Innlent

Hátt í átta­tíu eftirskjálftar

Agnar Már Másson skrifar
Jarðskjálfti varð við Brennisteinsfjöll klukkan 20.18 í gærkvöldi og mældist hann 3,0 að stærð.
Jarðskjálfti varð við Brennisteinsfjöll klukkan 20.18 í gærkvöldi og mældist hann 3,0 að stærð.

Tugir skjálfta hafa mælst í Brennisteinsfjöllum frá því að þriggja stiga skjálfti reið þar yfir í gærkvöldi.

„Það er einn og einn skjálfti en það er bara eðlileg eftirskjálftavirkni,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir náttúruvársérfræðingur í samtali við Vísi.

Þriggja stiga skjálfti reið yfir í Brennisteinsfjöllum klukkan 20.18 í gær. 

Náttúruvársérfræðingurinn segir síðan þá hafi allt að áttatíu skjálftar mælst á svæðinu en allir um eða undi 1,4 að stærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×