Spillingin heima er best Spillingin er ísmeygileg. Hún ryður sér til rúms án þess að þorri landsmanna taki eftir en er svo fyrr en varir orðin svo heimilisleg að fjöldi kjósanda getur ekki hugsað sér lífið án hennar. Hins vegar er spilling handan heimsála alltaf jafn heimskuleg. Bakþankar 25. október 2016 07:00
Stjórnmálaeðla Eins og glöggir lesendur hafa mögulega tekið eftir eru kosningar eftir nokkra daga og samfélagið allt á yfirsnúningi. Fólk hefur ekki undan við að horfa á vandræðalegt efni sem stjórnmálaflokkar deila á samfélagsmiðlum og hugsa: úff, best að kjósa ekki þennan flokk. Bakþankar 24. október 2016 00:00
Dylan og Megas Aldamótaárið fékk Megas verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framúrskarandi beitingu íslenskrar tungu. Margir urðu til að hneykslast yfir þessari verðlaunaveitingu og rifjuðu upp gamlar ávirðingar skáldsins. Bakþankar 22. október 2016 07:00
Kjarasamningar foreldra Í júlímánuði tók ég við nýju starfi. Ég tilheyri nú tiltekinni starfsstétt og laun mín taka mið af kjarasamningum. Laun fólks í minni stöðu voru á dögunum hækkuð um 35%. En ekki mín laun. Nei. Launahækkunin nær eingöngu til þeirra sem hefja störf eftir gildistöku samninganna. Bakþankar 21. október 2016 07:00
Leiðin að kjörklefanum Enn hef ég ekki ákveðið hvað ég mun kjósa í komandi kosningum. Það liggur ekkert á. Síðast ákvað ég þetta í kjörklefanum. Ég held að ég hafi aldrei kosið sama flokkinn tvisvar. Það á enginn þeirra neitt inni hjá mér Bakþankar 20. október 2016 07:00
Lífsógnandi sjúkdómar Margir greinast með lífsógnandi sjúkdóm allt of snemma á æviferlinum. Þegar slíkt hendir upplifir fólk sorg, söknuð eftir því sem var, kvíða og vanmátt. Margir upplifa þegar þeir fá ógnandi sjúkdómsgreiningu að þeir séu sviptir sjálfræði, ekki ólíkt því sem fólk skynjar við ótímabært andlát ástvinar. Bakþankar 19. október 2016 07:00
Falið fatlað fólk Fyrst eftir að ég flutti til Danmerkur á sínum tíma tók ég eftir öllu því sem ég var ekki vön frá Íslandi. Konunum í búrkunum, hlýju golunni, hjólreiðamönnum í umferðinni. Og fatlaða fólkinu! Sem mætti mér á gangstéttinni, sat við hlið mér í strætó og afgreiddi mig í búðinni. Bakþankar 18. október 2016 00:00
Varstu full/-ur? Undanfarin ár hef ég m.a. starfað sem réttargæslumaður brotaþola kynferðisbrota. Hef ég því farið í fjölmargar skýrslutökur hjá lögreglu sem eru eins misjafnar og þær eru margar. Eitt einkennir þó allar, þær eru erfiðar. Bakþankar 17. október 2016 00:00
Gutti, Gutti Frægasta barnakvæði liðinnar aldar voru Guttavísur eftir Stefán Jónsson. Þær fjölluðu um hrakfallabálkinn Gutta sem aldrei hlýddi foreldrum sínum, reif nýja jakkann sinn og datt beint á nefið. Bakþankar 15. október 2016 07:00
Spurningar (engin svör) Þetta var öðruvísi en flest málþing því fjórir af fimm fyrirlesurum voru konur og umræðuefnið ekki kynferðisbrot, konur eða börn. Ég var samt ekki viðbúin því að lágvaxin buxnadragtarklædd kona á sjötugsaldri myndi halda þannig fyrirlestur í útgáfuhófi vegna hagfræðibókar Bakþankar 14. október 2016 07:00
Úðarinn og saurlokan Þrátt fyrir að þurfa að mæta í vinnuna klukkan sjö um morguninn vakti ég eftir þriðju forsetakappræðunum í Bandaríkjunum. Ég bara varð að horfa enda hef ég ekki misst af kappræðum síðan um aldamótin. Ég hefði betur sleppt því. Bakþankar 13. október 2016 07:00
Það sem líkami minn er ekki Ég er kona. Ég er með brjóst og píku og leg. Og ýmislegt annað! T.d. hendur og fætur. Og starfandi heila. Og í ljósi ofantalinna þátta finn ég sjálfa mig knúna til að leiðrétta örlítinn misskilning. Bakþankar 12. október 2016 00:00
Fatalaust frelsi Ég var að hlaupa eftir ströndinni hér í Almeríahéraði, nýfluttur og því alvitlaus um staðarhætti. Allt í einu fannst mér ég vera staddur í ljóði eftir Stein Steinarr þar sem ég hljóp á annarlegri strönd. Stórt og mikið skilti útskýrði hins vegar að ég var á nektarströnd mikilli. Bakþankar 11. október 2016 07:00
Sá tími árs Ótrúlegt, enn og aftur er komið haust. Það væri hægt að stilla klukku eftir þessu, alltaf kemur haust að sumri loknu. Margir merkilegir hlutir hafa gerst um haust. Það var til dæmis um haust árið 1975 þegar Stuðmenn hurfu í reykmekki Bakþankar 10. október 2016 00:00
