

Bíó og sjónvarp
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.

Taylor Swift partýstemning í Smárabíó í kvöld
Í kvöld verður frumsýnd mynd um tónleika Taylor Swift í Smárabíói. Markaðsstjórinn segir að tæplega þúsund miðar hafi selst. Það verður mikið sungið og fólk á eftir að standa upp og dansa.

Lena Olin verður Hulda Hermannsdóttir
Sænska leikkonan Lena Olin mun fara með hlutverk lögreglukonunnar Huldu Hermannsdóttur í sjónvarpsseríu sem gerð verður eftir þríleik Ragnars Jónassonar, Dimmu, Drunga og Mistri.

„Svona gerir maður ekki, mamma“
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn var í gær og af því tilefni fór dagskrárgerðarmaðurinn Garpur I. Elísabetarson og hitti móður sína, Elísabetu Jökulsdóttur rithöfund, á heimili hennar í Hveragerði.

Fjölmenntu til að upplifa kynþokka og spennu í nýrri þáttaröð
Forsýning dramaþáttanna, Svo lengi sem við lifum eða As long as we live, eftir Anítu Briem fór fram í Bíó Paradís í gær. Sjö ár eru liðin síðan Aníta byrjaði að skrifa handritið sem nú er orðið að veruleika.

Konur í krísu, siðblindir síkópatar og morðkvendi
Isabelle Huppert, ein þekktasta leikkona Frakklands og stórstjarna í evrópskri kvikmyndagerð, er heiðursgestur á RIFF í ár. Í tilefni af komu Huppert til landsins hefur Vísir tekið saman nokkra magnaða leiksigra hennar.

Nýsleginn formaður situr fyrir svörum
Gísli Snær Erlingsson, sem er nýtekinn við sem formaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, mun sitja fyrir svörum og ræða framtíðarsýn stofnunarinnar á opnum fundi með kvikmyndagerðarfólki á morgun, mánudag, klukkan 16 í Norræna húsinu.

Fór í fornfræði og guðfræði en gat ekki flúið örlögin
Sigurður Ingvarsson stefndi á fræðimennsku eftir menntaskóla en gat ekki flúið þau örlög að verða leikari. Hann leikur í nýjustu mynd Baltasars Kormáks, Snertingu, og stígur á svið í rokksöngleiknum Eitraðri lítilli pillu eftir áramót. Í vor fór hann á sjó eftir mönun tengdaföður síns og segir það hafa verið ólýsanlega erfitt.

Urmull af íslenskum myndum á hvíta tjaldinu um helgina
Kvikmyndahátíðin RIFF stendur nú yfir og mun gera næstkomandi viku. Nú um helgina verða íslenskar kvikmyndir í hávegum hafðar og þónokkrar íslenskar myndir sem ekki hafa verið sýndar áður á Íslandi verða á hvíta tjaldinu um helgina.

Nýtt líf Öldu Lóu
Alda Lóa Leifsdóttir er að senda frá sér sína fyrstu heimildamynd: Togolísu. Hún er skilin við mann sinn sósíalistaleiðtogann Gunnar Smára Egilsson, hefur hafið djáknanám og er að taka saman efni í bók um hugvíkkandi efni.

Heimaleikurinn verðlaunaður í Malmö
Heimaleikurinn, í leikstjórn Smára Gunnarssonar og Loga Sigursveinssonar, hlaut Áhorfendaverðlaun Nordisk Panorama, stærstu heimildarmyndahátíð Norðurlandanna á þriðjudagskvöld.

Aníta Briem fer á kostum í nýjum þáttum
Ný stikla úr þáttunum Svo lengi sem við lifum er frumsýnd á Vísi í dag. Þættirnir eru hugarfóstur leikkonunnar Anítu Briem sem fer með aðalhlutverk í þáttunum og skrifar handritið að þeim.

Íslensk frumraun og Cannes-verðlaunahafi keppa um Gullna lundann
Níu myndir keppa um Gullna lundan, aðalverðlaun RIFF, í ár. Meðal þátttakenda eru sigurvegarar á Cannes og Locarno en einnig er þar að finna fyrstu mynd íslenska leikstjórans Ninnu Pálmadóttur í fullri lengd.

Frægir rithöfundar höfða mál vegna ChatGPT
Hópur þekktra rithöfunda eins og George R.R. Martin, Jodi Picoult og John Grisham hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu OpenAI og sakað það um þjófnað á höfundarréttarvörðu efni sem notað var við þróun ChatGPT gervigreindarinnar. Rithöfundarnir segja gervigreindina byggja á kerfisbundnum og umfangsmiklum þjófnað.

Hátíðargestir á Heimaleiknum
Kvikmyndin Heimaleikurinn var frumsýnd í Bíó Paradís um helgina. Margt var um manninn og ljóst að myndin féll vel í áhorfendur.

Forsýningarveisla í Bíó Paradís
Margt var um manninn þegar Skuld, heimildamynd eftir Rut Sigurðardóttur, var forsýnd í Bíó Paradís síðastliðinn miðvikudag.

Stjörnum prýdd forsýning Northern Comfort
Kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Northern Comfort, var forsýnt í gær. Myndin verður tekin til almennra sýninga á morgun. Mikill fjöldi lagði leið sína á forsýninguna í gær.

