Handboltinn í fyrsta sæti en tilbiður enn listagyðjuna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. október 2025 12:01 Blær Hinriksson vill ekki skilgreina sig sem annað hvort handboltamann eða leikara. Hann vill sinna báðu þótt handboltinn eigi hug hans allan nú þegar hann er orðinn atvinnumaður. vísir/arnar Þrátt fyrir að Blær Hinriksson sé orðinn atvinnumaður í handbolta hefur hann ekki sagt skilið við leiklistina. Handboltinn er þó í fyrsta sæti sem stendur.
Blær sló í gegn í kvikmyndinni Hjartasteini og fékk Edduna fyrir besta leik í aðalhlutverki 2017. Hann lék svo í Berdreymi sem var valin besta myndin á Edduverðlaunahátíðinni fyrir tveimur árum. Hinn 24 ára Blær samdi við Leipzig í Þýskalandi í sumar og er að spila sitt fyrsta tímabil sem atvinnumaður í handbolta. Hann er ekki búinn að leggja leiklistina á hilluna. „Ég hef oft svarað þessari spurningu og vil aldrei útiloka neitt. Margir hafa spurt mig hvort ég sé hættur sem leikari eða hvað þá? Nei, ég hætti ekki. Maður hættir ekki neinu bara svona. Ég er ungur ennþá og maður á sinn starfsferil alveg þangað til maður er ég veit ekki hvað gamall,“ sagði Blær í samtali við Vísi. Stefnan að leika meira Leikarar eiga alla jafna mun lengri feril en íþróttamenn og Blær segir að handboltinn sé í fyrsta sæti. „Ég veit ekki hvort ég sé að fara að leika í minni handboltapásu, á sumrin eða eitthvað svoleiðis. Ég útiloka ekki neitt. Og það er aldrei að vita nema ég taki eitthvað hlutverk og hvað þá þegar maður er kominn með þýskuna á hreint,“ sagði Blær í léttum dúr. „Nei, nei, ég segi svona. Fókusinn er núna auðvitað á handboltann og það er ekkert annað hægt að gera þegar maður er atvinnumaður. Maður hugsar bara um sig sjálfan og æfir vel og vinnur sína heimavinnu og allt snýst núna um handbolta. Á Íslandi var kannski meiri tími fyrir að taka að sér hlutverk eða módelstörf, leika í auglýsingum eða gera eitthvað svona auka en núna snýst þetta svolítið mikið bara um handboltann og það var og er alveg mikil tilbreyting fyrir mig því áður fyrr var ég að halda mörgum boltum en núna er maður einhvern veginn bara að halda einum bolta á lofti og með fullan fókus á handboltann sem ég elska akkúrat núna. En í framtíðinni mun ég vonandi leika meira og það er alveg stefnan.“ Blær hefur skorað 35 mörk fyrir Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni. Liðið, sem er í næstneðsta sæti með eitt stig, sækir Melsungen heim í kvöld.
Þýski handboltinn Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur Körfubolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Sjá meira