 prósent árið 2017.

Íslendingar eyddu 200 milljörðum í útlöndum
Íslendingar fóru í 668 þúsund ferðir til útlanda í fyrra.

43 staðir sem þú ættir að heimsækja um heim allan
YouTube-síða Business Insider hefur tekið saman 43 staði um heim allan sem allir ættu að reyna heimsækja á lífsleiðinni.

Færeyskir fjárbændur sporna gegn átroðningi ferðamanna
Bændur á einu vinsælasta göngusvæði Færeyja eru búnir að fá sig fullsadda af gróðurskemmdum sem fylgja átroðningi ferðamanna. Þeir hafa ákveðið að innheimta hátt göngugjald.

Kostar 8.000 krónur að ganga á Þrælanípuna
Landeigendur einnar vinsælustu gönguleiðar Færeyja hafa ákveðið að hefja gjaldtöku af göngufólki í sumar. Athygli vekur hve gjaldið verður hátt, eða 450 danskar krónur.

Lenti í hættulegustu aðstæðunum á Íslandi
Ása Steinarsdóttir er með tvær háskólagráður og nærri 130 þúsund fylgjendur á Instagram. Hún gaf 9-5 lífið upp á bátin og lagðist í ferðalög með myndavélina í farteskinu. Ása ruddi sér leið í karlaheimi náttúruljósmyndunar.

Segir ekki ástæðu til að endurskoða aðild Íslands að Schengen
Starfsmönnum sem sinna verkefnum tengdum Schengen-samstarfinu hefur ekki fjölgað í takt við fjölgun verkefna á undanförnum árum samkvæmt nýrri skýrslu. Leggja þarf mat á það til framtíðar hvernig Ísland hyggst beita sér innan Schengen en dómsmálaráðherra segir ekki ástæðu til að endurskoða aðild Íslands að samstarfinu.

Lærði að ferðast ein eftir skilnað
Það getur fylgt því einmanaleiki að skilja við maka sinn og hjá mörgum er það stórt skref að læra að vera einsamall. Bryndís Alexandersdóttir gekk í gegnum skilnað fyrir fjórum árum og ákvað að læra að ferðast ein og varði meðal annars heilli viku ein í Róm í kringum áramótin.

Ný vegabréf fara í umferð eftir helgi
Innleiðing nýrra vegabréfa hefur tekið fjögur ár og er stofnkostnaðurinn um 200 milljónir króna

Ísland í þriðja sæti yfir draumastaði netverja
Ef þið haldið að líklegt sé að erlendum ferðamönnum fækki á Íslandi á næstunni, þá ættuð þið að sjá hvert jarðarbúa dreymir helst um að ferðast.

Óþolandi hlutir sem fólk gerir á ferðalögum
Það getur bæði verið þægilegt að ferðast og það getur einnig verið mjög pirrandi.

Viltu finna sólina í vetur?
Nú þegar einn lengsti mánuður ársins er genginn í garð eru væntanlega margir sem sakna hlýju, birtu og sólar. Vetrarfrí styttir biðina til sumarsins og það eru allmargir staðir að velja um.

Óvænt ævintýri í Kína
Rokksveitinni We Made God bauðst óvænt að spila á þrettán tónleikum í Kína árið 2018. Viðburðirnir voru mjög vel skipulagðir og starfsmenn tónleikastaða fagmenn fram í fingurgóma.

Vilja takmarka drykkju gesta
Yfirvöld á Mallorca og öðrum eyjum í Balear-eyjaklasanum á Miðjarðarhafi hafa hug á því að banna hótelum að hafa áfengi með í tilboðum sem hljóða upp á „allt innifalið“.

Ævintýri ferðabarnfóstrunnar Alexöndru „enn þá betra en draumur“
Alexandra Kristjánsdóttir er nýkomin heim eftir heimsreisu með fimm manna bandarískri fjölskyldu. Alexandra gegndi starfi barnfóstru fjölskyldunnar í tæpt ár og segir ferðalagið hafa verið draumi líkast.

Gerði heimildarmynd um útskriftarferðina
Stefán Þór Þorgeirsson er nýlokinn námi við verkfræðideild Háskóla Íslands. Hann fagnaði áfanganum með útskriftarferð til Cancún í Mexíkó ásamt bekknum sínum og nýtti tækifærið til að taka upp heimildarmynd.

Nýtur lífsins í Sólarfylkinu
Elva Agnarsdóttir stundar skiptinám við háskóla í Brisbane í Ástralíu. Skólinn er risastór, veðrið nær alltaf gott og fólkið er vinalegt. Eftir lokaprófin í júní ætlar hún að ferðast meira um landið.

„Ég held hann tali ekki íslensku þessi“
Frá klunna yfir í liðtækan snjóbrettakappa sem dreymir um stundir í brekkunum með börnunum.

Bleiki goshverinn slær í gegn á samfélagsmiðli
Ljósmynd af goshvernum Strokki, sem listamaður litaði bleikan vorið 2015, er vinsæl á samfélagsmiðlinum Pinterest.

Fengu nóg af hversdeginum og ferðast nú um heiminn
Fjögurra manna fjölskyldu fannst tíminn farinn að æða áfram á óhóflegum hraða og dreif sig í heimsreisu. Nú njóta þau samverunnar og frelsisins og upplifa eitthvað nýtt á hverjum degi.

Nepölsk ofurmenni við Everest
Átján Íslendingar héldu í tveggja vikna göngu um Himalayafjöllin í október. Takmarkið voru grunnbúðir Mount Everest þaðan sem garpar í öðrum áhættuhópi halda af stað á leið sinni á topp hæsta fjalls heimsins. Ungir nepalskir burðarmenn vöktu aðdáun íslenska göngufólksins á degi hverjum.

Ferðamaður flaug sérstaklega aftur til Íslands til að sækja þýfi sem lögreglan hafði upp á
Endurheimti ljósmyndabúnað upp á tæpa milljón krónur og ljósmyndir úr Evrópuferð hans og eiginkonunnar.

Dráttarbíll lokar veginum við Jökulsárlón
Bifreiðin rann til í mikilli hálku og skorðaðist við ristahlið á veginum.

Fallegustu staðir Íslands fundnir: Vestfirðir heilla
Hverjir eru fallegustu staðir landsins? Vísir leitaði til breiðs hóps álitsgjafa sem komst að niðurstöðu: Vestfirðir. Ásbyrgi, Dynjandi og Stórurð meðal staða sem komast líka á blað.

Segir aukið upplýsingaflæði geta valdið ruglingi hjá farþegum
Farþegar vélanna sem seinkuðu frá Tenerif, Alicante og Malaga, hafa gagnrýnt lélega upplýsingagjöf og segja að misvísandi upplýsingar hafi borist þeim frá ferðaskrifstofum Heimsferða og Úrval Útsýns.