Ölfus

Ölfus

Mannfjöldi: 2.757 (2025). Flatarmál: 736 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Þorlákshöfn, Sandvíkurhreppur.


Fréttamynd

„Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“

Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í Gúmmíbát, lét veðrið um þarsíðustu helgi ekki stoppa sig og mætti galvösk með míkrafóninn á lofti á hina árlegu Kótelettu á Selfossi. Þar var margt um manninn og lét hún spurningarnar dynja á fólki og sætti sig ekki við nein undanbrögð.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hvera­gerðis og Sel­foss

Eigendur Hótels Hjarðarbóls í Ölfusi leita nú að meðfjárfestum og samstarfsaðilum fyrir umfangsmikla uppbyggingu ferðaþjónustu á jörðinni Hjarðarbóli, sem staðsett er á milli Hveragerðis og Selfoss. Nú þegar hafa verið teiknaðar upp hugmyndir að nýju hóteli og frekari uppbyggingu á svæðinu þar sem lögð verður áhersla á sjálfbærni og vistvænar lausnir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu

Guðmundur Oddgeirsson vegfarandi segist nú hafa verið fastur í bílalest á Þjóðvegi 1 í 45 mínútur. Hann er búinn að missa af tíma hjá lækni en hann er að koma í borgina frá Þorlákshöfn. Hann er ósáttur.

Innlent
Fréttamynd

Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir

Landsréttur kvað upp dóm í Gufunesmálinu svokallaða í síðdegis. Einn sem hlaut dóm í héraði var sýknaður og dómar þriggja sem dæmdir voru fyrir manndráp voru mildaðir um eitt til tvö ár. Ung kona sem var sýknuð í héraði var aftur á móti sakfelld fyrir hlutdeild í frelsisviptingu og dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Innlent
Fréttamynd

Í liði bæjar­stjórans – eða ekki?

Þegar ég flutti í Þorlákshöfn sem unglingur skömmu eftir aldamót var bærinn allt annar er hann er í dag. Lýsisbrælan hékk yfir og mér leist sannast sagna lítið á þetta vindbarða pláss – við fyrstu sýn. En ég lærði fljótt að fólkið er gott í Þorlákshöfn og samfélagið samheldið. Í bænum er gott að búa og þar var gott að vera ungmenni.

Skoðun
Fréttamynd

Svona gekk að flytja vindmyllurnar

Fyrstu flutningar á risastórum vindmyllum í nótt um þjóðvegi Suðurlands gengu framar vonum og tók það flutningalestina um fimm klukkustundir að aka farminum frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.

Innlent
Fréttamynd

Beygjur og hring­torg mesta á­skorunin fyrir vindmyllulestina

Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, segir hafa gengið mjög vel að flytja hluta vindmylla í Vaðölduver í nótt. Lögregla segir beygjur og hringtorg mestu áskorun en flutningarnir hafi gengið vel í nótt. 

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta vindmyllulestin um Suður­land í nótt

Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn há­tíð­legur

Verkalýðsdagurinn er venju samkvæmt haldinn hátíðlegur víða um land í dag, 1. maí. Það var meðal annars haldinn baráttufundur verkalýðsfélaga á Ingólfstorgi, kröfuganga niður Skólavörðustíginn og verkalýðskaffi í Iðnó. Á Selfossi var dagskráin engu síðri. 

Innlent
Fréttamynd

Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dóm­stólum

Eden Mining ehf., sem hefur helst það verkefni með höndum að vera milliliður fyrir Sjöunda dags aðventista við námugröft, vill ekki að mál sem nokkrir aðventistar höfðuðu á hendur fyrirtækinu rati fyrir dómstóla.

Innlent
Fréttamynd

Hafa lokið ellefu milljarða króna fjár­mögnun

Fiskeldisfyrirtækið First Water hefur lokið um ellefu milljarða króna fjármögnun, en um er að ræða útgáfu um sex milljarða króna breytanlegs skuldabréfs sem leidd sé af núverandi hluthöfum félagsins og um fimm milljarða króna lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Við þurfum að vera til­búin að takast á við eldgosavá

Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þor­láks­höfn

Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, vindorkuver Landsvirkjunar við Sultartanga, kom til Þorlákshafnar í kvöld. Það var flutningaskipið Idunn frá skipafélaginu Torcargo sem sigldi með farminn frá Rotterdam en um borð voru hlutir sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu.

Innlent
Fréttamynd

Hafa fundið nýtt jarðhita­svæði á Hellis­heiði

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir Orkuveituna hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði. Það eigi enn eftir að staðfesta með þriðju borholu en ef þær rannsóknir verði staðfestar verði það stórkostleg tíðindi fyrir þjóðina.

Innlent