Veður

Víða kaldi og skúrir

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Búist er við því það bætist í úrkomu vestantil annað kvöld.
Búist er við því það bætist í úrkomu vestantil annað kvöld. Vísir/Vilhelm

Víða má búast við skúrum eða slydduéli og kalda eða stinningskalda í dag. Bjart verður að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 1 til 8 stig. 

„Dálítil lægð á Grænlandshafi og hæð vestur af Írlandi beina til okkar suðvestlægri átt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Á morgun verði hún hins vegar skammt vestur af Bretlandseyjum og beini þá hlýrra lofti yfir landið. 

Vindáttin verður því suðvestlæg eða suðlæg, víða 5-13 m/s og dálítil væta með köflum, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Hiti yfirleitt 4 til 9 stig þegar líður á daginn. 

Annað kvöld bætir í úrkomu um tíma á vesturhluta landsins með suðvestlægri eða suðlægri átt. Búist er við ætu á köflum en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Hiti verður á bilinu 4 til 9 stig. 

Þá bætir í úrkomu annað kvöld um tíma á vesturhluta landsins. Á mánudag er svo útlit fyrir hlýja suðlæga átt með súld eða dálítilli rigningu sunnan- og vestanlands.

Veðurhorfur á landinu næstu daga: 

Á morgun:

Suðvestan og sunnan 5-13 m/s og rigning eða súld með köflum, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Samfelld rigning vestanlands um kvöldið. Hiti víða 3 til 9 stig.

Á mánudag:

Sunnan 8-15, hvassast norðvestantil. Súld eða dálítil rigning sunnan- og vestanlands, annars bjart með köflum. Hiti 6 til 14 stig, mildast fyrir austan.

Á þriðjudag:

Sunnan 13-20 og rigning, en þurrt að mestu norðaustanlands. Áfram hlýtt. Snýst í hægari suðvestanátt eftir hádegi og kólnar með dálitlum skúrum vestantil.

Á miðvikudag:

Suðvestan- og sunnanátt og dálitlar skúrir, en léttskýjað um landið austanvert. Hiti 2 til 8 stig.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×