Hinir fyrirsjáanlegu Frægasti spámaður á Íslandi á sautjándu öld var Jón Krukkur. Margt af því sem hann sagði fyrir í Krukksspá sinni er enn að koma fram. Þrátt fyrir framfarir og tækniþróun síðustu alda er alltaf eftirspurn eftir mönnum eins og Jóni Krukki, sem vissi lengra en nef hans náði. Bakþankar 8. október 2016 07:00
Vítahringur kvennalauna Á sumarmánuðum eignaðist kona stúlkubarn. Barnið kom nokkuð óvænt undir - en einungis tveimur mánuðum eftir áætlaðan fæðingardag átti konan að hefja framhaldsnám erlendis. Bakþankar 7. október 2016 07:00
Skynsamleg stjórnmál Síðar í þessum mánuði göngum við til kosninga. Ekki er laust við að fiðringur fari um mörg okkar. Við teljum okkur trú um að nú sé hægt að gera betur en síðast. Við ætlum ekki að falla fyrir sömu ódýru og innantómu loforðunum í þetta skipti. Bakþankar 6. október 2016 07:00
Sjálfsvíg Ég hef enga tölu á því fólki sem ég hef mætt í mínu prestsstarfi sem hreinlega treystir sér ekki lengur til að lifa og sér dauðann sem lausn fyrir sig. Ég gæti heldur ekki talið upp í huganum þá einstaklinga sem ég hef rætt við og eru að horfast í augu við ótímabæran dauða sinn en eru staðráðnir í að gera allt til að lifa. Bakþankar 5. október 2016 07:00
Sjálfumglaður hrokagikkur Það vill oft verða svo, þegar maður er ungur og vitlaus, að maður telur sig vita og kunna allt best. Að þeir sem arfleiða okkur að jörðinni hafi nú ekki kunnað til verka. Ég er engin undantekning þar á. Bakþankar 4. október 2016 00:00
Eftirspurn eftir stjórnmálaflokkum Eftir fjórar vikur göngum við til þingkosninga. Það er alltaf hátíðleg stund en því miður þá er eitt að þvælast fyrir mér nú í aðdraganda kosninga, nefnilega flokkafjöldinn. Bakþankar 3. október 2016 00:00
Saga læknisfræðinnar Fyrsti landlæknir Íslands, Bjarni Pálsson, hóf störf úti á Seltjarnarnesi árið 1760. Hann var um nokkurt skeið eini læknir landsins, enda þurfti hann að ferðast mikið. Í ævisögu hans stendur: "að trautt héldu honum veður, sjór eða úrtölur, er hans var vitjað til verka“. Bakþankar 1. október 2016 07:00
Internetið man Við fáum öll klæðskerasniðnar auglýsingar á internetinu. Við höfum látið fjölmörgum aðilum í té upplýsingar um staðsetningu, afmælisdag og hvaða lit við viljum helst á kaffivélinni sem hægt er að vinna með því að læka og deila myndinni, Bakþankar 30. september 2016 07:00
Rétt skoðun – röng skoðun, fáviti Eftir sléttan mánuð göngum við til kosninga og reynum að hafa áhrif á framtíð okkar með því að kjósa það sem okkur finnst rétt og það fólk og þann flokk til valda sem við teljum að þjóni okkar hagsmunum sem þjóðar hvað best. Bakþankar 29. september 2016 07:00
Brostu nú fyrir mig, elskan Forsetaframbjóðendur tveggja stærstu flokka í Bandaríkjunum öttu nýlega kappi í skjóli ræðupúlts. Fjöldi fólks fylgdist með og fjöldi fólks þrykkti enn fremur skoðunum sínum á frammistöðu frambjóðendanna út á veraldarvefinn. Bakþankar 28. september 2016 07:00
Tæknikratakjaftæði Tvennt hefur gerst upp á síðkastið sem kennir okkur hvernig tæknikratakjaftæði virkar, en það er skilvirkasta aðferð stjórnmálamanna í dag. Bakþankar 27. september 2016 07:00
Þögn á vegum Ég er ekki þátttakandi í bíllausa lífsstílnum, þvert á móti reyni ég að keyra sem mest. Aðalástæðan fyrir því er sú að vinir mínir eru svo margir bíllausir þannig að ef ég væri ekki á bíl gætum við aldrei farið saman í bílalúgur. Bakþankar 26. september 2016 07:00
Hallgrímur Pétursson snýr aftur Margir hafa haft áhyggjur af Framsóknarflokknum á síðustu misserum. Formaðurinn liggur undir stöðugu ámæli og fjöldi misviturra manna glefsar í hann og aðra flokksmenn. Bakþankar 24. september 2016 07:00
Anna og Abida Hún heitir Abida og er tíu ára. Tólf tíma á dag starfar hún í morkinni verksmiðju í Bangladess. Aðbúnaðurinn hörmulegur og launin varla nokkur. Hún er fórnarlamb barnaþrælkunar. Tími hennar er ódýr. Bakþankar 23. september 2016 07:00
Hrúturinn í stofunni Forystuhrúturinn Villingur frá Grafarbakka var í fréttum fyrr í þessari viku. Villingur er tólf vetra gamall og í miklu uppáhaldi hjá eiganda sínum. Hann leyfir börnum að sitja á baki sér eins og besti reiðhestur. Bakþankar 22. september 2016 07:00
Húðflúr og fordómar Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig fólki dettur í hug með miklum sársauka að láta teikna hinar ýmsu myndir á líkama sinn sem fylgja því ævilangt. Ég hef þurft að berjast við fordóma í þessu samhengi. Bakþankar 21. september 2016 07:00