Veður

Gular við­varanir á suð­vestur­horninu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skyggni gæti orðið slæmt á Hellisheiðinni í dag.
Skyggni gæti orðið slæmt á Hellisheiðinni í dag. Vísir/Vilhelm

Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir á suðvesturhluta landsins í dag og taka þær gildi klukkan níu og standa til klukkan eitt. Reikna má með skafrenningi og litlu skyggni á köflum svo sem á Hellisheiði og Þrengslum en líka á Kjalarnesi og Snæfellsnesi. Vindhviður gætu náð 30 m/s við fjöll sem er varasamt ökutækjum sem taka á sig vind. Því gæti orðið von á samgönguröskunum.

Það snýst svo í sunnan og suðvestan 8-15 m/s í kvöld og nótt með éljum suðvestanlands en birtir til norðaustantil. Hiti í kringum frostmark á morgun.

Spákort fyrir klukkan 14. Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og él víða um land, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 3 stig við sjóinn, en vægt frost inn til landsins.

Á fimmtudag: Suðlæg átt, 5-13 m/s og él, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.

Á föstudag: Ákveðin sunnan- og suðaustanátt og snjókoma, en slydda eða rigning suðaustantil. Úrkomuminna norðanlands. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag: Hvöss sunnan- og suðaustanátt og snjókoma eða slydda, en þurrt að kalla norðan- og norðaustanlands. Hiti nærri frostmarki.

Á sunnudag: Suðvestlæg átt og él, en bjart að mestu norðaustanlands. Hiti kringum frostmark.

Á mánudag: Útlit fyrir vestlæga átt með éljum norðanlands, en annars úrkomulítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×