„Myndin er frábær meðferð gegn flughræðslu“
Kvikmyndin Northern Comfort er frumsýnd í kvöld en leikstjóri myndarinnar Hafsteinn Gunnar Sigurðsson segir hugmyndina að myndinni hafa kviknað fyrir mörgum árum. Myndin var að miklum hluta tekin upp í Bretlandi sem og hér á landi.

Feðginin Jóhannes Haukur og Ólöf slá í gegn í Kulda
Kuldi sem er byggð á sögu Yrsu Sigurðardóttir er komin bíó. Kvikmyndin er hlaðin stórleikurum og hefur hún þegar slegið í gegn.

Eins og gott hjónabandspróf
Parið Rut og Kristján Torfi tefldi fjárhag sínum í tvísýnu þegar þau ákváðu að kaupa trillu og gera út á handfæraveiðum. Þau vilja að ungt fólk hafi tækifæri til að stunda smábátaútgerð og segja tímann á sjó fínasta sambandspróf.

Volaða land framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna
Kvikmyndin Volaða land, eftir Hlyn Pálmason, verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni.

Selma sýnir á sér skuggahliðar
Kvikmyndin Kuldi var frumsýnd um mánaðamótin en hún er byggð á samnefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur. Selma Björnsdóttir fer með eitt af lykilhlutverkunum myndarinnar og sýnir vægast sagt á sér nýjar og hrollvekjandi hliðar. Hún segist þakklát að hafa getað skilið persónuna eftir á tökustaðnum.

Bíómynd um Kristinn Guðnason fjallkóng með meiru
Á sama tíma og göngur og réttir standa nú yfir um allt land verður ný íslensk kvikmynd, „Konungur fjallanna“ frumsýnd annað kvöld i Bíóhúsinu á Selfossi. Myndin fjallar um Kristinn Guðnason, fjallkóng í leitum með gangnamönnum á Landmannaafrétti.

Hlín tekur við rektorsstöðunni af Berki
Hlín Jóhannesdóttir hefur tekið við stöðu rektors Kvikmyndaskóla Íslands af Berki Gunnarssyni. Þetta kemur fram i tilkynningu frá Berki sem var settur rektor fyrir rúmu ári síðan.

Forréttindi að fá að vera rotta af og til
Þórey Birgisdóttir, leikkona sló nýverið í gegn fyrir frammistöðu sína í leikverkinu Sund sem sýnt er um þessar mundir í Tjarnarbíói. Á sama tíma leikur hún rottuna Pílu í Draumaþjófinum og stendur í framkvæmdum á íbúð sem hún fékk vægast sagt á heilann.

„Verðum að hafa hugrekki til að stoppa þegar við erum komin út í algjöran skurð.“
Stofnandi True North er uggandi vegna hvalveiða við Íslandsstrendur og hefur verulegar áhyggjur af vaxandi andstöðu áhrifafólks í kvikmyndaiðnaði á alþjóðavísu vegna málsins. Lögmaður fyrirtækisins segir skilningsleysi einkenna viðbrögð stjórnvöld eftir að krafa þeirra um lögbann á starfsemina var send til baka.

Ritdómur um leikrit True North
Framleiðslufyrirtækið True North vakti í gær verðskuldaða athygli þegar lögmaður þess skilaði til sýslumannsins á Vesturlandi lögbannskröfu vegna fyrirhugaðra hvalveiða Hvals hf., hér verður ekki tekin efnisleg afstaða til hvalveiða sem slíkra nema að því marki að því sé haldið til haga að undirritaður er andvígur þeim. Tilefni greinarinnar er frekar að fjalla um þessa fjarstæðukenndustu lögbannskröfu í sögu landsins.

Skulfu á beinunum á forsýningu Kulda
Fjöldi fólks skalf á beinunum á forsýningu íslensku hrollvekjunnar Kulda í Smárabíói í gærkvöldi. Kvikmyndin er byggð á samnefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur frá árinu 2012.

Kvikmyndaframleiðendur vona að samstaða náist á Alþingi um veiðibann
Stjórn Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda segist harma ákvörðun matvælaráðherra um að heimila hvalveiðar í haust og vonast til þess að samstaða náist á Alþingi um að banna veiðarnar til frambúðar.

Vill svör frá Lilju: „Auðkýfingur með sértæka drápsýki“ fái að leggja skapandi iðnað í rúst
Katrín Oddsdóttir, lögmaður framleiðslufyrirtækisins True North, segist vongóð um að Alþingi muni geta komið sér saman um breytingar á lögum um hvalveiðar. Hún segist spyrja sig hvort „auðkýfingur með sértæka drápsýki“ eigi að fá að leggja skapandi iðnað á Íslandi í rúst.

True North krefst lögbanns á hvalveiðar Kristjáns
Framleiðslufyrirtækið True North hefur krafist þess að lögbann verði sett á Hval hf vegna veiða á langreyðum. Katrín Oddsdóttir, lögmaður hjá Rétti, fer með málið fyrir hönd True North. Erfitt, jafnvel ómögulegt verði að fá erlenda aðila til samstarfs hérlendis verði af veiðunum.